Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Aflaskipstjórinn Grétar Rögnvarsson segir sögu sína: Hugsaði um litlu dóttur sína í ísköldum sjónum

Aflaskipstjórinn Grétar Rögnvarsson segir sögu sína: Hugsaði um litlu dóttur sína í ísköldum sjónum
Skip­stjór­inn Grétar Rögn­vars­son í brúnni.

„Ég lenti einu sinni í lífs­háska,“ segir Grétar Rögn­vars­son skip­stjóri í við­tali við Reyni Trausta­son. „Þá var ég stýri­maður á Seley; við vorum á loðnu norður í hafi.“

Lengst úti í hafi.

Þá gaf sig örygg­is­hlið á nót­ar­kass­anum og ég flaug niður og út í sjó.

„Einhvers staðar austan við Kol­beins­hrygg eða norður af sléttu; ég man það ekki. Það var árið sem ég útskrif­að­ist úr Stýri­manna­skól­anum, 1979. Um haustið. Þá var hætt við að kasta nót­inni og þá gaf sig örygg­is­hlið á nót­ar­kass­anum og ég flaug niður og út í sjó. Í kol­svarta myrkri og ískulda. Það var núll gráður sjór­inn.“

Skipið var sem betur fer stopp. Annars hefðir þú vænt­an­lega drep­ist.

„Já, ef hann hefði verið á ferð þá er ekk­ert víst að þeir hefðu fundið mig. Það var kol­svarta myrkur. Ég var vel klæddur og það bjarg­aði.“

Grétar er spurður hvað hafi flogið um huga hans þegar hann var kom­inn í hafið.

„Það situr nú fast í minni mínu. Ég átti þá litla dóttur sem var eins og hálfs árs, fædd 1978, og ég hugs­aði allan tím­ann á meðan ég var í sjónum: Á ég aldrei eftir að sjá hana aftur? Svo fékk ég björg­un­ar­hring og komst í hann.“

Þú ert ekki búinn að vinna sigur þótt þú sért kom­inn í hring­inn.

„Nei, þeir voru mjög snöggir til. Ingvi Rafn, sem var skip­stjóri, var mjög fljótur til. Kom aftur á og þeir settu út stiga og svo var einum slakað niður, bundu utan um fæt­urna á honum og hann náði utan um öxl­ina á mér og síðan var mér dröslað inn. Svo man ég ekk­ert meira. Ég missti með­vit­und þegar ég var kom­inn upp í skipið. Ég rank­aði við mér þar sem ég var í heitri sturtu og var yfir­vél­stjór­inn að hella í mig kon­íaki. Svo hírn­aði ég allur við og fór síðan að sofa. Ég vakn­aði 18 tímum seinna.“

Þeir kíktu inn í klef­ann til mín til að athuga hvort ég and­aði ekki örugg­lega.

Skips­fé­lagar Grétars ku hafa kíkt öðru hvoru á hann til að athuga hvort hann væri á lífi.

„Þeir kíktu inn í klef­ann til mín til að athuga hvort ég and­aði ekki örugg­lega. Við fylltum svo og fórum til Rauf­ar­hafnar. Lönduðum loðn­unni. Svo vakn­aði ég hress og kátur á útleið­inni.

Konan mín frétti úti í búð, í kaup­fé­lag­inu á Eski­firði, að ég hefði dottið í sjó­inn. Ég frétti það síðar að menn hefðu sjokker­ast um borð við þetta.“

Grétari er bent á að eitt það hrika­leg­asta sem menn gangi í gegnum sé ef þeir fari ann­að­hvort í sjó­inn eða þá að menn sjái á eftir félaga sínum í sjó­inn.

„Já, það er ábyggi­lega alveg hræði­legt að horfa á eftir félaga sínum í sjó­inn.“

Ég var vel klæddur; það var það sem bjarg­aði mér.

Þetta var fyrir flot­gall­ana.

„Já, þarna voru menn bara í stökkum. Ég var vel klæddur; það var það sem bjarg­aði mér. Í dag eru menn í björg­un­ar­vestum sem blása sig upp ef menn fara í sjó­inn og flot­galla ef það er eitt­hvað þannig. Eða úlpum sem eru flot­úlpur.“

24 ára skipstjóri

Árið var 1981. Grétar var þá 24 ára og varð skip­stjóri á 150 tonna ver­tíð­ar­báti.

Það er svo­lítið brött upp­hefð að vera skip­stjóri svona ungur.

„Já, það má kannski segja það. Það er líka smátil­viljun. Ég var búinn að vera stýri­maður á tog­ara, Hólmatindi, og svo bauðst mér að taka við Sæljóni og stökk bara á það. Og það gekk ein­hvern veg­inn. Við vorum á alls konar veiðum. Við vorum mikið á fiski­trolli á sumrin, svo var ég á síld­inni á nót þegar fjarða­síldin var. Það er með skemmti­legri veiði­skap sem ég hef tekið þátt í. Svo vorum við á netum á vet­urna. Og smá­vegis á línu. Það var allur pakk­inn.“

Og gekk vel hjá stráknum?

„Það er alltaf erfitt að dæma sjálfan sig. Já, ég held það hafi gengið þokka­lega.“

Þetta ein­hvern veg­inn redd­að­ist.

Hvernig var til­finn­ingin að verða skip­stjóri í fyrsta sinn?

„Tveir móð­ur­bræður mínir voru þarna um borð. Annar var vél­stjóri og hinn var kokkur þannig að það var létt fyrir mig að stíga þarna. En ég var oft með yngri mönnum. Þetta ein­hvern veg­inn redd­að­ist.“

Varstu ekk­ert stress­aður fyrst?

„Nei, ekk­ert svo mjög. Ég byrj­aði á trolli. Þetta var sum­arið 1981 og rosa mikil þorsk­gengd fyrir austan land og það gekk strax vel. Við sigldum mikið. Lönduðum stundum í Færeyjum og síðan vorum við að sigla mikið á England og selja. Grimsby. Mest á Grimsby. Hull líka.“

Það var komið við á Rauða ljón­inu í Grimsby.

Var ekki djammað á Rauða ljón­inu?

„Það var kíkt við þar, jú. Það var komið við á Rauða ljón­inu í Grimsby.“

Þú höndl­aðir þetta. Það eru ekk­ert allir sem höndla þetta. Menn verða stress­aðir og þetta fer illa með tauga­kerfið.

„Ég hef yfir­leitt ekki verið mjög stress­aður í þessu starfi. Auðvitað koma upp atvik þegar maður þarf að hugsa rök­rétt. Það var kannski mest stressandi þegar ég kastaði nót í fyrsta skipti á Sæljón­inu í Reyð­ar­firði; ég hafði verið stýr­maður á nóta­bát og það var fullt af rek­neta­trossum og fullt af bátum en ein­hvern veg­inn lukk­að­ist það.“

Grétar var á Sæljón­inu í rúm sex ár. „Það var mjög góður og skemmti­legur tími að vera þar; ýmist á trolli eða netum og svo fjarða­síld­inni.“

Jón Kjartansson

Svo kom stóra tæki­færið.

„Já, svo kom stærra tæki­færi. Alli ríki, Alli Jóns, bauð mér að taka við Jóni Kjart­ans­syni um ára­mótin 1988. Og það var að hrökkva eða stökkva og ég ákvað að stökkva. Ég fór með Þor­steini Krist­jáns­syni skip­stjóra sem var að fara í land; fór með honum tvo túra bara til að átta mig á aðstæðum og sjá skipið. Ég var búinn að vera á Sæljón­inu svo­lítið mikið á nót en engar hlið­ar­skrúfur eða neitt svo­leiðis þar. Svo ein­hvern veg­inn gekk það upp þarna fyrsta vet­ur­inn; við vorum á loðnu og svo vorum við á trolli á sumrin. Og grá­lúðu mikið. Og rækju. Á vorin fórum við yfir­leitt á grá­lúðu og frystum um borð.“

Þetta hefur allt gengið að óskum.

„Já.“

Síðan ertu búinn að vera á Jóni Kjart­ans­syni.

„Já, síðan 1988.“

Þetta eru orðnir nokkrir bátar. Fjórir bátar.

Er þetta ekki met?

„Ég veit það ekki. Sama skips­nafnið; þetta eru orðnir nokkrir bátar. Fjórir bátar.“

Fyrst var það gamli Narfinn sem var svo breytt í nóta­skip. „Svo fórum við með hann tvisvar til Póllands í breyt­ingar; sett í hann stærri vél og byggður nýr fram­endi á hann. Síðan fór ég yfir á Hólma­borg­ina þegar hún var skýrð Jón Kjart­ans­son. Aðal­steinn Jónsson var þá keyptur og ég fór þá yfir á hann. Svo sóttum við þennan til Skotlands fyrir fimm eða sex árum sem ég er á núna.“

Alli ríki nýtur mik­illar virð­ingar og sagan fer vel með hann.

„Já, hann var ein­stak­lega skemmti­legur maður og þægi­legur og það var gott að vinna fyrir hann. Hann hringdi mikið um borð eftir að sím­arnir komu og fylgd­ist með og sagði manni eina og eina skemmti­sögu stundum í leið­inni. Hann var mik­ill sögu­maður.“

Það er lík­lega gæfan hjá ykkur á Eski­firði; þetta hefur aldrei farið neitt. Það var smá­upp­nám á sínum tíma þegar var skipt upp. En Þor­steinn er lík­lega með sömu elem­entin og Alli; það er að fyr­ir­tækið er fyrir bæinn.

Örugg­lega eitt flottasta upp­sjáv­ar­frysti­hús í Evrópu.

„Fyr­ir­tækið er fyrir bæinn og fólkið og það er búið að vera að byggja þetta fyr­ir­tæki upp. Þetta er orðið mjög flott fyr­ir­tæki; örugg­lega eitt flottasta upp­sjáv­ar­frysti­hús í Evrópu og skipin góð. Það hefur verið byggt upp og það er mjög flott. Þor­steinn hefur gert þetta mjög vel með sínu fólki.“

Hann hugsar þetta eins og Alli.

„Hann hefur lært eitt­hvað af tengapabba sínum.“

Grétar er spurður hvernig hann sjái fram­tíð­ina á Eski­firði.

„Ég held að hún sé nokkuð björt. Ég vona það. Ég held að svona fyr­ir­tæki fari aldrei neitt eins og er búið að byggja það upp svona mikið. Þau fara ekk­ert. Þau geta kannski farið í ein­hverra ann­arra eigu. Allavega sé ég ekki fyrir mér að þetta sé neitt að fara.“

Dreymir fyrir brasi og aflabrögðum

Grétar er spurður hvort hann sé harður skip­stjóri.

„Ég myndi ekki segja það. Nei, ég held ekki. Ég er held ég frekar sann­gjarn.“

Þú ert ekk­ert hávær?

„Nei, aldrei,“ segir Grétar og bætir við að hann haldi að það sé verra þegar er verið að öskra mikið á menn.

Allir skip­stjórar fara í óstuð ein­hvern tím­ann.

Hvernig leggst það í skip­stjór­ann ef það gengur illa ef hann er í óstuði. Hann hlýtur að hafa farið í óstuð.

„Já, allir skip­stjórar fara í óstuð ein­hvern tím­ann. Maður verður bara að taka því þegar maður er búinn að vera svona lengi í þessu; það gengur yfir. Og svo kemur ein­hvern tím­ann betri dagur og maður kann að lifa með því.“

Hann er búinn að vera afla­hár alla tíð. Hvað er það sem ræður því að menn fiska eða fiska ekki?

Jón Kjart­ans­son SU er glæsi­legt skip.

„Ég hef alltaf sagt það að það sé sam­spil af góðri útgerð, góðum veið­ar­færum og góðum mann­skap. Maður gerir þetta ekk­ert einn. Maður þarf að hafa góðan mann­skap og það þarf að vera vel gert út. Það er sam­spil af mörgu; mann­skap­ur­inn, veið­ar­færin og skip­stjór­inn hefur jú sjálf­sagt eitt­hvað að segja.“

Grétar er spurður hvernig hann lesi í hlut­ina þegar hann er að ákveða hvað hann geri. Dreymir hann fyrir afla?

„Mig hefur dreymt fyrir ýmsu, bæði fyrir brasi og afla­brögðum. Já, það hefur alveg komið fyrir. Ef ég er búinn að hugsa um að fara eitt­hvað þá fer ég yfir­leitt þangað og svo erum við skip­stjórar svo­lítið mikil hóp­dýr og förum yfir­leitt þangað þar sem hinir eru. Það er nú svo­lítið svo­leiðis.“

Hvernig draumar eru það þegar skip­stjór­ann dreymir fyrir afla?

„Það hefur yfir­leitt verið þannig að þá hef ég setið ein­hvers staðar við veislu­borð og mikið af tertum og mat og þegar ég vakna og ef ég man draum­inn þá veit ég að það er eitt­hvað gott fram undan.“

Skipstjóri á mótorhjóli

Grétar er búinn að vera á sjó 48 ár. Tæpa hálfa öld.

Þú ert á sjó og ætlar að halda áfram.

„Já, eitt­hvað smá­vegis í við­bót. Ég ætla alla­vega að fá lög­gild­ingu áður en maður hættir.“

Þetta er langur fer­ill. 48 ár. Er það ekki svo­lítið mikið?

„Jú, mér finnst það ágætt. Ágætis afrek að  klára 50 árin. Ég veit ekki hvort ég verði mikið lengur en það.“

Hefur aldrei hvarflað að Grétari á öllum þessum árum að fara í land? Hætta bara?

„Nei, það hefur ekki hvarflað að mér. Mér hefur liðið vel á sjónum og mér hefur líkað vel við vinnu­veit­endur.“

Hvað gera svona gamlir sjó­hundar í landi?

„Það er að finna sér ein­hver áhuga­mál. Ég hef gaman af því að ferð­ast, ég og konan, og við gerum mikið af því. Síðan erum við á mót­or­hjólum.“

Maður er að reyna það alla­vega; að vera töffari.

Þú ert mót­or­hjóla­karl.

„Já, maður er að reyna það alla­vega; að vera töffari.“

Ertu í svona Hells-vesti?

„Ég er vel brynj­aður. Og fer gæti­lega. Þetta snýst um það.“

Grétar seg­ist hafa byrjað í mót­or­hjóla­sport­inu í fyrra­vor.

„Ég tók mót­or­hjóla­próf þá af því að konan var með próf og hún átti hjól og ég gat ekki verið minni maður en hún.“

Konan hefur dregið þig út í þetta.

„Já,“ segir Grétar sem keypti sér mót­or­hjól. Hondu 1300.

Þarftu ekki að eiga Harley Davidson?

„Jú, það verður kannski næsta hjól.“

Podcastviðtalið við Grétar er í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi