Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gísli fjarlægður af vef Sjálfstæðisflokksins í skjóli nætur – Fall gulldrengs flokksins

Gísli fjarlægður af vef Sjálfstæðisflokksins í skjóli nætur – Fall gulldrengs flokksins

Öll ummerki um Gísla Hauksson, annar stofn­enda GAMMA, hafa verið fjar­lægð af vef Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þetta virð­ist hafa gerst í skjóli nætur því hann var fyrir ein­ungis mán­uði skráður sam­visku­sam­lega sem nefnd­ar­maður í mið­stjórn flokks­ins, sem ber ábyrgð á öllu innra starfi flokks­ins. Gísli var auk þess for­maður fjár­mála­ráðs og því ljóst að ítök hans í flokknum voru umtals­verð.

Líkt og greint var frá í morgun þá hefur Gísli verið kærður til lög­regl­u fyr­ir meinta lífs­hætt­u­leg­a árás á fyrr­ver­andi sam­býl­is­konu. Umrætt atvik á að hafa átt sér stað í vor á þá sam­eig­in­legu heim­ili þeirra. Gísli er sak­aður um að hafa tekið kon­una kyrk­ing­ar­taki og þrengt hættu­lega fast að hálsi hennar.

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn reynir að hreinsa sig af tengslum við áhrifa­menna sem síðar eru sak­aðir um gróf brot. Fyrir um tveimur árum þá var nafn barn­a­níð­ings­ins Þor­steins Hall­dórs­sonar fjar­lægt af vef flokks­ins. Hann var dæmdur í sjö ára fang­elsi en Lands­réttur stytti dóm­inn síð­asta vor í fimm og hálfs árs fang­elsi.

Sam­an­borið við Gísla þá var Þor­steinn þó harla áhrifa­maður. Gísli er raunar svo nátengdur flokknum að það hafði áhrif á rekstur GAMMA. Stundin fjall­aði um það í fyrra hvernig GAMMA hafi raunar verið lík­ari áróð­urs­hug­veitu en fyr­ir­tæki undir stjórn Gísla. Allir helstu starfs­menn störf­uðu fyrir flokk­inn og til að mynda veitti fyr­ir­tækið Gísla Frey Val­dórs­syni, sem var dæmdur fyrir Leka­málið, skjól þegar litla vinnu var að finna.

Gísli sat í stjórn SUS á árunum 2001 til 2003. Um ára­tugi síðar tók hann svo við verð­launum, svokölluð frels­is­verð­laun, frá ung­liðum flokks­ins. Það var fyrir hönd hug­veitu Hannesar Hólm­steins Gissu­ar­sonar, sem kall­ast Rann­sókn­ar­setur um nýsköpun og hag­vöxt. Gísli var stoð Hannesar og stytta hvað það varðar.

Í stjórn þess­arar hug­veitu sáttu í fyrra, ásamt Gísla, þegar Stundin fjall­aði um hana: Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­stjórn Reykja­víkur, Jón­mundur Guð­mars­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fyrr­ver­andi starfs­maður GAMMA og núver­andi starfs­maður Kviku, Jónas Sig­ur­geirs­son, bóka­út­gef­andi og fyrr­ver­andi upp­lýs­inga­full­trúi Kaup­þings fyrir efna­hags­hrunið 2008, og Þórður Þór­ar­ins­son, fram­kvæmda­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi