Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Harmleikurinn á Óshlíðarvegi – Bilun í stýri, föst bremsa og efasemdir aðstandenda

Harmleikurinn á Óshlíðarvegi – Bilun í stýri, föst bremsa og efasemdir aðstandenda

„19 ára gam­all piltur af Barða­strönd lézt í bílslysi aðfara­nótt sunnu­dags­ins. Hann var far­þegi í bíl, sem fór út af Óshlíð­ar­vegi í blind­beygju.“

Svo hefst frétt í Vísi, mánu­dag­inn 24. sept­em­ber árið 1973. Ungi mað­ur­inn sem lést þessa nótt hét Kristinn Haukur Jóhann­es­son. Hann var á leið­inni frá Bol­ung­ar­vík til Ísa­fjarðar með tveimur félögum sínum, eins og segir í frétt Vísis.

Í frétt­inni segir að þegar bíll­inn hafi komið í blind­beygj­una á Óshlíð­ar­veg­inum hafi hann farið út af. Bíllinn valt þá niður 60 til 70 metra langa snar­bratta grjót­skriðu og stað­næmd­ist ekki fyrr en í flæð­ar­mál­inu.

Slysið varð eftir dansleik

„Pilt­ur­inn sem lézt, kastað­ist út úr bílnum á miðri leið niður skrið­una. Félagar hans tveir slös­uð­ust lít­il­lega. Þeim tókst að kom­ast upp á veg­inn aftur og til­kynna slysið til lög­regl­unnar á Ísafirði,“ segir í frétt Vísis. Sá sem ók bílnum þessa nótt var ungur maður, en hinn far­þeg­inn ung kona. Samkvæmt fréttum höfðu þau borist með bílnum niður snar­bratta hlíð­ina alveg niður í fjöru og gekk erf­ið­lega að klifra upp hana. Þau til­kynntu síðan um slysið frá Hnífsdal.

Slysið varð á milli klukkan 5 og 6 um morg­un­inn. Bif­reið­inni, sem var raunar leigu­bif­reið, hafði verið ekið til Bol­ung­ar­víkur eftir dans­leik í Hnífsdal og var á leið til Ísa­fjarðar þegar hún lenti utan vegar.

Kristinn Haukur Jóhann­es­son var frá Innri-Miðhlíð á Barða­strönd en hafði verið í vinnu á Bol­ung­ar­vík. Hann fædd­ist árið 1954 og kjör­for­eldrar hans voru þau Jóhannes Hjálmar Sveins­son, bóndi í Miðhlíð innri og Anna Soffía Öss­ur­ar­dóttir Thorodd­sen.

Kristinn Haukur Jóhann­es­son

Tvö slösuðust lítið – stýrið ekki í sambandi

Leigu­bíl­stjór­ann og ungu kon­una sak­aði lítið sem ekk­ert. „Leigubílstjórinn, sem er þaul­vanur bíl­stjóri, seg­ist álíta, að annað fram­hjólið á bílnum hafi festst af ein­hverjum sökum og bíll­inn við það henzt út í kant­inn, stoppað þar augna­blik, en oltið síðan um, við það að far­þeg­arnir köstuð­ust út í hlið­ina,“ segir í frétt Tímans um málið.

Á mið­viku­deg­inum eftir slysið birt­ist frétt í Vísi þar sem sagði eft­ir­far­andi:

„Stýrið á bílnum sem fór út af Óshlíð­ar­vegi á sunnu­dag­inn, var úr sam­bandi. Þegar farið var að skoða bíl­inn, kom þetta í ljós. Aftur á móti mun ekki vera hægt að segja með fullri vissu, hvort það hafi verið bilun í stýri, sem olli því, að bíll­inn fór út af.

Ökumaður bílsins er leigubílstjóri og hefur ekið þennan veg í mörg ár. Ekki hefur enn verið hægt að yfir­heyra hann til hlítar vegna taugaáfalls, sem hann hlaut.“

Föst bremsa og efasemdir

Í frétt Vísis segir að Kristinn hafi ekki verið spenntur í örygg­is­belti, né heldur öku­mað­ur­inn eða unga konan sem einnig var far­þegi. Talið var að Kristinn hefði kast­ast út úr bílnum um mið­bik hlíð­ar­innar og lent undir bílnum. Hann hafi senni­lega lát­ist sam­stundis.

Síðar kom einnig fram að hugs­an­lega hefði bremsan í bílnum festst með þeim afleið­ingum að bíll­inn lenti út af veg­inum.

Samkvæmt heim­ildum hafði fjöl­skylda Kristins alltaf efa­semdir um atburð­inn sem olli dauða hans og nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar á sínum tíma. Þeim hafi til að mynda fund­ist bíll­inn of heil­legur til þess að rök­rætt væri að hann hefði oltið niður hlíð­ina með þeim hætti sem hinir aðil­arnir tveir lýstu.

Rannsókn tekin upp að nýju

Nú, þegar 49 ár eru liðin frá slys­inu, hafa orðið nýjar vend­ingar í mál­inu. Aðstand­endur Kristins fóru þess á leit við yfir­völd að rann­sókn máls­ins verði tekin upp að nýju. Það var sam­þykkt með dóms­úr­skurði og fyrir helgi voru jarð­neskar leifar Kristins grafnar upp í þeim til­gangi að varpa ljósi á það með hvaða hætti hann lést fyrir tæp­lega hálfri öld. Rétt­ar­læknir mun reyna að greina áverk­ana og skera úr um það hvort þeir hafi raun­veru­lega hlot­ist í bílslysi, eða hugs­an­lega með ein­hverjum öðrum hætti.

Lög­reglu­stjór­inn á Vest­fjörðum sagði í sam­tali við RÚV að enn hefði eng­inn verið yfir­heyrður í tengslum við málið, en vildi ekki tjá sig að öðru leyti. Í til­kynn­ingu vegna máls­ins segir að þrátt fyrir að langur tími sé lið­inn frá atburð­inum séu taldar líkur á að hægt verði að upp­lýsa nánar um til­drög and­láts Kristins. Ekki er vitað hve langan tíma rann­sóknin muni taka.

Bílstjórinn ósáttur vegna rannsóknar

Blaða­maður Mannlífs hafði sam­band við leigu­bíl­stjór­ann sem ók bif­reið­inni þessa örlaga­ríku nótt. Hann er á níræð­is­aldri og búsettur á Ísafirði. Hann var ósáttur með að taka ætti rann­sókn­ina upp að nýju.

„Þá er sem­sagt verið að ýja að því að þetta hafi verið morð,“ sagði hann í sam­tali við blaða­mann. „Þetta er bara bull. Það er verið að búa til eftir 50 ár glæpa­mál úr því sem er löngu búið að fara í gegnum. Þetta er furðu­legt.“

Aðspurður hvort hann gæti sagt blaða­manni eitt­hvað um atburði þess­arar nætur og það hvernig hann myndi eftir slys­inu og til­drögum þess var hann ómyrkur í máli:

„Nei, ég hef annað að gera en að standa í svona fávita­hætti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi