Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökumaðurinn bílsins sem hinn látni var í: „Ég hef annað að gera en að standa í svona fávitahætti“

Ökumaður leigu­bifreiðar sem fór út af Óshlíðar­vegi fyrir 49 árum síðan, með þeim afleiðingum að ungur maður lét lífið, segir það fráleitt að skoða eigi málið að nýju, í samtali við Mannlíf í morgun. Maðurinn er á níræðis­aldri og búsettur á Ísafirði.

Fyrir helgi gróf lögreglan á Vestfjörðum upp líkams­leifar ungs manns sem lést í umferðar­slysinu við Óshlíðarveg á Bolungarvík árið 1973. Rannsaka á hvort andlátið hafi borið að með öðrum hætti en áður var talið. Fjöl­skylda mannsins er sögð aldrei hafa fyllilega sætt sig við skýringar á slysinu og andláti mannsins, sem hét Kristinn Haukur Jóhannesson.

Kristinn Haukur Jóhann­es­son

Segir ýjað að morði

Aðspurður hvað honum finnist um að verið sé að skoða málið að nýju segir maðurinn sem ók bílnum þegar slysið varð að sér þyki það furðulegt. „Svona mál hljóta að vera glæpamál. Þetta er einsdæmi í sögunni og aðeins gert í glæpa­málum. Þá er semsagt verið að ýja að því að þetta hafi verið morð,“ segir hann í samtali við blaðamann Mannlífs. „Þetta er furðulegt fyrirbæri.“

Maðurinn segir að sér þyki það „fyrir neðan allar hellur“ að málið sé nú skoðað á nýjan leik, með því að grafa upp manninn sem lést fyrir 49 árum síðan.

„Þetta er eitthvað einkamál lögreglu­stjóra hér,“ segir hann. Aðspurður hvað hann eigi við svarar hann: „Hver heimilaði þetta?“

Hann segir fleiri hafa komið að málinu en að ekki hafi verið haft samband við nokkurn mann vegna þess.

„Verið að búa til glæpamál“

Þegar blaða­maður spyr manninn hvort hann geti sagt frá því hvernig slysið átti sér stað vísar hann í skýrslur um málið. „Ég hef annað að gera en að standa í svona vitleysu.“

Hann segir enga kosti fólgna í því að skoða málið að nýju. „Þetta er bara bull. Það er verið að búa til eftir 50 ár glæpamál úr því sem er löngu búið að fara í gegnum. Þetta er furðulegt.“

Aðspurður hvort hann vilji ekkert segja nánar frá atburðinum og tildrögum slyssins þvertekur maðurinn fyrir það. „Nei, ég hef annað að gera en að standa í svona fávita­hætti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá