Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Skuggahliðar merkjanna – Fyrri hluti

Skuggahliðar merkjanna – Fyrri hluti

Eins og flest fólk, er hvert og eitt merki stjörnu­spek­innar ýmsum kostum gætt. Að sama skapi eiga þau öll sína galla; jafn­vel skugga­hliðar sem fólk í þeim merkjum gæti þurft að vinna meira í en öðrum.

Í hinum og þessum spi­ritúal­ism­anum er oft talað um skugga­vinnu, eða „shadow work“, þar sem við­kom­andi skoðar sér­stak­lega og vinnur með eigin skugga­hliðar. Ekki með því að reyna að hrekja þær á brott eða fela þær, heldur þvert á móti með því að við­ur­kenna þær, skoða þær, læra að skilja þær og svo vinna með þær. Oft getum við lært margt af þessum hliðum okkar og stundum er okkur hrein­lega lífs­nauð­syn­legt að tjá sumar þeirra, í réttu jafn­vægi.

Skugga­hliðar okkar eru jafn stór partur af okkur eins og þær björtu – enda getur ekk­ert ljós orðið án myrk­urs. Eða, eins og meist­ari Leonard Cohen orti:

„There is a crack, a crack in everyt­hing. That’s how the light get’s in.“

Hér á eftir verður farið yfir nokkrar best þekktu eða mest áber­andi skugga­hliðar hvers stjörnu­merkis fyrir sig. Taki þeir það til sín sem eiga. Líklega er best að biðja Ljónin afsök­unar fyr­ir­fram, enda vitum við öll að þau eru móðg­un­ar­gjörn­ust.

Hér á eftir verður farið yfir fyrri helm­ing merkja hrings­ins, fyrstu sex, frá Hrúti til Meyju. Í næsta helg­ar­blaði Mannlífs birt­ist svo seinni helm­ing­ur­inn, frá Vog til Fiska.

Hrútur

Hvatvísi – Það getur stundum komið hrútnum í koll hversu hratt hann vill að allt ger­ist. Hann hefur ekki fyrr fengið hug­mynd en hann er far­inn af stað í fram­kvæmd. Þetta gerir hann dríf­andi en getur líka þýtt að hann gerir ýmis­legt sem kemur honum í koll eða særir aðra.

Skapofsi – Þegar hlut­irnir fara ekki eins og hrút­ur­inn ætl­ast til getur rignt eldi og brenni­steini. Hrút­ur­inn á oft afar erfitt með að stilla sig þegar hann verður og það getur valdið hans nán­ustu sárs­auka. Það getur líka haft slæm áhrif á hrút­inn að vera sífellt að springa í loft upp, særa fólk og fæla það frá sér.

Egó – Egó hrúts­ins er stórt og mikið. Honum finnst hug­myndir sínar yfir­leitt góðar og lítur almennt nokkuð stórt á sjálfan sig. Hann á stundum erfitt með að skilja það, þegar aðrir eru honum ekki sam­mála eða eru ekki full­kom­lega heill­aðir af hug­myndum hans.

Naut

Leti – Nautin eiga það til að missa niður metnað og verða fram­taks­laus. Þau elska að hafa það nota­legt og geta svo­lítið gleymt sér í því. Það er ágætis merki um að naut þurfi að rífa sig upp þegar þau eru farin að halda til í jogg­ing­buxum dag eftir dag, fyrir framan sjón­varpið eða í tölvu­leikjum, umkringd skyndi­bita­kössum.

Þrjóska – Naut eiga það til að vera ósveigj­an­leg þegar þau hafa bitið eitt­hvað í sig. Þau eru afar hugs­andi og ana ekki að neinu. Þess vegna líta þau svo á að þegar þau hafi hugsað eitt­hvað vand­lega og tekið vel ígrund­aða ákvörðun, sé engin ástæða til þess að breyta henni. Þetta getur gert að verkum að þau eiga erfitt með að hlusta á hug­myndir og skoð­anir ann­arra. Þau eiga það þannig til að fest­ast í hjól­förum.

Stolt – Stoltið getur komið naut­unum í koll. Þau þola það illa að stolt þeirra sé sært eða ef þau upp­lifa ein­hvers konar nið­ur­læg­ingu, sama hversu lít­il­væg sem hún kann að vera. Ekkert slíkt er lít­il­vægt í huga nauta. Þannig geta þau upp­lifað stolt sitt sært af minnstu ástæðu, en stolt þeirra getur líka komið í veg fyrir að þau geri það sem er þeim fyrir bestu eða fyr­ir­gefi öðrum.

Tvíburi

Rótleysi – Það getur reynst tví­bur­anum flókið að festa sig niður og hann á það til að forð­ast skuld­bind­ingar. Hluti af því er óákveðni hans, annar hluti er hve erfitt hann á með að láta að stjórn og enn einn hluti er hrein­lega sá að hann vill halda mögu­leikum sínum opnum. Þetta getur vissu­lega átt við um ást­ar­sam­bönd, en ekki endi­lega. Þetta getur líka átt við um vinnu, heim­ili og hvers kyns ákvarð­anir. Tví­bur­inn er á heild­ina litið ekki sér­lega jarð­bund­inn.

Skap­sveiflur – Þegar tví­bur­inn er glaður er hann mjög glaður. Þegar hann er reiður … þá viltu ef til vill bara sleppa því að vera í kringum hann. Margir sjá tví­bura fyrir sér sem glaða, káta grínista sem ávallt eru léttir í lundu. Þeir geta vissu­lega verið þannig, en hin hliðin á pen­ingnum er tölu­vert myrk­ari. Þeir eiga það líka til að vera upp­stökkir og í þeirra til­felli á mál­tækið „skjótt skip­ast veður í lofti“ vel við.

Óheið­ar­leiki – Því miður er stundum hægt að góma bless­aða tví­burana við að vera óheið­ar­legir. Stundum vita þeir alveg hvað þeir eru að gera; segja eitt, gera annað – lofa einu og ganga svo á bak orða sinna eins og að drekka vatn. Hins vegar bein­ist óheið­ar­leik­inn hreint ekki alltaf að öðru fólki. Sumir tví­burar ljúga hvað mest að sjálfum sér með því að við­ur­kenna ekki eigin til­finn­ingar, afneita sann­leik­anum og bæla sitt eigið eðli.

Krabbi

Móðg­un­ar­girni – Krabbar geta svo sann­ar­lega verið hör­undsárir. Stundum er hrein­lega ekki hægt að segja hálft styggð­ar­yrði við þá án þess að allt hrynji. Málið er að það er svo stutt niður í kviku á kröbb­unum að þeir taka öllu per­sónu­lega. Þeir halda líka að allt sé per­sónu­legt. Þeim finnst heim­ur­inn og fólk grimmt og eiga oft von á því versta. Þeir eiga oft erfitt með að taka gagn­rýni án þess að móðg­ast stór­kost­lega og fara í fýlu.

Feimni – Stundum getur verið erfitt að nálg­ast krabbana. Þeir eiga það til að fest­ast inni í skel sinni og geta virst svo­lítið til baka. Þeir eiga dálítið erfitt með að treysta og byggja varn­ar­veggi í kringum sig. Þeir þurfa oft að vinna mark­visst í því að kom­ast út úr skel­inni, en ef þeir fá tíma til að treysta gefa þeir mikið af sér.

Afbrýði­semi – Þeir eiga stundum erfitt með að við­ur­kenna það, en krabbar eiga það ósjaldan til að verða afbrýði­samir. Þeir eru tor­tryggnir og eiga erfitt með traust. Það ger­ist því frekar auð­veld­lega að þeir fari að efast um fólk og þeir eru líka mjög skýrir hvað eign­ar­hald varðar. Í ást­ar­sam­böndum er daður við annað fólk því svo til ófyr­ir­gef­an­legt hjá flestum kröbbum.

Ljón

Egó – Mörg ljón eiga það til að vera með útblásið egó. Það er ekk­ert hægt að skafa frekar af því. Vanda­málið er að þetta stóra og fyr­ir­ferð­ar­mikla egó er stundum bara að fela innra óör­yggi, lélega sjálfs­mynd og ríka þörf fyrir sam­þykki ann­arra. Góð sjálfs­mynd og sjálfs­ör­yggi er af hinu góða, en það er annað að hvíla um of í eigin egói. Þegar egó verður útblásið og óein­lægt fáum við okkur sjálf á heil­ann og það er aldrei snið­ugt.

Athygl­is­þörf – Ljónið hefur tölu­verða þörf fyrir sviðs­ljósið. Það er ekk­ert að því að sækja í sviðs­ljós og kunna vel við sig í leið­toga­hlut­verki, enda eru ljón með ein­dæmum færir leið­togar. Hins vegar eiga þau það til að sækja í athygli athygl­innar vegna og verða súr ef þau hafa ekki ljós­kast­ar­ann á sér öllum stundum.

Þrjóska – Ljón eru sögu­lega þrjósk, það er ekk­ert laun­ung­ar­mál. Það jákvætt að vera ákveð­inn og standa á sínu, sem ljónin eru afar góð í, en þau eiga það til að setja höf­uðið undir sig og neita að hlusta á sjón­ar­mið ann­arra. Þegar þau hafa bitið eitt­hvað í sig, er erfitt að hagga þeim. Þau eru líka yfir­leitt hand­viss um að hafa rétt fyrir sér í einu og öllu.

Meyja

Smá­muna­semi – Meyjan á það til að týna sér í smá­at­rið­unum og gleyma að horfa á heild­ar­mynd­ina. Hún þarf að læra að það er sann­ar­lega munur á nákvæmni og smá­muna­semi – það þarf ekki allt að vera full­komið alltaf. Nákvæmni hennar er samt sem áður náð­ar­gáfa sem hún ætti ekki að hika við að nota. Hún er aðeins á villi­götum þegar hún er farin að horfa á allt í gegnum nál­ar­auga án þess að njóta heild­ar­innar.

Dómharka – Meyjan getur endrum og sinnum dæmt sam­ferða­fólk sitt full harka­lega. Hún heldur stundum að hún hafi öll svörin og viti sam­stundis hvernig fólk sé og hvort það sé tíma hennar virði eða ekki.

Nei­kvæðni – Meyjur sjá oft skratt­ann í hverju horni. Þær tapa sér í vanda­mál­unum, verða kvart­gjarnar og sjá ekki trén fyrir skóg­inum. Þetta getur orðið afskap­lega þreyt­andi fyrir fólkið í kringum þær, en ekki síður fyrir þær sjálfar.

Örvæntið ekki ef þið til­heyrið seinni helm­ingi stjörnu­merkj­anna – skugga­hliðar þeirra birt­ast í næsta blaði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu