Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Auggie Duffy gengur laus á meðan brotaþoli lifir í ótta: „Hvers vegna verndar kerfið mig ekki?“

Auggie Duffy gengur laus á meðan brotaþoli lifir í ótta: „Hvers vegna verndar kerfið mig ekki?“
Augustin Dufatanye, eða Auggie Duffy.

„Ég ætla ekki að þegja, því þögnin er eina vopn ofbeld­is­manna.“

Þetta segir kona sem varð fyrir nauðgun af hendi manns sem hefur verið sak­felldur fyrir brotið á tveimur dóms­stigum, síð­ast í Lands­rétti í febr­úar síð­ast­liðnum. Maðurinn gengur þó enn frjáls um götur Reykja­víkur. Konan seg­ist finna fyrir stöð­ugum ótta og áhyggjum, ekki síst vegna þeirrar óvissu og upp­lýs­inga­leysis sem kerfið bjóði henni upp á í hennar eigin máli. Hún upp­lifir sig valda­lausa og segir það skelfi­legt fyrir brota­þola að vera ekki aðilar að eigin málum í dóms­kerf­inu.

„Ég er stödd á fundi í vinn­unni þegar ég lít út um glugg­ann og sé mann­inn sem nauðg­aði mér á gangi, frjálsan,“ segir konan. „Hann var dæmdur fyrir úthugs­aða og ofbeld­is­fulla nauðgun. Hann var mér ókunn­ugur.“

Maðurinn gengur enn laus þrátt fyrir að hafa verið dæmdur fyrir alvar­legt kyn­ferð­is­of­beldi sem virð­ist hafa verið framið að yfir­lögðu ráði, á meðan brota­þoli hans þarf að lifa við þann ótta að geta átt von á að mæta honum hvenær sem er.

„Hann var dæmdur fyrir úthugs­aða og ofbeld­is­fulla nauðgun“

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Fang­els­is­mála­stofnun geta ein­stak­lingar sem hafa verið dæmdir í fang­elsi frestað því að taka út fanga­vist sína um nokk­urt skeið, til að mynda með þeim rökum að þeir þurfi að búa um per­sónu­lega hagi sína áður en þeir fara í fang­elsi. Auk þess má fresta refs­ingu með áfrýj­unum, hvort sem grund­völlur er fyrir þeim eða ekki. Það veldur töfum á að afplánun geti haf­ist, hvort sem beiðni um áfrýjun er sam­þykkt eða ekki.

Gengur undir öðru nafni en því sem birt var

Maðurinn sem um ræðir heitir Augustin Dufatanye, en er betur þekktur undir nafn­inu Auggie Duffy. Hann var sak­felldur fyrir nauðgun í maí árið 2021 og dæmdur í tveggja og hálfs árs fang­elsi í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur. Hann var nafn­greindur í dómnum sem Augustin en sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs er það ekki nafnið sem fólk þekkir almennt sem kann­ast við hann.

Samkvæmt dómnum og frá­sögn brota­þola í sam­tali við blaða­mann Mannlífs kemur fram að hann hafi not­fært sér ölv­unar­á­stand hennar og svefn­drunga til þess að brjóta á henni. Konan hafði verið að skemmta sér með vinnu­fé­lögum sínum en orðið við­skila við þá. Þegar hún varð á vegi Auggie Duffy var hún mjög ölvuð. Hún segir hann hafa nýtt sér ástand hennar til þess að koma henni úr mið­bænum og í íbúð sem hann hafði þá til umráða.

Þrátt fyrir að hann hafi haldið því fram í vitn­is­burði sínum að konan hafi gengið sjálf­viljug með honum um 50 mín­útna göngu frá mið­bænum og í íbúð nálægt Kringl­unni, sást það greini­lega á gögnum úr síma hennar að sá fram­burður gat ekki stað­ist. Forrit sem var í gangi í síma hennar sýndi að hún hafði ekki tekið nein skref á þessum tíma, en sýndi hins vegar fram á að hún hefði verið í bíl í um sex mín­útur. Konan seg­ist lík­lega hafa verið mjög vönkuð eða dáin áfeng­is­dauða meðan hann flutti hana með sér í íbúð­ina. Auk þessa var vitað að konan hafði verið klædd í háa hæla þetta kvöld. Hálka var úti og eft­ir­lits­mynda­vélar úr mið­bænum sýna að hún átti í erf­ið­leikum með gang og að klæða sig í yfir­höfn sína.

Konan rank­aði við sér snemma morg­uns dag­inn eftir í ókunn­ugri íbúð­inni, klæða­lítil og ringluð. Hún seg­ist þá hafa klætt sig í snatri og hraðað sér heim með leigu­bíl. Síðar um dag­inn leit­aði hún á neyð­ar­mót­töku þar sem hún gaf hjúkr­un­ar­fræð­ingi stutta frá­sögn sína og sagð­ist telja að brotið hefði verið á henni kyn­ferð­is­lega. Í fram­haldi gekkst hún undir lík­ams­skoðun. Á henni voru áverkar sem studdu grun­semdir um kyn­ferð­is­brot.

Fyrir dómnum þóttu sann­anir fyrir sekt Auggie Duffy í mál­inu hafnar yfir allan vafa. Fram­burður kon­unnar, gögn, áverka­vott­orð og vitn­is­burður sér­fræð­inga studdi það að hann hefði nauðgað henni umrædda nótt. Auk þess var stuðst við upp­tökur úr eft­ir­lits­mynda­vélum, ofan­greind gögn úr snjall­tæki og fram­burð vitna. Sak­born­ing­ur­inn þótti hins vegar ekki sam­kvæmur sér í fram­burði.

Fann fyrir miklum ótta og óvissu

Eftir að dómur hafði verið kveð­inn upp í Hér­aðs­dómi áfrýj­aði Auggie Duffy mál­inu til Lands­réttar. Við tók bið þar sem brota­þoli hans hafði ekki aðgang að neinum upp­lýs­ingum um fram­vindu eða tíma­setn­ingar. Konan starfar í miðbæ Reykja­víkur, sem er svæði sem Auggie Duffy hefur bæði verið búsettur og eytt miklum tíma á í gegnum tíð­ina. Konan lýsir því að hafa fundið fyrir ótta og mik­illi óvissu, vit­andi af ger­anda sínum lausum á götum borg­ar­innar, án þess að hafa neina vit­neskju um það hve lengi ástandið kynni að vara, áður en málið yrði aftur tekið fyrir í Lands­rétti.

Á þessu tíma­bili voru engar hömlur á förum Auggie Duffy. Ekki var fylgst sér­stak­lega með ferðum hans, hann þurfti ekki að bera ökkla­band eða ann­ars konar stað­setn­ing­ar­tæki og vega­bréf var ekki tekið af honum. Hann gat því ferð­ast að vild, en konan seg­ist hafa vit­neskju um að hann hafi farið úr landi um nokkra hríð.

Þann 25. febr­úar síð­ast­lið­inn var dómur kveð­inn upp í Lands­rétti. Frá­vís­un­ar­kröfu ákærða var þar hafnað og dómur Hér­aðs­dóms yfir honum stað­festur. Auggie Duffy skyldi sæta fang­elsi í tvö ár og sex mán­uði, auk þess að greiða allan sak­ar­kostnað og miska­bætur til brota­þola.

Mynd sem Auggie Duffy birti af sjálfum sér fyrir utan Hér­aðs­dóm Reykja­víkur, þegar málið var tekið fyrir.

Þorði ekki heim af skrifstofunni

Konan lýsir miklu áfalli í kjöl­far þess að hafa séð ger­anda sinn á ferli við vinnu­stað hennar. Hún hafi ekki þorað út. „Hvers vegna verndar kerfið mig ekki? Ég er bara að fara í gegnum dag­inn minn, lít svo út um glugg­ann og þar er hann, frjáls maður.“

Þegar konan var nýbúin að lenda í því að sjá hann fyrir utan vinnu­stað­inn skrif­aði hún eft­ir­far­andi orð:

„Ég skelf núna, hjarta mitt slær svo hratt, mér líður eins og það muni líða yfir mig, mér er óglatt, ég er hrædd, ég er reið… Hvers vegna er hann vernd­aður en ekki ég? Ég er að bíða eftir að geta yfir­gefið skrif­stof­una, ég er hrædd við að fara. Hvað ef ég sé hann? Hvað ef ég rekst á hann? Ég þarf að kom­ast í öryggið mitt, heim til fjöl­skyldu minnar, læsa hurð­unum og aldrei fara út.“

„Hvers vegna er hann vernd­aður en ekki ég?“

Hún segir að sér hafi ekki verið boðin nein aðstoð eða stuðn­ingur eftir að dómur Lands­réttar féll. „Ég fæ engar upp­lýs­ingar um fram­vind­una og það hvenær hann komi til með að fara í fang­elsi og taka út sína refs­ingu.“

Konan hafði sam­band við Fang­els­is­mála­stofnun eftir þetta atvik, til þess að reyna að fá ein­hver svör um það hvernig stæði á því að mað­ur­inn væri ekki far­inn í fang­elsi. Hún komst að því að hann væri búinn að sækja um að dómnum verði áfrýjað aftur, til Hæsta­réttar. Umsóknin barst þann 21. apríl síð­ast­lið­inn.

Gætu liðið sex til sjö mánuðir fram að afplánun

Hæsti­réttur hefur tvo mán­uði til þess að taka afstöðu til beiðn­ar­innar og ákveða hvort sam­þykkt verði að áfrýja mál­inu. Ef beiðn­inni er hafnað er dóm­ur­inn sendur áfram til Fang­els­is­mála­stofn­unar sem hefur þá nokkra daga til þess að fara í gegnum gögnin og senda Auggie Duffy síðan bréf þar sem farið er yfir smá­at­riði er varða refsi­vist­ina, hvenær og með hvaða hætti hann skuli mæta til að hefja afplánun sína og fleira. Frá því að hann fær bréfið hefur hann fjórar vikur áður en afplánun hefst. Innan þess­ara fjög­urra vikna getur hann hins vegar óskað eftir að afplánun verði frestað um þrjá mán­uði, svo hann geti búið um hagi sína og per­sónu­leg mál, sem til að mynda er hugsað í tengslum við vinnu eða ef við­kom­andi á börn. Þessi frestur býðst þó öllum, óháð per­sónu­legum högum, og því nýta flestir sér hann. Ef beiðnin er sam­þykkt er ný dag­setn­ing ákveðin fyrir upp­haf afplán­unar. Þetta þýðir að jafn­vel þótt áfrýjun yrði ekki sam­þykkt í til­felli Auggie Duffy, þá gætu samt liðið allt að sex til sjö mán­uðir áður en hann þarf að hefja fanga­vist sína. Á meðan lifir konan sem hann braut á í ótta.

Í sam­tali við blaða­mann lýsir konan miklu óör­yggi vegna allrar óvissunnar í kringum málið. Mál sem er hennar eigið, þar sem hún er brota­þol­inn. Hún hefur engan aðgang að upp­lýs­ingum um dóm hans, hvenær hann hefji afplánun, hve lengi hann í raun og veru sitji inni þegar þar að kemur og hvort hann muni afplána hluta dóms­ins ann­ars­staðar en í hefð­bund­inni fanga­vist, í opnu úrræði.

Konan býr sjálf nálægt Vernd. Þegar hún lýsti yfir áhyggjum sínum af því að Auggie hefði hugs­an­lega kost á að afplána hluta dóms­ins þar var henni sagt að hún þyrfti þá sjálf að hafa sam­band við yfir­völd og óska eftir því að hann fengi ekki að dvelja á Vernd. Það gerði hún.

Konan lýsir því sem mik­illi brota­löm á kerf­inu hve lít­inn stuðn­ing brota­þolar í málum sem þessum fái. Henni hafi ekki verið boð­inn neinn stuðn­ingur eða áfalla­hjálp eftir að dómur var kveð­inn upp, engin aðgerð­ar­á­ætlun hafi verið henni aðgengi­leg og engin sál­fræði­með­ferð í boði. „Öllu sem ég hef kom­ist að hef ég þurft að bera mig eftir og kom­ast að á eigin spýtur. Það hefur valdið mér kvíða og áhyggjum af sjálfri mér og fjöl­skyldu minni. Ef við brota­þolar fengjum ein­hvers konar aðgerð­ar­á­ætlun og stuðn­ing, með reglu­legri eft­ir­fylgni, myndi það hjálpa mikið til við bata okkar, vernd og fram­tíð­ar­horfur.“

Virðist ekki einsdæmi

Und­an­farið hafa fleiri sögur komið fram um Auggie Duffy á sam­fé­lags­miðlum. Þar virð­ist blasa við ákveðið munstur kyn­ferð­is­legrar áreitni, kyn­ferð­is­of­beldis og almennrar ámæl­is­verðrar hegð­unar í garð kvenna. Af þeim frá­sögnum að dæma er mál þess brota­þola sem hér er fjallað um langt frá því að vera eins­dæmi. Út frá því má ætla að mað­ur­inn sé sann­ar­lega hættu­legur nærum­hverfi sínu.

Þess ber að geta að Fang­els­is­mála­stofnun hefur upp að vissu marki vald til þess að ákvarða hversu fljótt ein­stak­lingar þurfa að hefja afplánun sína, til að mynda ef almanna­hags­munir mæla með því eða ef þeir eru grun­aðir um að hafa framið refsi­verðan verknað á ný.

Á næst­unni mun Mannlíf birta ítar­legri grein um mál Auggie Duffy, við­tal við brota­þola í ofan­greindu máli sem og vitn­is­burði fleiri meinta brota­þola hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð