Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Siggi Björns trúbador: „Sex tímar þar til varðskip náði að koma vír á milli“

Siggi Björns trúbador: „Sex tímar þar til varðskip náði að koma vír á milli“

Siggi Björns. Trúbador. Tón­list­ar­maður. Tog­ara­sjó­maður að vestan.

„Upp úr 1977 fór ég að fara á neta­ver­tíðar. 1975/1976 fór ég á Pat­reks­fjörð. Tálkna­fjörð. Ég fór frægan túr rétt fyrir jól með Sæla. Við sölt­uðum olíu­lausir ein­hvers staðar á 30 míl­unum í kol­vit­lausu veðri með fullan bát af fiski. Báturinn var eins og tappa­tog­ari. Hann kom beint frá Danmörku eftir vél­ar­skipti og tank­sý­stemið í honum, olíu­tank­arnir, var eitt­hvað öðru­vísi heldur en áður; það bara bara fyllt upp í helm­ing­inn. Við héldum hann vera fullan.“ Svo drapst á öllu. „Og við vorum á reki í kol­vit­lausu veðri. Ég held það hafi verið um sex tímar þar til varð­skip náði að koma vír á milli,“ segir Siggi Björns í við­tali við Reyni Trausta­son.

Svo var ykkur dröslað í land.

Síðan var farið í sigl­ingu til Grimsby rétt fyrir jól. „Það tók tvo daga að kom­ast úr úr höfn­inni aftur. Það vant­aði alltaf ein­hvern um borð þegar átti að fara.“

Hin vota gröf

Siggi Björns fædd­ist árið 1955 á Flateyri og þar ólst hann upp.

Hann segir að kinn­ung­ur­inn af Mumma hafi legið á bryggj­unni.

Hann var níu ára þegar Mummi og Snæ­fellið frá Flateyri sukku árið 1964. „Ég man það eins og það hefði gerst í gær. Ég man eftir stemmn­ing­unni,“ segir Siggi og seg­ist hafa farið niður á bryggju um nótt­ina þar sem um nótt­ina þar sem brak hafi komið á land; hann segir að kinn­ung­ur­inn af Mumma hafi legið á bryggj­unni. „Ég þekkti alla. Þetta voru hetjur manns. Þegar ég var 12 ára voru hetj­urnar ekki popp­arar, gít­ar­leik­arar eða leik­arar. Það voru þessir karlar. Maður var alltaf niðri á bryggju þegar þeir komu í land. Þetta voru hetj­urnar. Hannes Óli, Benni og Hringur Hjör­leifs. Hetj­urnar gerð­ust ekki stærri. Haraldur Olgeirs­son, frændi minn. Þannig að maður þekkti alla þessa menn. Og þetta voru fyr­ir­myndir og maður horfði upp til þeirra svipað og maður sæi ein­hverjar popp­stjörnur í dag bara við hlið­ina á sér í sundi. Þetta voru hetj­urnar. Ég man eftir öllum þessum mönnum.

Svo 1967 fer Freyja úr Súðavík með kærasta Kiddýjar systur og stjúppabbi hans. Það var á hverju ári sem fórst bátur.“

Þetta er breytt núna.

„Þetta er við­horfs­breyt­ing og vit­neskja um örygg­is­mál.“

Danskurinn

Siggi lenti í óhappi þegar hann 10 ára. Og það var farið að kalla hann „danskinn“ í kjöl­farið.

Ég held það hafi blætt inn á heil­ann.

„Við vorum að grýta máva og ég fékk einn hnull­ung í haus­inn. Ég held það hafi blætt inn á heil­ann. Ég lá fyrst í tvær vikur á sjúkra­hús­inu heima og fór svo á Land­spít­al­ann og þar kom í ljós að það voru blæð­ingar í gangi og ég var strax settur í flug­vél.“ Leiðin lá til Dan­merkur. „Þar sýndi mynda­taka að þetta hafði gengið til baka að hluta til. Þar var verið að pæla í að skera eða ekki sem var mjög áhættu­samt á þessum tíma. Þetta með danska nafnið; menn voru ekk­ert sigldir á þessum tíma.“

Þú varst eini púk­inn á eyr­inni sem hafði komið til útlanda.

„Já.“

Sagan segir að nafnið hafi komið til þegar maður nokkur sagði að nú kæmi strák­ur­inn heim með danskan heila af því að það væri búið að skipta um heila í honum.

„Þeir gleyptu þetta sumir; þetta nafn kom upp úr því: Dansk­ur­inn.“

Beitningaskúrinn

Siggi var far­inn að vinna í beitn­ingum 13 ára gam­all.

„Ég og vinur minn frá Flateyri skiptum með okkur átta bölum. Þetta var 1969. Ég man að þeir voru hel­víti langir fyrstu dag­arnir og svo man ég að þetta var sum­arið þegar Hey Jude kom fyrst í útvarpið. Það er myndin sem ég á frá þessu sumri.“

Það var ákveð­inn kúltúr í beitn­inga­skúr­unum. Þetta voru mestu kjaftama­sk­ínur þorps­ins; ef fólk ætl­aði að frétta eitt­hvað þá þurfti það að fara í beitn­inga­skúr­inn.

„Þarna voru búnar til fréttir og allt saman. Þarna var hægt að ríf­ast án ábyrgðar. Það var sagt í gamla daga þegar maður sagði eitt­hvað bull „þetta er eitt­hvað skúra­kjaftæði“. Sumt af því sem á að heita sam­skipti á Facebook og net­miðl­unum væri ekki einu sinni hæft í skúr­unum. Þetta er komið langt yfir það.“

Þarna er átt við nettröllin.

Ég man eftir sjó­slys­inu 1968 í Ísa­fjarð­ar­djúpi þegar Ross Cleveland fórst.

Siggi segir að beitn­inga­að­staðan á Flateyri hafi lengi verið með ein­dæmum góð. „Hún var miklu betri en á öðrum stöðum. Það var viss menn­ing í kringum það. Til dæmis var alltaf skák­borð. Það var teflt. Jafnvel fjar­tefli. Menn komu aðeins frá bal­anum og kíktu.“

Og héldu svo áfram að beita.

„Ég man eftir sjó­slys­inu 1968 í Ísa­fjarð­ar­djúpi þegar Ross Cleveland fórst. Þá var ég fram á kvöld í beitn­inga­skúrnum. Þá var hlustað á báta­bylgj­una; þá var útvarp í fremsta skúrnum. Það var fullt af körlum þar. Og ég fékk að vera langt fram á kvöld til að fylgj­ast með þessu. Þetta fór allt fram í beinni; þessi slagur inni á djúpi.“

Siggi Björns segir að þessi beitn­inga­skúra­menn­ing hafi verið sér­stök.

Verbúðaflakk

Hann var 18 ára þegar vinur hans féll milli báts og bryggju í Ólafsvík. „Það var þá reiknað með að það væru svo og svo margir karlar á ári. Ótrúlegt alveg.“ Hann segir það hafa verið til­viljun hverjir lifðu af og hverjir ekki.“

Hann vann í tré­smiðju í eitt ár. Flaskan var farin að heilla. Svo byrj­aði ver­búð­ar­flæk­ing­ur­inn.

Þú varst nátt­úr­lega svað­blautur.

„Það kom fyrir,“ segir Siggi Björns og hlær.

Þú reyndir oft að hætta og svo bara allt í einu tókst það.

Margar með­ferðir í tvö og hálft ár.

„Upp úr 1980 fór ég að reyna. Það tók tvö og hálft ár að ná því. Margar með­ferðir í tvö og hálft ár. Þá var ég búinn að vera árinu á undan á ver­búða­flakki; ég var á ver­tíðum – kom kannski heim um sumar og stundum spil­aði ég með strák­unum og stundum ekki.“

Hann er að tala um hljóm­sveit­ina Æfingu frá Flateyri.

„Svo var ég á ver­tíðum á vet­urna; stundum á tveimur stöðum yfir vet­ur­inn.“

Nei, það var ekki auð­velt að snúa baki við Bakkusi. „Það voru tvö og hálft ár í hel­víti með að reyna það. Svo gerð­ist það. Það kom inn hug­mynd hjá mér sein­ast í með­ferð að ég væri í þeim hópi sem mögu­lega ætti séns. Svo ein­hvern veg­inn small það.“

Jú, það var þetta ver­búða­flakk. „Það var spenn­andi í byrjun og svo varð alltaf lægra og lægra á því risið.“ Siggi talar um ver­búð á Höfn í Horna­firði. „Ég átti ekki fyrir fari út á flug­völl þegar ég var búinn með ver­tíð­ina.“ Hann segir þar hafa verið flott­ustu ver­búð lands­ins. „Ég var einn í her­bergi.“ Þar voru um 90 manns og megnið stelpur. „Það var ekki hægt að biðja um betra. Það var rosa fín aðstaða.“

Miklar tekjur

Hann beitti.

„Ég fór svo á rek­netið; fór svo á rek. Við vorum með hæstu bátum; var á Þóri. Kom um haustið til að beita á bát sem hét Jakob. Það var brasút­gerð og ég end­aði sem afleys­inga­maður um borð í Stein­unni uppi á Ólafsvík hjá Leifi og svo á Þóri. Beitning og svo netin. Ég átti ekki krónu eftir þegar kom að vori.“

Siggi var búinn að vera víða á þvæl­ingi þegar hann fór á Gylli.

„Já, ég var orð­inn edrú þegar ég fór á Gylli. Ég kom vestur á móti öllum ráðum. Ætlaði að vera í tvo mán­uði bara í beitn­ingu og svo var það fínt og ég hélt áfram að vera þar. Ég kom vestur af því að það vant­aði mann á Ásgeir Torfason í tvo mán­uði. Ég var þar til 1988/1989 þegar ég fatt­aði að það væri hægt að lifa af að spila þessi grip sem ég kann.“

Hvað Man Siggi Björns helst frá þessum árum á rauða og hvíta skip­inu; Gylli?

„Ég man að ég þótt­ist vera mjög hepp­inn þegar ég fékk pláss þarna um borð.“

Já, þetta eru miklar tekjur.

Maður labb­aði inn í apparat sem virk­aði.

„Já, þetta voru miklar tekjur og kjarn­inn af mann­skapnum var búinn að vera lengi. Maður labb­aði inn í apparat sem virk­aði. Mér var tekið strax. Það var eng­inn aðlög­un­ar­tími sem ég þurfti. Ég þekkti flesta, var búinn að þekkja þá alla ævi og þekkti í sumum til­fellum pabba og mömmur og afa og ömmur.“

Siggi segir að hann væri senni­lega enn um borð ef hann hefði ekki farið í þetta gítaræv­in­týri.

Slatti af plötum

Saknar Siggi Björns þess ekk­ert að vera ekki á sjó?

„Það kom fyrir fyrstu árin en það voru mjög stutt móment.“

Hann seg­ist þrisvar hafa farið í kringum hnött­inn og endað í Danmörku og síðan er hann búinn að lifa af þessu. „Þetta“ er mús­íkin.

Hann byrj­aði snemma í mús­ík­inni.

Það kom meira að segja fyrir að maður spil­aði á balli án þess að muna eftir því dag­inn eftir.

Og hann talar um partíin áður en hann hætti að drekka. „Maður er ekki eins lengi í partíum eins og áður. Maður var alltaf síð­astur og vakn­aði stundum í partí­inu þegar næsta partí var að byrja. Það kom fyrir.“

Það var rokk og ról.

„Það kom meira að segja fyrir að maður spil­aði á balli án þess að muna eftir því dag­inn eftir.“

Jú, Sigga lang­aði að vita hvernig hann gæti lifað af þessu í eitt eða tvö ár. „Bara prófa eitt­hvað nýtt og þá hugs­aði ég með mér að ef ég gerði þetta í eitt eða tvö ár og það gengi upp þá gæti ég komið heim aftur og þá væri ég með ein­hverja reynslu sem hinir væru ekki með. Svo er það þannig að maður gefur ein­hverju séns og þá gefa aðrir manni séns. Ég gerði ekk­ert einn. Það kom fullt af fólki að þessu,“ segir hann og nefnir nokkur nöfn. „Því jákvæð­ari sem ég er og gef hlut­unum séns því fleiri gefa sama hlut séns. Kannski ekki alveg eins og maður hugs­aði sér en það lendir ein­hvern veg­inn í sínu fari.“

Ég held þær séu átta með eigið efni og svo í sam­starfi við aðra líka.

Siggi seg­ist vera búinn að gefa út slatta af plötum. „Ég veit ekki hvað þær eru margar. Ég held þær séu sex eða sjö með eigið efni og svo annað sem er stað­bundið eða með blönd­uðu efni eða gömlum bæði „live“ upp­tökum og öðru. Ég held þær séu átta með eigið efni og svo í sam­starfi við aðra líka. Í Danmörku og Þýska­landi. Þannig að það er búinn að koma slatti út.“

Siggi Björns og Fransizka, eig­in­kona hans, við æfingar fyrir tón­leika.

Hann segir að á síð­ustu plöt­unni sé lag með texta sem varð til eftir að hann og vin­kona hans horfðu á útsend­ingu BBC. „Það voru tón­leikar, sögu­st­und, um slysin 1968. Það voru þrír tog­arar sem fóru á 10 dögum frá Hull. 58 menn. Einn komst af.“ Hann talar um kon­urnar sem risu upp í Hull, rott­uðu sig saman og fóru allt leið til London og heimt­uðu betri örygg­is­mál fyrir sjó­menn.

Textinn er á ensku. „Það hreyfði við manni aftur og maður fór til baka; hvaða bátar fóru niður? Svan­ur­inn, Freyjan, Mumminn og Snæ­fellið; enda­laust bátar sem voru að fara á hverjum vetri.“

Bölvaði svo fallega

Hvert er besta lagið hans?

„Það eru tvö sem ég held dálítið upp á í augna­blik­inu. Annað er Lost at Sea; það er um sjó­slysin. Svo er það Storm­ur­inn. „Það er um hel­vítis veð­ur­frétta­mann­inn. Ég gerði það fyrir vísna­söngv­ar­túr um Norð­ur­löndin með Svía, Norð­manni og Dana og þurftum við að spila lög á okkar eigin tungu­máli. Ég var ekki með neitt lag sem hljóm­aði eins og vísna­söngur og ákvað að gera dálítið grín að vísna­söngv­urum. Ég gerði lag – meló­díu – sem hljóm­aði eins og grín að vísna­söng og það er mikið af blóts­yrðum í lag­inu. Ég byggði þar á karli sem ég var með á sjó frá Höfn í Horna­firði og á ver­búð sem hét Guð­mundur. Ég hef aldrei heyrt mann fyrr eða síðar bölva svona fal­lega. Hann gat bölvað í tvær mín­útur án þess að draga and­ann og aldrei nota sama orðið tvisvar. Og allt á íslensku. Hann not­aði aldrei töku­orð. Og hann náði sér aldrei betur á strik heldur en þegar veð­ur­frétt­irnar í sjón­varp­inu voru.“

Siggi Björns býr í Berlín. „Þegar ég kem út aftur verðum við með tvenna tón­leika.“ Það er dúett. Svo kemur sonur hans fram með dúett­inum á seinni tón­leik­unum; spilar á slag­verk. Svo verður pakkað niður og haldið til Bornholm en þar hefur Siggi spilað í 32 sumur. Þetta verður því 33. sum­arið hans þar.

Verður hann einn að spila þar?

„Ég tek oft gesti með mér. Það koma tón­list­ar­menn í heim­sókn.“

Hann segir fyrstu kvöldin vera upp­bókuð. Og haustið er bókað. „Þetta ár er farið og næsta ár meira og minna líka.“

Verða næstu ár svona?

„Ég vona það. Þetta er spurn­ing um hug­ar­far og heilsu og hversu lengi maður heldur þetta út.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag