Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Arion fær 87,7 milljóna króna sekt vegna fréttar Mannlífs: „Um raunverulegar upplýsingar að ræða“

Arion fær 87,7 milljóna króna sekt vegna fréttar Mannlífs: „Um raunverulegar upplýsingar að ræða“

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur stað­festi á þriðju­dag þá ákvörðun fjár­mála­eft­ir­lits­nefndar Seðla­banka að sekta Arion banka um 87,7 millj­ónir króna. Um er að ræða stjórn­valds­sekt sem var lögð á bank­ann í júlí 2020, fyrir að upp­lýsa ekki eins fljótt og kostur var um fyr­ir­hug­aðar hóp­upp­sagnir hjá bank­anum í sept­em­ber árið 2019.

Aðdrag­andi máls­ins er sá að Mannlíf birti frétt þar sem sagt var frá því að hóp­upp­sagnir væru á dag­skrá hjá bank­anum. Í frétt­inni sagði að upp­sagn­irnar væru liður í yfir­lýstri stefnu nýráð­ins banka­stjóra Arion banka um að auka arð­semi bank­ans. Frétt Mannlífs var birt 22. sept­em­ber 2019, á sunnu­degi, en á mið­viku­degi birt­ist til­kynn­ing for­svars­manna bank­ans þar sem fréttin var sögð röng.

Þann 26. sept­em­ber, fjórum dögum eftir að frétt Mannlífs birt­ist, var sagt frá því að 100 starfs­mönnum Arion banka hefði verið sagt upp. „Með þeim skipu­lags­breyt­ingum sem við kynnum í dag erum við að bregð­ast við aðstæðum til að tryggja að bank­inn þjóni sínum við­skipta­vinum vel á sama tíma og hann skilar hlut­höfum arði,“ sagði Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka um upp­sagn­irnar.

Fjár­mála­eft­ir­litið taldi að um væri að ræða inn­herj­a­upp­lýs­ingar sem gætu haft áhrif á verð­mæti bank­ans.

Sögðu fréttina ónákvæma

Stjórn­endur Arion banka mót­mæltu sekt­inni og vildu meina að fjár­mála­eft­ir­litið hefði hvorki gætt jafn­ræðis né með­al­hófs í ákvörðun sinni. Máli sínu til stuðn­ings vís­uðu þeir til fyrri ákvarð­ana fjár­mála­eft­ir­lits­ins um mun lægri sektir. Dómari við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur sam­þykkti ekki mót­mæli banka­mann­anna. Önnur málsvörn for­svars­manna bank­ans var sú að ekki hefði verið rétt hjá fjár­mála­eft­ir­lit­inu að brot bank­ans hefði staðið yfir í fjóra sól­ar­hringa. Það hefði hins vegar aðeins liðið þrír og hálfur sól­ar­hringur frá birt­ingu frétt­ar­innar þar til bank­inn til­kynnti opin­ber­lega um upp­sagn­irnar. Þetta taldi dóm­ar­inn engu máli skipta.

For­svars­menn bank­ans sögðu að frétt Mannlífs hefði verið það óná­kvæm að upp­lýs­ing­arnar gætu ekki hafa komið innan úr bank­anum og þar með bæri þeim engin skylda til þess að birta inn­herj­a­upp­lýs­ingar um hóp­upp­sagn­irnar. Eins og áður segir kom fram í frétt­inni að allt að 80 manns yrði sagt upp en að end­ingu var um 100 starfs­menn að ræða.

Um raunverulegar upplýsingar að ræða

Dómari hér­aðs­dóms telur frétt­ina sann­ar­lega hafa inni­haldið upp­lýs­ingar sem í meg­in­at­riðum voru þær sömu og höfðu komið fram á fundi innan bank­ans. Bankinn gæti ekki skýlt sér á bak við það að sá fjöldi sem til­greindur hafi verið í frétt­inni hafi ekki verið nákvæm­lega sá sami og var sagt upp nokkrum dögum síðar. Ekki heldur að í frétt­inni hefði ekki verið til­greind sam­setn­ing þeirra starfs­manna sem segja átti upp.

Dómurinn kveður á um að sú ákvörðun Arion banka að fresta birt­ingu þess­ara inn­herj­a­upp­lýs­inga í þennan tíma hafi verið í and­stæðu við lög. Til­kynn­ing­ar­skylda bank­ans hafi verið virk um leið og upp­lýs­ing­arnar birt­ust í frétt­inni þann 22. sept­em­ber.

„Aðal­at­riðið er að um raun­veru­legar upp­lýs­ingar var að ræða sem skiptu máli fyrir mark­að­inn en ekki upp­lýs­ingar byggðar á óná­kvæmum get­gátum vef­mið­ils­ins,“ segir meðal ann­ars í dómnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi