Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

London, París, Róm: Hvert ættir þú að ferðast í sumar – út frá stjörnumerki þínu?

London, París, Róm: Hvert ættir þú að ferðast í sumar – út frá stjörnumerki þínu?

Eftir síð­ustu tvö ár bíða þess eflaust margir óþreyju­fullir að kom­ast í ógleym­an­legt frí. En hvert skal halda? Hinir óákveðnu þurfa ekki að örvænta lengur, því hér er listi yfir spenn­andi áfanga­staði sem eru sér­valdir fyrir hvert og eitt stjörnu­merki. Það er að minnsta kosti ein aðferð til að slá á val­kvíð­ann.

Ég mana ykkur.

Hrútur

Hrútar þurfa spennu, eitt­hvað óvænt sem veitir þeim inn­blástur og heldur þeim við efnið. Þeir þurfa helst að hafa nóg fyrir stafni og eitt­hvað til að eyða orku sinni í.

Áfangastaður: Machu Picchu í Perú

Þarna geta hrútar aldeilis lent í ævin­týrum og fundið sér nóg að skoða og gera. Þar sem hrútur er eld­merki, hentar þeim vel að vera í hita, sem gerir áfanga­stað­inn enn heppi­legri.

Naut

Í frí­inu þurfa naut að geta notið lífs­ins lystisemda. Það skiptir öllu máli fyrir þau að ná bæði nauð­syn­legri hvíld og örvun í gegnum öll skyn­færi. Þau eru nautna­seggir í mat og drykk, og vilja að allt líti vel út. Þau hafa næmt feg­urð­ar­skyn og elska að skoða fal­lega list, hvort sem er í arki­tektúr eða ein­hverju öðru formi.

Áfangastaður: Flórens á Ítalíu

Flórens er full­kom­inn áfanga­staður fyrir naut! Mat­ar­menn­ingin er rík, hit­inn þægi­legur og svo er borgin alveg ótrú­lega fal­leg. Þar er hægt að taka því rólega og njóta lífs­ins, sem og ganga um borg­ina og njóta þess að skoða það sem fyrir augu ber.

Tvíburi

Tvíburar elska að ferð­ast til lif­andi og spenn­andi staða, þar sem mikið er af fólki og nóg að upp­lifa. Þeir kunna afskap­lega vel við sig í marg­menni, að hluta til vegna þess að þeir eru afar félags­lyndir en að hluta til vegna þess að þeir hafa lúm­skt gaman af því að týn­ast í fjöld­anum. Það hefur ein­hver áhyggju­minnk­andi áhrif á þá.

Áfangastaður: New York í Bandaríkjunum

Í New York geta tví­burar aldeilis fengið útrás á allan mögu­legan og ómögu­legan hátt. Þar er allt til, borgin er iðandi af lífi og í henni er nær ómögu­legt að láta sér leið­ast. Full­komið fyrir tví­bura sem þyrstir í líf, fjör og spennu.

Krabbi

Krab­b­arnir, elsku mol­arnir, vilja frið, ró og dass af dekri. Þeir þurfa á því að halda að losa um spennu og áhyggjur þar sem þeir upp­lifa tíma­leysi og algjöra slökun. Þeir eru ljúfir og við­kvæmir og þrá að kom­ast á stað þar sem þeir upp­lifa jafn­vægi. Þeim er líka mik­il­vægt að vera í nálægð við fagra og umvefj­andi nátt­úru.

Áfangastaður: Balí í Indónesíu

Það eig­in­lega getur ekki klikkað fyrir krabba að leggja land undir fót og heim­sækja Balí. Ferða­langar eru almennt sam­mála um að þarna sé um að ræða algjöra para­dís. Það er ekki óal­gengt að fólk sæki í Balí í tengslum við jóga og hug­leiðslu, en þar er líka margt við að vera og njóta – nátt­úru­feg­urðin er ógleym­an­leg.

Ljón

Ljónum leið­ist íburður hreint ekki og elska að upp­lifa sig sem kon­ung­borin og baða sig upp úr mun­aði. Sem lif­andi eld­merki kunna þau vel við að ferð­ast á spenn­andi staði þar sem nóg er um að vera. Þau eru for­vitin að eðl­is­fari og vilja láta koma sér á óvart.

Áfangastaður: Dúbaí í Sameinuðu Arabísku furstadæmunum

Borgin Dúbaí er pass­lega glitr­andi og íburð­ar­mikil fyrir ljón. Þar vantar heldur ekki heppi­lega staði fyrir glæsi­legar mynda­tökur, þar sem ljónin geta reigt sig, teygt og hrist makk­ann. Í Dúbaí er líka margt við að vera og upp­lifa. Hitinn hentar ljón­unum afar vel.

Meyja

Meyjur vilja nýta tím­ann í frí­inu til að skoða sig um og upp­lifa allt það sem áfanga­stað­ur­inn hefur upp á að bjóða. Það þarf að vera ein­hver vit­ræn örvun í boði, til að mynda út frá sögu­legu sjón­ar­horni eða í formi spenn­andi arki­tekt­úrs og listar. Meyjur vilja læra eitt­hvað á ferða­lögum sínum. Þar sem þeim hættir þó til að byrja að hegða sér eins og fríið sé í raun vinna, er mik­il­vægt (bæði fyrir þær sjálfar og þá sem standa þeim næst) að hægt sé að finna sér nota­legan stað til að slökkva alveg á sér og slaka á.

Áfangastaður: Barcelona á Spáni

Barcelona er borg sem upp­fyllir öll ofan­greind skil­yrði. Þar er sann­ar­lega nóg við að vera, skoða og læra. Arki­tektúr Gaudí; bygg­ing­arnar, garð­ur­inn honum sam­nefndur, La Sagrada Familia-kirkjan og margt fleira mun svala bæði áhuga og lær­dóms­þorsta meyj­unnar. Svo má finna sér dásam­legan stað til að flat­maga, lesa bók og kæla sig í sjónum við strand­lengj­una.

Vog

Fyrir vogir er yfir­leitt skemmti­leg­ast að ferð­ast til staða sem sam­eina ríka menn­ingu, áhuga­verðan arki­tektúr, fræg kenni­leiti og iðandi mann­líf. Félags­legi þátt­ur­inn er þeim mik­il­vægur og þeim finnst gaman að kynn­ast nýju fólki. Borg sem vekur áhuga þeirra, með ríka sögu menn­ingar og lista, er til­valin.

Áfangastaður: Berlín í Þýskalandi

Berlín á langa og afar áhuga­verða sögu. Þar mæt­ist gam­alt og nýtt á spenn­andi hátt; austrið og vestrið, minjar eftir seinni heims­styrj­öld­ina og margt fleira. Í borg­inni eru ótal staðir sem gaman er að skoða, arki­tektúr sem vekur áhuga, iðandi mann­líf og áhuga­verður suðu­pottur menn­ingar og skemmt­ana­lífs. Allt saman til­valið fyrir ferða­þyrstar og for­vitnar vogir.

Sporðdreki

Sporð­drekar elska óvenju­legri áfanga­staði – staði sem eru ekki endi­lega á topp tíu vin­sælda­listum eða hlutar af pakka­ferðum. Helst vilja sporð­drekar ferð­ast á staði sem vekja áhuga þeirra og for­vitni. Staði þar sem þeim finnst þeir geta rann­sakað eitt­hvað og horfið inn í nýjan heim. Þeir eru ekki smeykir við að prófa nýja hluti þegar kemur að ferða­lögum og kunna mjög vel við að umvefja sig nátt­úru. Þeir mynda til­finn­inga­leg tengsl við staði og þá sem þar búa. Þeir fá inn­blástur úr nátt­úr­unni og efl­ast við að vera nálægt ein­hverju sem þeir upp­lifa kraft­mikið og stærra en þeir sjálfir.

Áfangastaður: Rúanda

Rúanda er afskap­lega spenn­andi og fal­legt land í Afríku. Þetta er til dæmis einn af síð­ustu stöð­unum í heim­inum þar sem hægt er að sjá fjalla­gór­illur í sínu nátt­úru­lega umhverfi. Þarna eru líka virk eld­fjöll, sem rímar vel við huga og sál­ar­líf sporð­dreka. Náttúran er stór­kost­leg og mikið kapp er lagt á að vernda hana. Þjóð­garð­ur­inn Volcanoes National Park er ógleym­an­legur staður. Þarna geta eflaust margir sporð­drekar hugsað sér að láta sig hverfa vikum saman.

Bogmaður

Bogmenn eru án nokk­urs vafa stjörnu­merkið með mesta ferða­þorst­ann. Þeir hrein­lega þríf­ast á ferða­lögum og nýrri upp­lifun. Þeir eru lif­andi, bjart­sýnir og orku­miklir og þurfa á ævin­týrum að halda í líf­inu. Þeir eru sjálf­stæðir og leið­ist hreint ekki að ferð­ast einir; raunar er það drauma­ferða­lagið þeirra, þar sem þeir þurfa ekki að huga að neinum nema þeim sjálfum, geta tekið skyndi­á­kvarð­anir í röðum og eiga kost á að eign­ast nýja félaga á hverjum stað.

Áfangastaður: Taíland

Bogmanni myndi hreint ekki leið­ast að skella sér ein­sam­all í bak­poka­ferða­lag um Taíland. Bog­mönnum þykir skemmti­legt að læra í gegnum ferða­lög og þetta land er full­komið til þess – með ríka sögu, iðandi menn­ingu og ótrú­lega margt til að skoða. Bangkok er afar spenn­andi borg og svo er nátt­úru­feg­urð lands­ins mikil – eyjan Koh Phi Phi er til að mynda ógleym­an­leg og svo eru þjóð­garðar í Taílandi sem myndu gera hvern sem er orð­lausan.

Steingeit

Stein­geitur eiga það til að vera dálítið stífar og fest­ast í hausnum á sér; þær vinna mikið, eru metn­að­ar­gjarnar og ein­beittar. Af þeim ástæðum er mjög mik­il­vægt að ferða­lög hristi dálítið upp í þeim, þær geti slakað á og leyft sér að upp­lifa eitt­hvað sem kveikir í þeim á sama tíma og þær hlaða batt­er­íin fyrir óum­flýj­an­leg, kom­andi átök. Stein­geitur ætl­ast til ákveð­inna þæg­inda og þar sem þær eru sífellt að klífa met­orða­stiga á einn eða annan hátt líta þær á ferða­lög sem visst stöðu­tákn.

Áfangastaður: Hawaii

Strendur Hawaii eru full­komnar fyrir stein­geitur til að ná að slaka almenni­lega á. Það sem Hawaii hefur þó fram yfir marga aðra staði sem hafa fal­legar sól­ar­strendur sem eitt af sínum aðals­merkjum, eru ótal mögu­leikar til að prófa ýmis ný áhuga­mál, íþróttir og úti­vist. Það ætti sann­ar­lega að hrista upp í stein­geit­unum, halda þeim við efnið og koma í veg fyrir að þeim finn­ist þær vera að sóa tíma sínum. Auk þess er Hawaii með mjög ríka sögu og menn­ingu, sem er áhuga­vert að kynna sér og skoða.

Vatnsberi

Vatns­berar vilja upp­götva, skoða og skilja. Vits­muna­leg örvun er nauð­syn­leg fyrir þá og þar eru ferða­lög engin und­an­tekn­ing. Þeir eru dálítið óvenju­legir og óhræddir við að fara í öfuga átt við flesta. Ólíkir menn­ing­ar­heimar og sam­fé­lög vekja áhuga þeirra og fái þeir að ráða, velja þeir helst að ferð­ast á staði sem eru fjar­lægir og ólíkir heima­landi þeirra. Mann­úð­ar­störf, spír­itúal­ismi og rétt­inda­bar­átta sam­fé­laga vekur áhuga þeirra.

Áfangastaður: Amazon-frumskógurinn í Ekvador

Þarna er öruggt að for­vitnir og fróð­leiks­fúsir vatns­berar finni eitt­hvað við sitt hæfi, auk þess að svala ævin­týra­þörf. Í Amazon-frum­skóg­inum geta vatns­berar, með sinn sér­staka og opna huga, kynnst nýjum menn­ing­ar­heimum og sam­fé­lögum manna sem kenna þeim eitt­hvað nýtt. Þeir gætu líka lært um olíu, námu­gröft og skóg­ar­högg, sem er allt meðal þess sem ógnar til­vist frum­skóg­ar­ins og þeim sam­fé­lögum sem þar búa. Margir vatns­berar myndu líka eflaust vilja prófa að fara í heil­un­ar­at­höfn hjá anda­lækni meðal frum­byggja.

Fiskar

Fiskar eru til­finn­inga­ríkir og tengdir nátt­úr­unni. Þeim þykir vænt um jörð­ina og allar þær líf­verur sem þar búa. Það virð­ist ef til vill klisja, en fiskar sækja mikið í áfanga­staði við vatn eða sjó. Það er ekki bara út af hinu aug­ljósa, heldur snertir það líka að fiskar eru vatns­merki. Vegna ástar sinnar á líf­verum og umhverf­inu myndi mörgum fiskum eflaust þykja eft­ir­sókn­ar­vert að taka að sér ein­hvers konar sjálf­boða­liða­störf á ferða­lögum sínum – helst eitt­hvað sem hefur með nátt­úru- eða dýra­vernd að gera. Fiskar eru afar til­finn­inga­næmir og sækj­ast eftir því að kom­ast í sem best sam­band við sitt innra sjálf. Þeir leita gjarnan uppi ein­hvers konar spír­itúal­isma á ferða­lögum sínum.

Áfangastaður: Indland

Hvaða staður er betri til þess að kom­ast í gott sam­band við sitt innra sjálf en fæð­ing­ar­staður jóga? Indland hefur að sjálf­sögðu ótelj­andi áhuga­verða staði til að heim­sækja, allt frá stór­borgum iðandi af lífi til stór­feng­legra stranda í umvefj­andi umhverfi. Það eru allar líkur á að fisk­arnir velji seinni kost­inn, til dæmis í Goa í sunn­an­verðu Indlandi. Í Kerala má síðan finna ótal vötn og ár, sem er ógleym­an­legt að sigla um á hús­báti. Þarna er hægt að njóta dásam­legrar ind­verskrar mat­ar­gerðar og bæði nátt­úran og dýra­líf er stór­kost­legt. Andaman-eyjar eru síðan rús­ínan í pylsu­end­anum fyrir fiska í leit að ströndum, sjó, feg­urð og inn­blæstri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu