Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ari Ólafsson – Aðalleikarinn sem sofnaði á sviðinu í Þjóðleikhúsinu

Ari Ólafsson – Aðalleikarinn sem sofnaði á sviðinu í Þjóðleikhúsinu

Eurovision-far­inn fyrr­ver­andi, Ari Ólafsson, er undir Stækk­un­ar­gleri Mannlífs þessa vik­una.Ari fór fyrir Íslands hönd í söngvakeppn­ina árið 2018, með lagið Our Choice, og flutti hann lagið af  mik­illi fag­mennsku, enda með tölu­verða reynslu í að koma fram þrátt fyrir ungan aldur. Ari var aðeins 19 ára gam­all er hann steig á svið á stóra svið­inu í Lissabon.Það skal engan undra að nú leggur Ari stund á nám í tón­list og hvorki meira né minna en við hinn virta skóla TheRoyalAcademy of Music í London.Mannlíf komst að því að Ara finnst mik­il­vægt að sýna öðrum ást og kær­leik, hann hefur leikið í nokkrum aug­lýs­ingum og þáttum og elskar rétt eld­aða fil­let-steik.

Fjöl­skyldu­hagir?

Fjöl­skyldan mín er, held ég, bara mjög venju­leg ster­íótýpa af íslensku fjöl­skyld­unni. Giftir for­eldrar og tvö börn. Ég er stóri bróð­ir­inn, mamma er sál­fræð­ingur og pabbi er rit­höf­undur/graf­ískur hönn­uður. Litli bróðir minn er í HR í tölv­un­ar­fræði og það eru bara tvö ár á milli okkar, svo við höfum alltaf verið mjög nánir. Annars erum við bara, held ég, mjög venju­leg, öll samt mjög hug­mynda­rík og skap­andi en bara frekar „chill og mello“-gengi.

Menntun/atvinna?

Ég hef verið mjög lán­samur og hepp­inn í líf­inu hvað varðar nám og atvinnu. Ég byrj­aði í Þjóð­leik­hús­inu að leika Oliver Twist, sem var leik­stýrt af henni Selmu Björns, og eftir Oliver Twist reyndi ég að gera allt tengt músík og leik­list.Ég er mjög hepp­inn að hafa fengið að syngja og leika í öllum helstu leik­húsum og -sölum lands­ins.Núna er ég að klára bachelor-gráðu í tón­list í TheRoyalAcademy of Music. En til að skil­greina svona hvað ég er akkúrat núna, þá myndi ég segja söngv­ari/klass­ískur söngv­ari.

Upp­á­halds­sjón­varps­efni?

Það var Game of Thrones, en þeir náðu að klúðra því öllu saman. Núna finnst mér Verbúðin vera meðal skemmti­leg­ustu þátt­anna sem eru í gangi, en ann­ars er ég miklu meira fyrir bíó­myndir.

Leikari?

Ég hef leikið í nokkrum aug­lýs­ingum og sjón­varps­þáttum og á mínu sviði verða held ég allir að vera með ein­hvers konar leik­reynslu eða hæfi­leika.

Bók eða bíó?

Bíó allan dag­inn. Myndir eru full­komna lista­verkið, þær eru með leik, söng, myndir, tón­list, sögu. Þær ná yfir öll sköp­un­ar­sviðin.

Rit­höf­undur?

Ég og litli bróðir minn höfum verið að skrifa sögur síðan við vorum níu og ell­efu ára, en núna höfum við tekið þetta á annað plan og okkur langar að búa til góða ofur­hetju­sögu sem von­andi verður gefin út ein­hvern tím­ann!

Besti matur?

Vel gerð fil­let-steik. Það er ekk­ert sem toppar það!

Kók eða pepsí?

Það er bara sið­blint fólk sem finnst pepsí betra en kók.

Fal­leg­asti stað­ur­inn?

Selland í Fnjóska­dal.

Hvað er skemmti­legt?

Topp tíu skemmti­leg­ustu hlutir sem ég geri í engri ákveð­inni röð eru: fót­bolti, DND, myndir, söngur, spi­keball, ferð­ast, leik­list, fara á uppi­stand, borða góðan mat og UFC.

Hvað er leið­in­legt?

Ég veit ekki, ég nenni oft ekki að pæla í því hvað mér finnst leið­in­legt, en ef ég ætti að segja eitt­hvað, þá væri það bara fólk sem er dóna­legt, ég hef enga þol­in­mæði fyrir dóna­skap og ömur­legri hegðun.

Hvaða flokkur?

Ég kýs bara þá sem ég treysti til að tækla þau vanda­mál sem jörðin er að kljást við núna. Lögum umhverfið okkar fyrst og fremst.

Skemmti­staður?

Prikið. Hef bara farið þangað, en núna upp­lifi ég mig alltof gamlan fyrir þann stað.

Kostir?

Er hress, jákvæður, orku­mik­ill og hjálp­samur, en ég held að besti kost­ur­inn minn sé, að ég get tjáð til­finn­ingar mínar, litið inn á við og end­ur­speglað sjálfan mig.

Hver er fynd­inn?

Villi Neto „Enoughsaid!“

Trúir þú að drauga?

Nei: (En væri ekki kúl, ef þeir væru til?)

Stærsta augna­blikið?

Það verður að vera Eurovision, bara allt það ferli var truflað.

Mestu von­brigðin?

Ég gerð­ist Arsenal aðdá­andi …

Draum­ur­inn?

Að geta lifað af því sem ég elska að gera.

Mesta afrek á þessu ári?

Það er ekki mikið búið af 2022, en ég er að syngja í óperu­upp­setn­ingu í skól­anum mínum og mér gengur mjög vel.

Ertu búinn að ná öllum þínum mark­miðum?

Alls ekki, ég held það muni aldrei ger­ast, er alltaf að koma með ný og ný mark­mið.

Manstu eftir ein­hverjum brand­ara?

Vissirðu að Bruce Lee á bróður sem er vegan?Hann heitir Brokkolí.

Vand­ræða­leg­asta augna­blikið?

Það kom nokkuð oft fyrir mig í mennta­skóla að þegar ég spurði ein­hvern vin minn hvernig „kæró hefði það“ þá voru þau alltaf nýhætt saman.Svo sofn­aði ég einu sinni á svið­inu í Þjóð­leik­hús­inu sem Oliver Twist.

Sorg­leg­asta stundin?

Þegar afi minn lést, var mjög náinn honum.

Mesta gleðin?

Að vinna söngvakeppn­ina held ég og verða Íslands­meist­ari í fyrsta skipti í fót­bolta.

Mik­il­væg­ast í líf­inu?

Það sem mér finnst mik­il­væg­ast í mínu lífi, er að ég elski sem flesta og sýni ást og kær­leik til eins margra og ég get þar til ég dey.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu