Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Helga stígur fram í kjölfar dóms Gísla: „Ótrúlega mikilvægt að fá viðurkenningu á því sem gerðist“

Helga stígur fram í kjölfar dóms Gísla: „Ótrúlega mikilvægt að fá viðurkenningu á því sem gerðist“
Gísli Hauksson

Gísli Hauksson, einn stofn­enda sjóð­stýr­inga­fé­lags­ins GAMMA, var í dag dæmdur í tveggja mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir brot gegn fyrr­ver­andi sam­býl­is­konu sinni, Helgu Kristínu Auð­uns­dóttur, lektor við Háskól­ann á Bifröst. Gísla var auk þess gert að greiða henni hálfa milljón króna í miska­bætur sem og allan sak­ar­kostnað. Málið var tekið fyrir í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur.

Helga Kristín steig fram opin­ber­lega í fyrsta sinn í dag eftir að dóm­ur­inn var kveð­inn upp. Í færslu á Facebook-síðu sinni segir hún frá því ofbeldi sem Gísli beitti hana á heim­ili þeirra árið 2020. Hann var ákærður fyrir að hafa ítrekað tekið hana kverka­taki, skellt henni utan í vegg og gripið um háls hennar svo hún átti erfitt með að ná and­anum.

Fór í Kvennaathvarfið um nóttina

„Það var í maí fyrir tveimur árum sem ráð­ist var á mig á heim­ili mínu og ég flúði ber­fætt með svefn­poka sem ég greip með mér,“ segir Helga Kristín í færsl­unni. Hún seg­ist aldrei hefðu trúað því að hún myndi upp­lifa svo mikla ógn og ofbeldi á heim­ili sínu, af hálfu mann­eskju sem hún treysti. „En í dag veit ég að þol­andi hefur enga stjórn á ákvörðun ann­arra um að beita ofbeldi.“

Helga Kristín er sögð hafa reynt að kom­ast undan Gísla en hann hafi þá farið á eftir henni, gripið um hand­leggi hennar og fleygt henni á rúm. Hún hlaut þónokkra áverka við árás­ina. Hún togn­aði, hlaut ofreynslu á brjóst­hrygg og háls­hrygg, auk tölu­verðra yfir­borðsá­verka á upp­hand­legg, öxl og hálsi.

„Sömu nótt hringdi ég í Kvenna­at­hvarfið og bað nán­ast um núm­er­aðan lista yfir atriði sem ég yrði að gera til að tryggja að ég færi aldrei aftur þarna inn á heim­ilið. Ég fór að þeirra ráðum í einu og öllu sem gaf mér svo mik­il­vægar bjargir vik­urnar á eftir. Þakklæti til þeirra verður alltaf til staðar,“ segir hún í færsl­unni.

Hún segir starfs­menn Kvenna­at­hvarfs­ins hafa ráð­lagt henni að fara á bráða­mót­töku þá um nótt­ina vegna alvar­leika áverk­anna. Þangað fór hún og fékk stað­fest­ingu.

„Það var mér ótrú­lega mik­il­vægt að fá við­ur­kenn­ingu á því sem gerð­ist og við­ur­kenn­ingu á að ég var beitt ofbeldi. Lík­am­legt ofbeldi skilur eftir merki og hefur áhrif á líðan í langan tíma. Það er því gas­lýs­ing á hæsta stigi þegar ger­andi ítrekað neitar sök. Í tvö heil ár. Að hann neit­aði sök í allan þennan tíma gerði líð­an­ina á þessum tíma marg­falt verri.“

Kæruferlið gerði ofbeldisupplifunina verri

Helga Kristín seg­ist hafa ákveðið að kæra ofbeldið dag­inn sem henni fannst hún geta dregið and­ann ofan í lungu og brost með aug­unum. Hún segir ferlið sem tók við hafa verið afar erfitt. „Kæru­ferlið er með því erf­ið­asta sem ég hef upp­lifað og á margan hátt upp­lifði ég eins og kæru­ferlið hjá lög­reglu hafi gert ofbeld­is­upp­lifun­ina verri.“

Hún seg­ist þakk­lát þeim konum sem börð­ust á undan henni fyrir því að skila skömminni. Hún segir það þeim að þakka að hún finni ekki fyrir skömm í dag.

„En mig langar ekki að dvelja í því að þetta var líf­reynsla sem ég bað ekki um og óska engum. Orkuna sem fór í að brotna ekki hefði ég svo gjarnan viljað nýta í eitt­hvað annað,“ segir Helga Kristín.

Játaði loks brotið

Brot af þessu tagi varðar allt að sex ára fang­elsi og krafð­ist Helga Kristín miska­bóta upp á þrjár millj­ónir króna. Dómurinn verður því að telj­ast afar vægur með til­liti til þessa, en sak­sókn­ari í mál­inu lagði til 60 daga skil­orð til refs­ingar eftir að Gísli ját­aði brotið fyrir hér­aðs­dómi fyrir viku síðan. Játn­ingin var talin til mild­unar dóms­ins.

„Í dag lýkur þessu ferli,“ segir Helga Kristín í færslu sinni. „Í dag var ger­and­inn sak­felldur eftir að hafa loks­ins játað brotið. Dómstóll hefur við­ur­kennt ofbeldið sem átti sér stað bak­við luktar dyr í maí 2020. Einu og hálfu ári frá kæru. Tveimur árum frá árás. Léttir­inn við að þessu er lokið er ólýs­an­legur. Það er bjart framundan enda á ég góða að,“ segir hún að lokum.

Gísli starf­aði sem for­stjóri GAMMA og stýrði upp­bygg­ingu félags­ins í bæði New York og London. Hann sagði skilið við fyr­ir­tækið árið 2018. Hann gegndi trún­að­ar­störfum fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn um ára­bil, sat til að mynda í mið­stjórn og var for­maður fjár­mála­ráðs á tíma­bili. Eins og Mannlíf greindi frá voru öll ummerki um störf Gísla fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn horfin stuttu eftir að greint var frá ákærunni í fjöl­miðlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi