Mathöllin Vera opnar í dag, 5. ágúst, í Grósku hugmyndarhúsi. Staðarhaldarar lofa banastuði og hlakka til að taka á móti gestum. Eigendur mathallarinnar eru Björn Bragi Arnarsson og Hafsteinn Júlíusson. Þeir félagar eru ekki nýir í rekstri mathalla en áður unnu þeir saman að mathöllinni Borg29 í Borgartúni.
Mathöllin verður opin til klukkan 11 í kvöld og mun DJ Young Nazareth þeyta skífum fyrir gesti.
Í VERU eru átta veitingastaðir.
Pünk Fried Chicken
sem hefur starfað í Gróðurhúsinu í Hveragerði, pizzastaðurinn
Natalía
úr Borg29 og vínbarinn og kaffihúsið,
Mikki Refur
, af Hverfisgötu. Hinir fimm staðirnir eru nýir en þar er um að ræða
Caliente
mexíkóskan stað,
Bang Bang
sem sérhæfir sig í asískum mat, súpustaðinn
Næru
, morgunverðarstaðinn
Stund
og loks
Furu
sem er nýr staður í eigu verðlaunakokksins Denis Grbic.































Athugasemdir