Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tíu algengar fóbíur: Ótti sem getur jafnvel hamlað fólki í daglegu lífi

Tíu algengar fóbíur: Ótti sem getur jafnvel hamlað fólki í daglegu lífi
Margir eru hræddir við Lóa.

Afmörkuð fælni (e. phobia) er „ofsa­legur ótti við til­tekin fyr­ir­bæri eða aðstæður eins og dýr, lokuð rými eða sprautur. Fólk finnur fyrir skyndi­legri skelf­ingu þegar það mætir því sem það ótt­ast, þótt það geri sér grein fyrir að ótt­inn er meiri en eðli­legt er.“ Þetta segir á vef Kvíða­með­ferð­ar­stöðv­ar­innar.

Afmörkuð fælni er oft kölluð fóbía í dag­legu tali, eftir enska heit­inu. Fóbíur geta valdið fólki tals­verðu álagi og kvíða. Þær geta með tím­anum hugs­an­lega skert lífs­gæði þess sem þjá­ist af þeim, þegar við­kom­andi er jafn­vel far­inn að forð­ast ákveðnar aðstæður í lengstu lög vegna þeirra.

Hér á eftir verða taldar upp tíu af algeng­ustu fób­í­unum sem fólk þjá­ist af í dag, miðað við lista ABC News.

Félagsfælni

Hér er um að ræða ótta við félags­legar aðstæður. Þessi fælni til­heyrir flokki kvíð­arask­ana en vegna algengni og þess hve margt hún á sam­eig­in­legt með öðrum fób­íum, fær hún að vera á list­anum. Félags­fælni getur verið afar hamlandi og komið í veg fyrir að fólk sæki ýmiss konar félags­legar aðstæður. Þetta getur líka valdið öðrum fald­ari ein­kennum, eins og ótta við að borða fyrir framan aðra.

Agoraphobia – Víðáttufælni

Ótti við opin svæði. Þetta er alvar­leg fælni sem getur gert fólk að föngum á eigin heim­ili og komið í veg fyrir að það lifi eðli­legu lífi.

Acrophobia – Lofthræðsla

Þótt nokkuð margir þjá­ist af dálít­illi loft­hræðslu má segja að það sé bara hluti af eðli okkar, að ótt­ast aðstæður þar sem við gætum verið í hættu. Hins vegar getur sumt fólk ótt­ast hæð svo mikið að til dæmis rúllu­stigar í versl­un­ar­mið­stöðvum eru þeim ofviða. Aðrir fá svima og kvíða­við­brögð bara við það að vera statt inni í hárri bygg­ingu, þótt við­kom­andi sé inn­an­dyra. Margir sem glíma við þessa fælni fá mik­inn svima og ónota­til­finn­ingu við það að vera statt á útsýn­is­stað, eins og háum kletti, þótt þeir séu langa vegu frá brún­inni.

Pteromerhanophobia – Flughræðsla

Það eru meiri líkur á því að verða fyrir eld­ingu en að deyja í flug­slysi. Þrátt fyrir það þjást margir af alvar­legri flug­hræðslu. Fyrir suma kemur það hrein­lega í veg fyrir ferða­lög.

Claustrophobia – Innilokunarkennd/Hræðsla við lokuð rými

Sumir eru haldnir óstjórn­legum ótta við lokuð rými, að lok­ast inni ein­hvers­staðar eða að fest­ast í þröngum rýmum. Fólk lýsir því gjarnan að því finn­ist eins og veggirnir séu að þrengja að þeim og rýmið sífellt að minnka.

Entomophobia – Ótti við skordýr

Það þarf lík­lega ekki að útskýra þessa frekar. Margt fólk ótt­ast hinar ýmsu teg­undir af skor­dýrum. Algeng fóbía skyld þess­ari, er Arachnophobia, eða ótti við kóngulær. Þessar fób­íur geta gengið svo langt að fólk fyllist kvíða þegar fer að vora og forð­ast ákveðna staði eða aðstæður þar sem meiri líkur eru á að hitta þessa smáu óvini.

Ophidiophobia – Ótti við snáka

Þarna er um að ræða algenga fóbíu sem í sjálfu sér er ekki óskyn­sam­leg í grunn­inn. Frummað­ur­inn þurfti jú að vara sig á biti eitr­aðra snáka. Það er áhuga­vert að þessi ótti virð­ist ekki háður búsetu. Þannig má auð­veld­lega finna Íslend­inga sem eru haldnir fób­í­unni, jafn­vel þótt snákar finn­ist ekki úti í nátt­úr­unni hér á landi.

Cynophobia – Ótti við hunda

Þessi kemur kannski sumum á óvart, en sjúk­legur ótti við hunda er algeng­ari en margan myndi gruna. Oft verður þessi fóbía til eftir nei­kvætt atvik tengt hundi, sem á sér oftar en ekki stað þegar ein­stak­ling­ur­inn er barn. Það getur verið afar erfitt að eiga við fób­í­una og vinna bug á henni. Hundar eru næm dýr og skynja það gjarnan þegar fólk er óör­uggt eða hrætt, sem aftur gerir þá óör­ugga og stundum óút­reikn­an­legri í sam­skiptum við við­kom­andi aðila.

Astraphobia – Ótti við óveður

Þarna er helst um að ræða þrumur og eld­ingar, sem er mann­inum eðl­is­lægt að vera á varð­bergi gagn­vart. Harkaleg óveður eins og felli­bylir geta líka orðið að miklum ógn­valdi í lífi fólks. Þessa fóbíu er lík­lega erfitt fyrir fólk að tengja við sem búsett er hér á landi.

Trypanophobia – Ótti við nálar

Þessa þekkja flestir. Sprautu­nálar vekja ugg hjá mörgum. Sumir ótt­ast þær svo mjög að bólu­setn­ingar og blóðprufur verða nán­ast óyf­ir­stíg­an­legar. Sumir verða jafn­vel fyrir því að falla í yfir­lið eða kasta upp þegar sprautu­nálar eru nálægt þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu