Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Allt að 80 manns sagt upp hjá Arion banka

Arion banki undirbýr nú umtals­verðar skipulags­breytingar sem verða kynntar á morgun eða á allra næstu dögum samkvæmt heimildum Mannlífs.

Arion banki
Arion banki
Benedikt Gíslason hefur látið til sín taka frá því hann hóf störf hjá Arion banka í júní og til­kynnt hefur verið um starfs­lok fjölda stjórn­enda und­an­farið. Mikill titr­ingur hefur verið meðal starfs­fólks bank­ans vegna þess. Mynd / Stjórna­ráð

Mannlíf hefur heimildir fyrir því að allt að 80 manns verði sagt upp störfum nú fyrir mánaðar­mótin hjá Arion banka og er það liður í yfir­lýstri stefnu Benedikts Gísla­sonar nýráðins banka­stjóra Arion að auka arðsemi bankans. Í nýlegu viðtali við Frétta­blaðið sagði Benedikt erfitt að horfa framan í hluthafa bankans þegar arðsemin væru undir áhættu­lausum vöxtum í landinu. „Á hverjum degi höfum við ekki verið að búa til verðmæti fyrir hluthafa heldur að rýra þau. Þessu þurfum við að breyta og laga”, sagði hann enn fremur. Þá hefur Benedikt einnig lýst því yfir innan bankans að markmið hans sé ekki að Arion banki verði stærsti bankinn og að arðsemi hluthafa skipti meira máli.

Útfærsla skipulags­breytinganna er nú á loka­metrunum og hefur Mannlíf heimildir fyrir því að stefnt sé að því að tilkynna um breytingarnar á morgun, mánudag. Nýtt skipurit mun þá líta dagsins ljós og í kjölfar þess verði ráðist í umfangs­miklar hópuppsagnir þar sem allt að 10 prósent starfs­manna bankans missa vinnuna nú fyrir mánaðar­mótin.

Samkvæmt heimildum Mannlífs er það þó aðeins fyrsta skrefið í umræddum skipulags­breytingum og talið er að enn fleiri starfs­menn missi vinnuna hjá bankanum á næstu mánuðum. Samkvæmt árskýrslu bankans fyrir árið 2018 er fjöldi stöðu­gilda Arion banka tæplega 800.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá