Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dróttað að geðheilsu Helga: „Að það þyrfti geðlækni til að meta mig vegna þráhyggju“

Við erum ekk­ert að ætl­ast til þess eða að það sé verið að klappa fyrir öllu sem við gerum. Það er alls ekki þannig. Það, að farið sé í skipu­lega her­ferð og beinar árásir eins og þarna var gert og opin­ber­að­ist skýrt síð­asta vor, er eitt­hvað annað, meira og verra en við getum sætt okkur við.“

Dróttað að geðheilsu Helga

Ógnandi hegðun í garð Helga.

„Já, og ógeð­felldir hlutir; greina­skrif þar sem menn veltu sér upp úr geð­heilsu minni,“ segir Helgi og á við Þorbjörn Þórð­ar­son, fyrr­ver­andi frétta­mann, sem var á þessum tíma feng­inn til ráð­gjafar hjá Samherja.

Það sem gerð­ist þegar þessi skæru­liða­skjöl komu út, var að nágranni minn kom til mín og sagð­ist nýlega hafa séð mynd af manni í blöð­unum sem hún átt­aði sig á að hefði verið fasta­gestur fyrir utan heim­ili hennar við að fylgj­ast með hús­inu mínu á ein­hverju tíma­bili.

„Hann skrif­aði greinar upp í kjaft­inn á ein­hverjum gæja á Akureyri og svo eru sam­skipti þeirra á milli, þar sem Þorbjörn er að gorta sig af því að vera að drótta að geð­heilsu minni. Það var greini­lega verið að koma á mig höggi með því að það þyrfti geð­lækni til að meta mig vegna þrá­hyggju sem ég væri með. Það sem gerð­ist þegar þessi skæru­liða­skjöl komu út, var að nágranni minn kom til mín og sagð­ist nýlega hafa séð mynd af manni í blöð­unum sem hún átt­aði sig á að hefði verið fasta­gestur fyrir utan heim­ili hennar við að fylgj­ast með hús­inu mínu á ein­hverju tíma­bili. Hún og annað vitni báru um að það væri Jón Óttar. Þannig að þetta kemur allt í einu á þessum tíma; þá átt­aði maður sig á þessu en maður neit­aði að trúa því í öllum þessum látum: Risa­stórt fyr­ir­tæki og starfs­menn þess voru undir rann­sókn í Namibíu og á Íslandi og það var verið að henda þeim út úr banka­við­skiptum erlendis og þeir voru að lenda í skatt­rann­sókn í Færeyjum. Þetta var allt að ger­ast og þeir voru að kljást við yfir­völd úti um allt og þá virt­ist vera heill floti af starfs­fólki undir stjórn ekki eins heldur tveggja for­stjóra; það virt­ist allt snú­ast um það ein­hvern veg­inn að klekkja á mér og sam­starfs­mönnum mínum. Ég hafði ekki einu sinni hug­mynda­flug í að þeir hefðu reynt að eyða svona miklum tíma í þetta.

Það hefur verið land­lægt á Íslandi að allir sem hafa sett sig upp á móti og farið harka­lega upp á aft­ur­lapp­irnar gegn til­teknu valdi, hafi oftar en ekki fengið fljótt á sig það orð að vera geð­veikir; um þá er dreift alls konar ljótum sögum. Þannig að ég er ekki fyrsti mað­ur­inn sem lendir í þessu. En það sýnir líka bara hvað menn eru til­búnir að gera og hvað menn telja eðli­legt að gera þegar þeim er stillt upp við vegg og þeir beðnir um að svara spurn­ingum um gjörðir sínar.“

Helgi nefnir eina grein­ina sem var skrifuð á þessum tíma um hann, sem hann segir að hafi verið lögð fyrir Björgólf Jóhann­es­son, sem var stjórn­ar­for­maður Samtaka atvinnu­lífs­ins. „Þetta er maður sem fólk mændi upp í og gerir örugg­lega enn þá. Ég hef haft per­sónu­leg kynni af Björgólfi og það rím­aði ekki við þau að hann væri að leggja blessun sína yfir þetta. Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri yfir risa­stóru alþjóða­fyr­ir­tæki: Að menn séu að eyða tíma sínum í þetta og séu á þessu „leveli“; ég er ekk­ert sér­stak­lega ginn­keyptur fyrir ósönn­uðum sam­sær­is­kenn­ingum, en ég hefði ekki trúað því að menn væru til í þetta.“

Viðtalið við Helga Seljan má í heild sinni lesa í helg­ar­blaði Mannlífs. 

Einnig má horfa á við­tal Reynis Trausta­sonar við Helga hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu