Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hjónin fóru áður þá leið sem Landspítali bendir á: „Fjöldi innskráninga höfðu verið þurrkaðar út“

Hjónin fóru áður þá leið sem Landspítali bendir á: „Fjöldi innskráninga höfðu verið þurrkaðar út“
Gunnar Árnason og Hlédís Sveins­dóttir

„Það sem er sér­stak­lega athygl­is­vert er að við erum búin að fara þessa leið sem sjúkra­húsið leggur til. Við gerðum það árið 2015,“ segir Gunnar Árnason, vegna bréfs sem hann og Hlédís, eig­in­kona hans, fengu frá lög­fræð­ingi Land­spít­ala, þar sem þeim var hótað lög­sókn fyrir að setja sig í sam­band við heil­brigð­is­starfs­menn sem skráðir eru með fjöld­ann allan af upp­flett­ingum í sjúkra­skrám þeirra. Hjónin sögðu sögu sína í við­tali við Mannlíf í maí síð­ast­liðnum.

Í bréfi frá Ingi­björgu Lár­us­dóttur, lög­fræð­ingi spít­al­ans, segir meðal ann­ars: „Ég vil vin­sam­lega benda ykkur á að ákveðnar leiðir eru til að óska eftir rann­sókn mála.“ Þar á eftir koma ábend­ingar um hvert beina megi málum af þessum toga. Þar er til­tekið að senda skuli athuga­semdir um upp­flett­ingar í sjúkra­skrá á Eft­ir­lits­nefnd um raf­ræna sjúkra­skrá og/eða Per­sónu­vernd. Auk þess megi senda athuga­semdir um veit­ingu heil­brigð­is­þjón­ustu á spít­al­ann eða emb­ætti land­læknis.

Nöfn vantaði í fyrri skrána

Gunnar segir í sam­tali við Mannlíf að þau Hlédís hafi farið slíka leið árið 2015, þegar grunur þeirra vakn­aði fyrst um að eitt­hvað kynni að vera óeðli­legt í tengslum við upp­flett­ingar í sjúkra­skrám þeirra. Þau telja til­hlýði­legar skýr­ingar ekki hafa komið fram.

„Enda er þetta ekki rétt skrá sem við fengum þá. Seinna fengum við aðra skrá, mun lengri, sem inni­hélt upp­flett­ingar og nöfn sem höfðu verið fjar­lægð úr hinni skránni.“ Hann segir þau ekki hafa fengið skýr­ingar á hinum ólíku upp­fletti­skrám. Seinni skráin hafi komið inn um lúg­una heima hjá þeim, í umslagi frá Land­spít­ala, í formi USB-kubbs.

Gunnar segir þau hafa sent fyr­ir­spurn á aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóra lækn­inga árið 2015. „Áhyggjur okkar voru teknar til skoð­unar og því lýst í tölvu­póst­sam­skiptum að þær hefðu verið teknar mjög alvar­lega. Málið hafi verið skoðað ofan í kjöl­inn, eins og tekið var fram að væri ávallt gert þegar slíkar áhyggjur kæmu fram. Í tölvu­pósti erum við síðan full­vissuð um það að eftir þessa skoðun þeirra þurfum við ekk­ert að hafa neinar áhyggjur af því að neinn óvið­kom­andi sé að fara inn í okkar sjúkra­skrár. Það hafi verið gengið úr skugga um það, svo við getum bara sofið róleg.“

Gunnar segir að á þessum tíma­punkti hafi hund­ruðir inn­skrán­inga þegar verið fram­kvæmdar og því ljóst að það hafi verið sýni­legt þeim sem skoð­aði málið á sínum tíma.

„Formaður þess­arar sjúkra­skrár­nefndar, sem á að taka á móti svona málum, er sami aðili og var fram­kvæmda­stjóri lækn­inga á þeim tíma sem við sendum okkar erindi.“ Gunnar segir hann ávallt hafa verið inni í öllum tölvu­póst­sam­skiptum.

„Okkur fannst á sínum tíma dálítil fljóta­skrift á þessu, að fá þessu svarað bara svona í stuttum tölvu­pósti, og að það ætti að sann­færa okkur. Seinna sama ár sögðu kunn­ingjar okkar, sem starfa innan heil­brigð­is­kerf­is­ins, að við gætum fengið „log-in“ skrána afhenta, sem var ekki gert þegar við spurð­umst fyrir um málið fyrst. Við náðum síðan loks­ins að toga hana út í lok árs 2015. Það er skráin sem við fengum fyrst, sú sem inni­heldur ekki nálægt því allar upp­flett­ingar sem skráin sem við fengum seinna senda gerir.“

Hlédís og Gunnar í við­tali við Reyni Trausta­son í maí.

Furðuðu sig á lækni á líknardeild

Gunnar lýsir því að þegar þau hjónin hafi fengið fyrri skrána afhenta, hafi þau rekið augun í mann­eskju sem þeim þótti skrýtið að væri að fara inn í sjúkra­skrá þeirra.

„Þannig að við ákváðum að gera athuga­semd við þá mann­eskju; sér­fræði­lækni af líkn­ar­deild. Það var bara út af þessu orði, líkn­ar­deild – við rákum bara augun í það. Þessi kona hafði aldrei sinnt okkur. Þá gerðum við aftur nákvæm­lega það sem nú er verið að segja að við eigum að gera, í þessu hót­un­ar­bréfi. Við sem­sagt tölum ekki við lækn­inn. Við sáum hver þetta var, vitum hver hún er, en við sendum henni ekk­ert bréf, vegna þess að við fórum bara í sjúkra­húsið sjálft. Sömu menn sátu þá fyrir svörum og í byrjun árs 2015, fram­kvæmda­stjóri og aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri lækn­inga. Þeir benda okkur á að í þess­ari skrá sé hún bara með eina línu; eina upp­flett­ingu. Þeir segj­ast hafa rætt við þennan lækni og hún hafi gefið þá skýr­ingu að hún hafi bara slegið ranga kenni­tölu, sem olli því að hún var þarna komin inn í ranga sjúkra­skrá. Hún hafi strax farið út úr henni aftur og því hafi hún í raun­inni ekki farið inn í skrána. Þeir stað­hæfðu það, sam­kvæmt því sem hún hafði sagt þeim þegar þeir spurðu hana út í þetta.“

Samkvæmt Gunnari fóru þau hjón á fund fram­kvæmda­stjóra og aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóra vegna máls­ins, til þess að fara fram á til­hlýði­legar skýr­ingar.

„En þarna vissum við ekki að þetta væri fölsuð skrá. Þessu máli var lokið af þeirra hálfu og við komumst ekk­ert lengra með það.“ Gunnar bendir á að þarna hafi þau hjónin því ávallt verið að fylgja þeim ferli sem lagt er til í bréf­inu sem þau fengu sent nýlega.

„Síðan kemur í ljós þegar við fáum raun­veru­legu skrána, í fullri lengd, að fjöldi ann­arra inn­skrán­inga þess­arar sömu konu höfðu verið þurrk­aðar út í fyrri skránni. Raun­veru­lega skráin sýnir fleiri línur og að hún fór í raun og veru inn í sjúkra­skrána.“

Ekki óþekkt að læknar opni sjúkraskrár í misgripum

Það skal tekið fram að ekki er óþekkt að læknar opni sjúkra­skrár fólks í mis­gripum, til að mynda með því að slá inn ranga kenni­tölu. Það er þó erfitt fyrir leik­mann að átta sig á því hvernig slíkt geti ítrekað átt sér stað hjá sama aðila, og þá hvort það þurfi ekki að svara sér­stak­lega fyrir það og gefa til­hlýði­legar skýr­ingar.

Einnig getur sama mann­eskja verið með ótal upp­flett­ingar í sömu sjúkra­skrá, því hver hreyf­ing í skránni skilur eftir sig eitt fót­spor. Þannig verður til fót­spor við opnun sjúkra­skrár, annað ef lyf er skrifað út, enn annað ef leita þarf eftir grein­ingu eða skrá grein­ingu, og þar fram eftir göt­unum. Það verður þó að telj­ast und­ar­legt að ótal upp­flett­ingar finn­ist í sjúkra­skrá ein­stak­lings, undir nöfnum heil­brigð­is­starfs­manna sem hafa ekki ann­ast við­kom­andi eða starfað á deild sem sjúk­lingur hefur fengið umönnun á.

„Þannig að við getum auð­veld­lega sýnt fram á að við höfum þegar farið þá leið sem þau benda á. Það gekk nú svona,“ segir Gunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi