Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ef fyrirtæki upplýsir ekki um skrópgjald er því ekki stætt á að innheimta gjaldið“

„Ef fyrirtæki upplýsir ekki um skrópgjald er því ekki stætt á að innheimta gjaldið“
Breki Karlsson, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna.

Formaður Neyt­enda­sam­tak­anna segir sam­tökin skoða hvert til­felli fyrir sig, sem berst þeim vegna svo­kall­aðra skróp­gjalda þjón­ustu­að­ila. Skróp við­skipta­vina eru sögð stærsta vanda­málið í þjón­ustu, en mikið tekju­tap sé vegna þeirra á ári hverju. Margir þjón­ustu­að­ilar rukka því skróp­gjöld, til­kynni við­skipta­vinir ekki um for­föll tím­an­lega. Mik­il­vægt er að sann­girni sé gætt beggja vegna borðs­ins.

Rukkaður um skrópgjald án skýringa

Í frétt sem birt­ist í gær var sagt frá manni sem var rukk­aður um skróp­gjald vegna tíma sem barn hans átti á snyrti­stofu. Reikn­ingnum fylgdu hins vegar engar skýr­ingar og mað­ur­inn varð að afla sér upp­lýs­inga sjálfur. Auk þess var reikn­ing­ur­inn dag­settur fjóra mán­uði aftur í tím­ann. Maðurinn segir lík­legt að mis­tök hafi verið gerð, þar sem barn hans hafi sann­ar­lega nýtt tím­ann. Hins vegar var hann gagn­rýn­inn á upp­lýs­inga­leysið og velti því í fram­hald­inu upp hvort hver sem er gæti sent reikn­ing á hvern sem honum hugn­að­ist, án nokk­urs rök­stuðn­ings.

Hann velti einnig fyrir sér skróp­gjöldum í laga­legu til­liti; hvort tímapant­anir væru bind­andi við­skipta­samn­ingar og hvort um lög­mæta við­skipta­hætti væri að ræða.

Verða að upplýsa um skrópgjald

Breki Karlsson, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna, segir í sam­tali við Mannlíf að í raun sé ekki hægt að setja út á skróp­gjöld sem slík. „Það er eðli­legt að fyr­ir­tæki reyni að tryggja að tímar séu nýttir og við vitum að skróp­gjöld tíðkast víða. Ef hins vegar fyr­ir­tæki upp­lýsir ekki um skróp­gjald er því ekki stætt á að inn­heimta gjaldið.“

Mörg fyr­ir­tæki krefj­ast þess að við­skipta­vinir afbóki tíma ekki seinna en með sól­ar­hrings fyr­ir­vara. Þótt það sé ef til vill eðli­legt í mörgum til­vikum er það ekki alltaf raun­hæft. Ýmislegt óvænt getur komið upp á, til að mynda veik­indi.

Aðspurður hvernig þessar kröfur og tímara­mm­inn horfi við honum segir Breki að vissu­lega geti verið til­felli þar sem fyr­ir­tæki gangi of langt, og stundum megi nýta tím­ana fyrir fólk á biðlista, til að mynda á snyrti­stofum, hjá tann­læknum, sjúkra­þjálf­urum og á nudd­stofum.

„Ef fyr­ir­tæki nær að nýta tím­ann væri óeðli­legt að inn­heimta líka skróp­gjald. Þá finnst okkur líka skipta máli hvort um er að ræða óvænt veik­indi sem upp­lýst er um fyr­ir­fram eða hvort neyt­andi ein­fald­lega mæti ekki án nokk­urra skýr­inga.

Að þessu sögðu þá skoðum við hvert til­felli fyrir sig, svo sem hvort gjaldið sé óeðli­lega hátt, hversu snemma er látið vita um for­föll og hvort neyt­andi hafi verið upp­lýstur um skróp­gjald.“

Þegar blaða­maður spyr Breka um kröfur í net­banka, líkt og þá sem mað­ur­inn lýsti, segir hann að í raun sé ekki hægt að koma í veg fyrir slíkt „ef fyr­ir­tækið telur sig eiga kröfu á neyt­and­ann.“ Hann tekur þó fram að neyt­endur eigi alltaf rétt á því að vita fyrir hvað sé rukkað.

„Hins vegar er skrýtið að reikn­ing­ur­inn hafi farið á föð­ur­inn án þess að hann hafi vitað af því, þar sem ekki er hægt að stofna kröfu í heima­banka nema kennitala liggi fyrir. Þá er ekki hægt að stofna kröfu á ólög­ráða börn,“ segir Breki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi