Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kanye kominn úr dvala: „Mig langar að lýsa mig dáinn í ár“

Kanye kominn úr dvala: „Mig langar að lýsa mig dáinn í ár“
Kanye West

„Þið vitið að ég fór í smá dvala. Ég sagði: Mig langar bara til að lýsa mig dáinn í ár. Enginn á að senda mér skila­boð. Þið vitið, mig langar bara til þess að vera utan þjón­ustu­svæðis. En Puff er ansi aðgangs­harður.“

Þetta sagði rapp­ar­inn Kanye West þegar hann kom fram á BET Awards verð­launa­há­tíð­inni í gær til þess að afhenda tón­list­ar­mann­inum Diddy heið­ursverð­laun fyrir ævi­starf sitt. Þetta kemur fram hjá E-News.

Diddy er eitt af sviðs- og gælu­nöfnum Sean Love Combs, en hann er banda­rískur rapp­ari, laga­höf­undur, upp­töku­stjóri, plötu­úf­gáfu­eig­andi og frum­kvöð­ull. Hann hefur í gegnum tíð­ina gengið undir nöfn­unum Puff Daddy, P. Diddy, Diddy og Puffy.

Þetta er í fyrsta sinn í marga mán­uði sem Kanye kemur opin­ber­lega fram. Í ræðu sinni tal­aði hann um það hversu mikil áhrif Diddy hafi haft á líf sitt. Hann skaut líka að athuga­semd um hjóna­band og skilnað sinn og Kim Kar­dashian.

„Ég fer til hans til þess að fá ráð enn þann dag í dag,“ sagði Kanye í ræðu sinni. „Hann er mér inn­blástur í svo ótrú­lega mörgum ákvörð­unum. Svo mikið af ákvörð­unum í lífi mínu. Ákvörð­unum mínum um eig­in­konu.“ (e. So many of my life choices. My wife choices.)

„Og hérna erum við, takk fyrir það Puff,“ sagði Kanye og virt­ist þarna gera grín að þeirri stöðu sem uppi hefur verið milli hans og Kim Kar­dashian. Hún sótti um skilnað í byrjun árs 2021 en hann neit­aði að skrifa undir papp­írana. Síð­ast­liðið haust fóru Kim og grínist­inn Pete Davidson að stinga saman nefjum og fljót­lega fór Kanye að við­hafa niðr­andi ummæli um Pete opin­ber­lega og á sam­fé­lags­miðlum, og áreita Kim. Málið vakti heims­at­hygli og þótti vera dæmi um að jafn­vel valda­miklar og ríkar konur á borð við Kim gætu átt erfitt með að sleppa frá áreitni og meið­andi fram­komu fyrr­ver­andi maka. Málið náði ákveðnum toppi eftir að Instagram lok­aði reikn­ingi Kanye tíma­bundið vegna hat­urs­orð­ræðu, áreitni og meið­andi ummæla. Honum var einnig bannað að koma fram á Grammy-verð­launa­há­tíð­inni. Fljót­lega eftir það hvarf hann af sjón­ar­svið­inu.

Svona kom Kanye West fram á verð­launa­há­tíð­inni.

Eftir ummæli Kanye í ræðu sinni á BET verð­launa­há­tíð­inni útskýrði hann að hann hefði ákveðið að koma óvænt fram vegna þess að hann gæti hrein­lega ekki sleppt tæki­fær­inu til að heiðra Diddy og feril hans.

„Hvert ein­asta okkar í þessu her­bergi – ef Puff þarf ein­hvern tíma á okkur að halda, þá verðum við að stökkva til og mæta á stað­inn. Þessi maður hefur gengið í gegnum margt og lifað ýmis­legt af, og brotið ýmsar hindr­anir á bak aftur, svo við gætum staðið hér. Ég veit að það á að minnsta kosti við um mig. Hann braust í gegnum svo margar hindr­anir á borð við stétta­skipt­ingu. Smekkur, kúltúr, stíll. Puff, ef ég hef aldrei sagt þér það, þá elska ég þig. Þú ert bróðir minn.“

Mynd frá hátíð­inni.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu