Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jordan Peterson móðgast og yfirgefur Twitter: „Ekki fallegt“

Jordan Peterson móðgast og yfirgefur Twitter: „Ekki fallegt“
Jordan Peterson

Tví­tverjum víðs­vegar um heim­inn var nóg boðið þegar Jordan Peterson, sál­fræð­ingur, fyr­ir­les­ari og rit­höf­undur, gerði lítið úr útliti ungrar fyr­ir­sætu á Twitter-aðgangi sínum.

„Fyr­ir­gef­iði. Ekki fal­legt. Og ekk­ert alræð­is­legt umburð­ar­lyndi kemur til með að breyta því,“ skrif­aði Peterson og birti mynd af for­síðu tíma­rits­ins Sports Ill­u­strated. For­síð­una prýðir fyr­ir­sætan Yumi Nu, klædd í sund­bol. Yumi Nu telst svokölluð „plus size“ fyr­ir­sæta á ensku, eða „stærri“ fyr­ir­sæta ef hægt er að segja slíkt.

Yumi Nu á for­síðu Sports Ill­u­strated.

Yumi Nu, sem er 25 ára, hefur sjálf sagt að það hefði breytt lífi hennar að sjá fyr­ir­mynd sem liti út eins og hún á for­síðu tíma­rits þegar hún var 13 ára. Nu er af asískum upp­runa. „Ef hún hefði séð það áður en hún sá nokkuð annað, þá held ég að hún hefði lifað öðru­vísi lífi með öðru­vísi hug­ar­fari,“ segir Nu um sitt 13 ára sjálf.

Jordan Peterson hefur verið umdeildur í gegnum tíð­ina fyrir skoð­anir sínar. Hann hefur verið ötull tals­maður gegn póli­tískum rétt­trún­aði en gagn­rýnendur hans hafa meðal ann­ars haldið því fram að skoð­anir hans séu lit­aðar kven­fyr­ir­litn­ingu.

Tíst Peterson um fyr­ir­sæt­una.

Peterson fékk á bauk­inn á Twitter eftir skrif sín um Yumi Nu. Þar var ummælum hans meðal ann­ars snúið á hann sjálfan, þar sem fólk birti myndir af honum með sömu skila­boðum og hann skrif­aði um Nu. Þetta er svo sann­ar­lega ekki í fyrsta sinn sem Peterson lendir í net­deilum, en í þetta sinn voru það ekki bara and­stæð­ingar hans sem gagn­rýndu hann, heldur líka aðilar sem telja sig til aðdá­enda.

„Úff. Jordan Peterson. Mikill aðdá­andi hér. Kærastan mín er með lík­ama eins og þennan og mér þykir hún afskap­lega fal­leg. Tónaðu þetta aðeins niður félagi,“ skrifar til dæmis einn fylgj­enda hans á Twitter.

Einn end­ur­birtir tíst Peterson þar sem hann segir: „91 pró­sent þeirra sem horfa á mynd­böndin mín eru karl­menn. Hvers vegna? Hvers vegna svona fáar konur?“ Við hlið tísts­ins birtir aðil­inn ummæli Peterson um Yumi Nu, sem hugs­an­lega skýr­ingu þess að færri konur virð­ist til­heyra áhorf­enda­hópi hans.

Ótal athuga­semdum rigndi inn frá fólki sem velti því fyrir sér hvers vegna Peterson þætti hann hafa til­kall eða leyfi til þess að leggja dóm sinn opin­ber­lega á lík­ama ann­arrar mann­eskju og með því nið­ur­lægja hana frammi fyrir millj­ónum fylgj­enda sinna.

Eftir að Peterson hafði fengið á sig stóran skerf af gagn­rýni og háði á Twitter til­kynnti hann í fússi að hann ætl­aði sér að hætta á miðl­inum, en hann er mjög virkur þar.

„Stans­lausa flóðið af and­styggi­legum móðg­unum er raun­veru­lega eitt­hvað sem þú upp­lifir hvergi ann­ars­staðar,“ sagði Peterson um Twitter þegar hann til­kynnti um yfir­vof­andi brott­hvarf sitt af miðl­inum.

Úr einu af mynd­böndum Peterson á sam­fé­lags­miðlum.

„Regla 13: Þegar þú gerir mis­tök og ert gagn­rýndur, hættu þá í fússi og flýðu af hólmi. Eins og karl­maður,“ skrifar einn not­andi um við­brögð Peterson og vitnar í met­sölu­bók sem hann skrif­aði, sem inni­heldur 12 lífs­reglur búnar til af honum sjálfum.

„Ég kemst ekki yfir þá stað­reynd að Jordan Peterson not­aði millj­óna gjall­ar­hornið sitt til þess að kalla konu í bik­iníi óaðl­að­andi og sagð­ist þremur klukku­stundum síðar ætla að yfir­gefa Twitter, vegna þess að fólk væri svo and­styggi­legt við hann,“ skrifar annar not­andi og ótal fleiri taka í sama streng.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu