Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Grétar Rögnvarsson er farsæll skipstjóri: „Alli ríki hringdi og sagði eina og eina gamansögu“

Grétar Rögnvarsson er farsæll skipstjóri: „Alli ríki hringdi og sagði eina og eina gamansögu“

„Það var kol­svarta myrkur. Ég var vel klæddur og það bjarg­aði,“ segir Grétar Rögn­vars­son, skip­stjóri á Jóni Kjart­ans­syni SU, um þann háska sem hann lenti í djúpt út af Norð­ur­landi þegar hann féll fyrir borð á nóta­veiðum. Grétar á að baki far­sælan feril sem skip­stjóri. Hann var aðeins 24 ára þegar tæki­færið kom og hann hefur verið í brúnni síðan.

Hann gleymir því aldrei þegar hann féll útbyrðis

„Það situr nú fast í minni mínu. Ég átti þá litla dóttur sem var eins og hálfs árs, fædd 1978, og ég hugs­aði allan tím­ann á meðan ég var í sjónum: Á ég aldrei eftir að sjá hana aftur? Svo fékk ég björg­un­ar­hring og komst í hann.“

Svo kom stærra tæki­færið.

„Alli ríki, Alli Jóns, bauð mér að taka við Jóni Kjart­ans­syni um ára­mótin 1988. Og það var að hrökkva eða stökkva og ég ákvað að stökkva. Ég fór með Þor­steini Krist­jáns­syni skip­stjóra sem var að fara í land; fór með honum tvo túra bara til að átta mig á aðstæðum og sjá skipið. Ég var búinn að vera á Sæljón­inu svo­lítið mikið á nót en engar hlið­ar­skrúfur eða neitt svo­leiðis þar. Svo ein­hvern veg­inn gekk það upp þarna fyrsta vet­ur­inn; við vorum á loðnu og svo vorum við á trolli á sumrin. Og grá­lúðu mikið. Og rækju. Á vorin fórum við yfir­leitt á grá­lúðu og frystum um borð.“

Þetta hefur allt gengið að óskum.

„Já.“

Síðan ertu búinn að vera á Jóni Kjart­ans­syni.

„Já, síðan 1988.“

Þetta eru orðnir nokkrir bátar. Fjórir bátar.

Er þetta ekki met?

„Ég veit það ekki. Sama skips­nafnið; þetta eru orðnir nokkrir bátar. Fjórir bátar.“

Fyrst var það gamli Narfinn sem var svo breytt í nóta­skip. „Svo fórum við með hann tvisvar til Póllands í breyt­ingar; sett í hann stærri vél og byggður nýr fram­endi á hann. Síðan fór ég yfir á Hólma­borg­ina þegar hún var skýrð Jón Kjart­ans­son. Aðal­steinn Jónsson var þá keyptur og ég fór þá yfir á hann. Svo sóttum við þennan til Skotlands fyrir fimm eða sex árum sem ég er á núna.“

Alli ríki nýtur mik­illar virð­ingar og sagan fer vel með hann.

„Já, hann var ein­stak­lega skemmti­legur maður og þægi­legur og það var gott að vinna fyrir hann. Hann hringdi mikið um borð eftir að sím­arnir komu og fylgd­ist með og sagði manni eina og eina skemmti­sögu stundum í leið­inni. Hann var mik­ill sögu­maður.“

Það er lík­lega gæfan hjá ykkur á Eski­firði; þetta hefur aldrei farið neitt. Það var smá­upp­nám á sínum tíma þegar var skipt upp. En Þor­steinn er lík­lega með sömu elem­entin og Alli; það er að fyr­ir­tækið er fyrir bæinn.

Örugg­lega eitt flottasta upp­sjáv­ar­frysti­hús í Evrópu.

„Fyr­ir­tækið er fyrir bæinn og fólkið og það er búið að vera að byggja þetta fyr­ir­tæki upp. Þetta er orðið mjög flott fyr­ir­tæki; örugg­lega eitt flottasta upp­sjáv­ar­frysti­hús í Evrópu og skipin góð. Það hefur verið byggt upp og það er mjög flott. Þor­steinn hefur gert þetta mjög vel með sínu fólki.“

Hann hugsar þetta eins og Alli.

„Hann hefur lært eitt­hvað af tengapabba sínum.“

Grétar er spurður hvernig hann sjái fram­tíð­ina á Eski­firði.

„Ég held að hún sé nokkuð björt. Ég vona það. Ég held að svona fyr­ir­tæki fari aldrei neitt eins og er búið að byggja það upp svona mikið. Þau fara ekk­ert. Þau geta kannski farið í ein­hverra ann­arra eigu. Allavega sé ég ekki fyrir mér að þetta sé neitt að fara.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar