Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þessar klippingar verða í tísku í sumar

Þessar klippingar verða í tísku í sumar

Þegar sólin er komin hátt á loft og lundin verður létt­ari hér á norð­ur­hveli fara margir að velta fyrir sér að hreinsa til og gera breyt­ingar. Ein vin­sæl leið til þess er að gera útlits­breyt­ingar á borð við hár­greiðslur, en á sumrin vilja margir létta á makk­anum, eða fara yfir í frjáls­legra útlit.

„Sumarið er tími frelsis og nýs upp­hafs,“ segir Travis Speck, hár­greiðslu­meist­ari á stof­unni Suite Caroline í SoHo í sam­tali við Vogue.

Ef þig langar skyndi­lega til að losa þig við eitt­hvað af hári þínu á sumrin ertu ekki ein. Það getur verið spenn­andi að stytta það aðeins á þessum árs­tíma, þú verður ein­hvern veg­inn létt­ari fyrir vikið.

Samkvæmt Vogue eru hár­greiðsl­urnar hér fyrir neðan þær sem verða aðal­málið í sumar, fyrir þá sem vilja losa sig við nokkra sentí­metra eða prófa nýtt og ferskt, stutt hár.

Úlfaklipping og „shullets“

Mullet-klipp­ing níunda ára­tug­ar­ins hefur komið sterk inn að und­an­förnu, tvinnuð saman við ýmsa aðra stíla, til að mynda svo­kall­aða „shaggy“ eða loðna klipp­ingu. Úlfa­klipp­ingin svo­kall­aða varð vin­sæl á TikTok og hefur bland­ast saman við stíl­ana. Á þessu öllu saman eru ýmsar útfærslur. Það er hægt að fara út í svo­kallað „shul­let“, sem merkir mjúk­legt mul­let. Annar mögu­leiki er graf­ískara „high-low“-mul­let. Þá er það enn styttra við and­litið en síð­ara að aftan og skilin eru skarp­ari.

Iris Law.
FKA Twigs.

Hjartaknúsara bob-klipping

Þessi er næntís alla leið. Um er að ræða stutta, lag­skipta bob-klipp­ingu sem er klippt styttri að aftan, við háls­inn, en skartar síð­ari lokkum að framan, sem falla í kringum kinn­beinin. Þetta er töff klipp­ing sem er pass­lega létt og áreynslu­laus fyrir sum­arið.

Mariah Krey. Mynd/skjá­skot Vogue

Síðir sveipir

Léttar, lag­skiptar, „shaggy“ klipp­ingar verða vin­sælar í sumar. Þetta er klipp­ing með lág­marks umhirðu sem virkar lif­andi og nátt­úru­leg. Kjörin klipp­ing fyrir ein­stak­linga með nátt­úru­lega liði.

Ho Yeon Jung. Mynd/skjá­skot Vogue

„Gamine-Pixie“

Gamine er hug­tak notað yfir konu eða stelpu sem er dálítið stráks­leg yfir­litum eða í stíl. Þrátt fyrir hug­takið sem Vogue notar til að lýsa greiðsl­unni er þetta að sjálf­sögðu aldeilis kyn­laus hár­greiðsla. Það hefur þó færst í auk­ana und­an­farið að konur biðji um svo­kall­aða „pixie“-klipp­ingu sem minnir á leikkon­urnar Zoe Kravitz eða Léu Seydoux. Töff, djörf, spenn­andi og kröftug.

Zoe Kravitz
Leaa Seydoux. Mynd/skjá­skot Vogue

„Bob“ sem kyssir viðbeinin

Þessi langa og lag­skipta útgáfa af bob-klipp­ing­unni er áreynslu­laus og fal­leg. Lokk­arnir nema við við­beinin og koma sér­lega vel út ef liðir eru í hár­inu. Þessi getur verið með eða án topps og hægt að útfæra með mis­miklum styttum í hár­inu. Það getur verið virki­lega spenn­andi breyt­ing fyrir fólk með síð­ara hár að fara í þessa klipp­ingu.

Laura Harrier.
Selena Gomez.

Flöskuháls-toppur

Þessi toppur er mitt á milli þess að vera vax­inn niður og síður, og að vera stutt­klipptur yfir ennið. Hann er með nátt­úru­legt, afslappað yfir­bragð og styttri lokkar fara síkk­andi í hlið­unum og bland­ast svo rest­inni af hár­inu. Þetta er snið­ugt fyrir þá sem vilja prófa topp en ekki fara í eitt­hvað of graf­ískt. Hann fer líka afskap­lega vel með síðu hári þar sem skilin eru ekki skörp.

Emily Ratajkowsky.

„Roaring 2022“

Eins og nafnið gefur til kynna vitnar þessi klipp­ing í hinn fjöruga þriðja ára­tug síð­ustu aldar. Stutt og graf­ísk, sem stuttan topp. Þetta er ein­hver blanda af þriðja og átt­unda ára­tugnum. Mikið partí, mikið fjör.

Palome Elsesser.
Elle Fanning.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu