Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Landspítali hótar hjónunum kæru: „Háttsemi ykkar felur í sér ólögmætt og gróft inngrip í einkalíf“

Landspítali hótar hjónunum kæru: „Háttsemi ykkar felur í sér ólögmætt og gróft inngrip í einkalíf“
Gunnar Árnason og Hlédís Sveins­dóttir

Hjónum, sem telja að heil­brigð­is­starfs­menn hafi gerst sekir um ólög­mætar upp­flett­ingar í sjúkra­skrám þeirra, hefur nú borist bréf frá lög­fræð­ingi á Land­spít­ala þar sem þeim er hótað kæru. Er það vegna þess að þau hafi per­sónu­lega sett sig í sam­band við þá heil­brigð­is­starfs­menn sem þau vilja meina að hafi farið inn í sjúkra­skrárnar. Lög­fræð­ing­ur­inn sakar hjónin um að hafa setið um heil­brigð­is­starfs­menn. Hjónin segja ein­ungis hafa sent við­kom­andi aðilum bréf í leit að skýr­ingum á mál­inu.

Buðu starfsmönnum að skýra ótal uppflettingar

Í bréf­inu frá Land­spít­ala, sem und­ir­ritað er af Ingi­björgu Lár­us­dóttur, lög­fræð­ingi sem starfar við spít­al­ann, kemur fram að for­stjóri Land­spít­ala hafi vísað máli hjón­anna Gunnars og Hlédísar til hennar. Hjónin komu á dög­unum fram í við­tali þar sem þau sögðu meðal ann­ars að farið hefði verið inn í sjúkra­skrár þeirra með ólög­mætum hætti. Þau sögðu ótal heil­brigð­is­starfs­menn sem aldrei hefðu ann­ast þau vera með skráðar upp­flett­ingar í skrán­ing­ar­sög­unni. Hjónin hafa gögnin undir höndum og hefur Mannlíf skoðað upp­flett­ing­ar­skrána, þar sem koma fram ótal nöfn heil­brigð­is­starfs­manna á hinum ýmsu deildum spít­al­ans. Það sem vakti hvað mesta athygli við stutt fyrsta yfir­lit var til dæmis starfs­maður á líkn­ar­deild, barna­læknir, fæð­ing­ar­læknir og sér­fræð­ingur í öldr­un­ar­lækn­ingum.

Hjónin höfðu sjálf sam­band við for­stjóra Land­spít­ala og sendu einnig bréf á þá ein­stak­linga sem vöktu hvað mesta athygli þeirra í upp­flett­inga­skránni. Þar segj­ast hjónin hafa boðið þeim aðilum að skýra málið við sig. Þeim hafi verið boðið að gera það eftir henti­semi, hvort sem væri að lög­fræð­ingi við­stöddum eða ekki.

Sögð hafa tekið sér opinbert vald

Í póst­inum frá lög­fræð­ingi Land­spít­ala segir meðal ann­ars að sú leið sem hjónin hafi farið sé „að öllu leyti óásætt­an­leg.“ Þau eru sögð hafa tekið sér opin­bert vald með því að nálg­ast þennan hóp heil­brigð­is­starfs­manna vegna starfa þeirra á Land­spít­ala. Þau eru einnig sögð hafa borið upp á heil­brigð­is­starfs­menn­ina „órök­studdar ásak­anir og sett þeim úrslita­kosti varð­andi úrlausn mála.“ Enn­fremur er sagt að þetta kunni að fela í sér refsi­verða hátt­semi sam­kvæmt almennum hegn­ing­ar­lögum.

Aðspurður hvað átt sé við þegar talað er um að setja við­kom­andi aðilum úrslita­kosti, segir Gunnar í sam­tali við Mannlíf að ekki hafi verið um neina úrslita­kosti að ræða. „Við sögðum það til­lögu af okkar hálfu að mót­tak­andi bréfs­ins myndi huga að því að mögu­lega bara hitta okkur og ræða málin til að varpa ljósi á atvik og mála­vexti. Við myndum þá að sjálf­sögðu taka vel á móti því, ef við­kom­andi vildi hitta okkur og ræða þetta í trún­aði,“ segir hann.

„Síðan var það í boði ef við­kom­andi vildi frekar hitta okkur og vera með lög­mann með sér, ef við­kom­andi teldi það þjóna sínum hags­munum. Við höfðum þá hugsað, ef það kæmi til þess, að við værum með lög­mann með okkur líka. Þriðja til­lagan var að fólk myndi gefa skýrslu fyrir dómi, með stöðu vitnis. Þannig að ef fólk myndi ekk­ert vilja tjá sig um þetta yrði það mögu­lega kvatt fyrir dóm sem vitni. Þetta voru til­lögur, en auð­vitað engir úrslita­kostir. Síðasti mögu­leik­inn var síðan auð­vitað að aðhaf­ast ekk­ert, það segir sig sjálft.“

Þvertekur fyrir að hafa setið fyrir starfsmönnum

Land­spít­ali er í bréf­inu til hjón­anna sagður líta málið alvar­legum augum og hafi þegar sent til­kynn­ingu til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara, sem fari með mála­rekstur er varðar brot gegn vald­stjórn­inni. Lögregla, emb­ætti land­læknis og per­sónu­vernd­ar­full­trúi Land­spít­ala eru sögð hafa fengið upp­lýs­ingar um málið „vegna alvar­leika þess.“

„Háttsemi ykkar felur í sér ólög­mætt og gróft inn­grip í einka­líf fjölda heil­brigð­is­starfs­manna. Ljóst er að þið hafið lagt í nokkra rann­sókn­ar­vinnu við að hafa upp á umræddum starfs­mönnum og hafið þið kynnt ykkur per­sónu­lega hagi nokk­urra þeirra og hafið setið um ein­hverja þeirra. Er þessi hátt­semi gerð í óþökk umræddra heil­brigð­is­starfs­manna og er til þess fallin að valda hræðslu og ótta þeirra um eigið öryggi sem einnig kann að fela í sér refsi­verða hátt­semi, sbr. grein 232. a almennra hegn­ing­ar­laga.“

Aðspurður þver­tekur Gunnar fyrir það að hafa setið fyrir umræddum starfs­mönnum. „Við fáum þessa raun­veru­legu skrá ekki fyrr en 2021 og þá koma þessi ósköp í ljós. Þar standa auð­vitað nöfn starfs­mann­anna og starfstitlar. Það er ekk­ert mál að fletta því upp á já.is til þess að sjá hvar við­kom­andi á heima – svo er líka hægt að fara í gegnum heima­bank­ann í þjóð­skrá til þess að senda bréf á réttan stað. Þannig að þetta sner­ist nú bara um að finna heim­il­is­föng til þess að geta sent bréfin á.“

Hóta formlegri kæru

Í lok bréfs­ins frá lög­fræð­ingnum segir eft­ir­far­andi:

„Látið þið ekki af hátt­semi ykkar og reynið að setja ykkur í sam­band við heil­brigð­is­starfs­menn­ina á ný, eða með öðrum sam­bæri­legum hætti sitjið um umrædda starfs­menn eða aðra starfs­menn Land­spít­ala mun lög­reglu verða umsvifa­laust gert við­vart og verður þá form­leg kæra send til emb­ættis hérðassak­sókn­ara vegna refsi­verðra brota í tengslum við þær athafnir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina