Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Beiðni Auggie Duffy um áfrýjun til Hæstaréttar hafnað: „Þetta er auðvitað mikill léttir“

Beiðni Auggie Duffy um áfrýjun til Hæstaréttar hafnað: „Þetta er auðvitað mikill léttir“
Lög­mað­ur­inn er hæsta­rétt­ar­lög­maður

Beiðni manns, sem Lands­réttur sak­felldi fyrir nauðgun í febr­úar síð­ast­liðnum, um að áfrýja mál­inu til Hæsta­réttar, hefur nú verið hafnað. Dómur Lands­réttar, sem hljóðar upp á tveggja og hálfs árs fang­els­is­vist, stendur því. Enn er óvíst hvenær mað­ur­inn hefur afplánun dóms­ins.

Maðurinn sem um ræðir heitir Augustin Dufatanye en er betur þekktur undir nafn­inu Auggie Duffy. Brotið var framið í mars árið 2019 en fjallað er ítar­lega um málið í nýjasta tíma­riti Mannlífs. Þar er einnig rætt við brota­þol­ann, konu sem lýsir nótt­inni hrika­legu þegar stjórnin var tekin af henni, þriggja ára bar­áttu í gegnum rétt­ar­kerfið og loks bið og óvissu á meðan mað­ur­inn sem braut á henni gengur enn laus. Konan gat enga björg sér veitt nótt­ina sem brotið var framið, sökum svefn­drunga og ölv­unar­á­stands.

„Mér var tjáð að þessu væri lokið“

Auggie Duffy áfrýj­aði sak­fell­ing­ar­dómi Hér­aðs­dóms yfir honum en Lands­réttur stað­festi dóm­inn. Þá sendi hann inn beiðni um áfrýjun dóms Lands­réttar til Hæsta­réttar í apríl síð­ast­liðnum.

„Ég komst að því nýlega fyrir slysni að mað­ur­inn væri ekki enn kom­inn í fang­elsi, vegna þess að hann hefði áfrýjað dómnum til Hæsta­réttar,“ segir konan í sam­tali við Mannlíf.

„Þetta var mikið áfall; ég átti ekki von á þessu þar sem mér var tjáð að þessu væri lokið, eftir dóm­inn í Lands­rétti.“

Konan seg­ist hafa eytt síð­ustu vikum í að end­ur­ræsa vef­síðu Hæsta­réttar til að sjá hvort búið væri að úrskurða hvort beiðni Auggie Duffy um áfrýjun hefði verið sam­þykkt. „Í gær kom loks úrskurð­ur­inn. Beiðn­inni var hafnað,“ segir hún. „Þetta eru ekki upp­lýs­ingar sem ég fékk frá yfir­völdum, heldur þurfti ég að leita eftir þeim sjálf.“

Augustin Dufatanye, eða Auggie Duffy.

Gæti seinkað afplánun

Bið brota­þola ætti því fljót­lega að vera á enda. Fang­els­is­mála­stofnun hefur nú fjórar vikur til þess að boða Auggie Duffy í afplánun. Þegar hann fær boð­un­ina getur hann þó sótt um frest vegna per­sónu­legra mála, sem þannig getur seinkað afplánun enn frekar, eða um þrjá mán­uði. Frest­ur­inn er til að mynda hugs­aður fyrir fjöl­skyldu­fólk til þess að það hafi nægan tíma til ráð­staf­ana. Mögu­leik­inn er þrátt fyrir það opinn öllum.

„Þetta er auð­vitað mik­ill léttir og ég upp­lifi þetta sem ákveðin enda­lok, þar sem ég veit núna að ég mun ekki þurfa að fara í rétt­ar­höld í þriðja sinn. Mér líður hins vegar enn ekki eins og ég sé örugg – hann er ekki kom­inn í fang­elsi.“

Engar hömlur á ferðum hans

Konan hefur áður í sam­tali við Mannlíf lýst miklum ótta í tengslum við að mað­ur­inn sem braut á henni gangi laus. Hún hafi til að mynda séð hann fyrir utan vinnu­stað hennar, sem hafi vakið hjá henni sterk ein­kenni áfallastreitu. Hún hafi ekki þorað út af vinnu­staðnum lengi á eftir.

„Það gætu enn verið fjórir mán­uðir þar til hann er kom­inn í fang­elsi. Á meðan hann bíður eru engar hömlur á ferðum hans – hann er frjáls á meðan.“

Auggie Duffy hefur ávallt neitað sök og ekki sýnt iðrun fyrir dómi. Gögn úr eft­ir­lits­mynda­vélum, fram­burður vitna og gögn úr snjall­tækjum þóttu ýta undir trú­verð­ug­leika kon­unnar en draga úr trú­verð­ug­leika hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi