Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sýning til heiðurs Guðjóni Arnari Kristjánssyni: Einn aflasælasti togaraskipstjóri landsins

Sýning til heiðurs Guðjóni Arnari Kristjánssyni: Einn aflasælasti togaraskipstjóri landsins
Guðjón Arnar Krist­jáns­son, heit­inn.

Guðjón Arnar Krist­jáns­son, fyrr­ver­andi alþing­is­maður og for­maður Frjáls­lynda flokks­ins, lést á 74. ald­ursári árið 2018. Guðjón Arnar Krist­jáns­son var fæddur á Ísafirði 5. júlí 1944. Guðjón Arnar lauk stýri­manna­námi á Ísafirði 1965 og fiski­manna­prófi frá Stýri­manna­skól­anum í Reykja­vík ári síðar. Hann hóf ungur sjó­mennsku, var háseti, mat­sveinn og vél­stjóri frá 15 ára aldri en síðar stýri­maður og skip­stjóri, allt fram til 1997.

Sýning til heiðurs Guðjóni

Sýning til heið­urs Guðjóni hefur verið sett upp á Ísafirði. Sýningin spannar langan feril Guðjóns og er hægt að skoða muni sem komu við í hans sjó­manns­lífi. Mannlíf fór á stúf­ana og fékk að verða vitni af því þegar hringt var inn í sýn­ing­ar­skál­ann.

Bernhard Överby var lengi stýri­maður hjá Guðjóni Arnari. Mynd tekin á sýn­ingu til heið­urs Guðjóni Arnari Krist­jáns­syni á Ísafirði í júní 2022. Ljós­mynd­ari: Þor­steinn Trausta­son.
Mynd tekin á sýn­ingu til heið­urs Guðjóni Arnari Krist­jáns­syni á Ísafirði í júní 2022. Ljós­mynd­ari: Þor­steinn Trausta­son.

Ungur til forystu og skrifaði mikið í blöðin

Guðjón Arnar vald­ist ungur til for­ystu í félögum stéttar sinnar, var for­maður Skip­stjóra- og stýri­mann­fé­lags­ins Bylgj­unnar 1975–1984 og for­seti Farmanna- og fiski­manna­sam­bands Íslands 1983–1999. Jafn­framt átti hann sæti í ýmsum nefndum og ráðum, svo sem Verð­lags­ráði sjáv­ar­út­vegs­ins og Starfs­greina­ráði sjáv­ar­út­vegs­ins. Hann sat í stjórn Fisk­veiða­sjóðs, í skóla­nefnd Stýri­manna­skól­ans í Reykja­vík, í stjórn Fiski­fé­lags Íslands og í stjórn Slysa­varna­skóla sjó­manna og var um tíma vara­fiski­mála­stjóri. Hann skrif­aði ávallt mikið í blöð um mál­efni sjáv­ar­út­vegs og sjó­manna sér­stak­lega.

Jafn­framt for­ystu­störfum í sam­tökum sjó­manna tók Guðjón Arnar þátt í stjórn­málum og sat á Alþingi sjö sinnum sem vara­maður fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn á árunum 1991–1995. En vegna ágrein­ings um sjáv­ar­út­vegs­mál sagði hann skilið við flokk sinn og stofn­aði með öðrum Frjáls­lynda flokk­inn og var kos­inn þing­maður hans 1999, fyrst fyrir Vest­fjarða­kjör­dæmi en síðar Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann sat á Alþingi í tíu ár sem aðal­maður, fram til 2009, en sam­tals á 18 þingum ef allt er talið. Hann var for­maður Frjáls­lynda flokks­ins 2003–2010. Hann átti lengst af þing­fer­ils síns sæti í sjáv­ar­út­vegs- eða sam­göngu­nefnd, en einnig var hann um tíma í fjár­laga­nefnd og tók þátt í störfum Vest­nor­ræna ráðs­ins síð­ustu ár sín hér.

Heilsteyptur og drengskaparmaður

Guðjón Arnar sýndi snemma af sér dugnað og áræðni, varð einn afla­sæl­asti tog­ara­skip­stjóri lands­ins og þekktur fyrir hreysti og kapp­semi um borð í skipum sínum. Hann hafði ánægju af félags­störfum og var ungur val­inn til for­ystu í sam­tökum sjó­manna. Hann stóð vörð um rétt­indi þeirra á tals­verðum breyt­inga­tímum við upp­töku kvóta­kerfis. Á það kerfi var hann gagn­rýn­inn og það leiddi hann öðru fremur til virkra stjórn­mála­starfa. Það mun­aði um Guðjón Arnar hér í þing­inu. Hann var fastur fyrir, sér­lega tal­naglöggur og setti sig vel inn í mál. En tog­ara­skip­stjór­inn reynd­ist ljúfur í sam­skiptum, glað­lyndur og fús til sátta og því ein­stak­lega þægi­legur að vinna með. Hann var heil­steyptur maður og dreng­skap­ar­maður sem jafnan lagði góðum málum lið.

Mynd tekin á sýn­ingu til heið­urs Guðjóni Arnari Krist­jáns­syni á Ísafirði í júní 2022. Kristján Andri Guð­jóns­son, sonur kappans, og Jóna Símona Bjarna­dóttir safna­stjóri, Ljós­mynd­ari: Þor­steinn Trausta­son.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil