Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fékk enga skýringu á skrópgjaldi snyrtistofu: „Eru þetta lögmætir viðskiptahættir?“

Fékk enga skýringu á skrópgjaldi snyrtistofu: „Eru þetta lögmætir viðskiptahættir?“

Þjón­ustu­að­ilar rukka margir hverjir svo­kallað skróp­gjald fyrir tíma sem við­skipta­vinir mæta ekki í, eða afbóka með skömmum fyr­ir­vara. Í dag birt­ist færsla manns á Twitter sem fékk reikn­ing sendan í heima­banka, vegna meints skróps barns hans í bók­aðan tíma á snyrti­stofu. Engar skýr­ingar fylgdu reikn­ingnum og mað­ur­inn varð sjálfur að fara á stúf­ana og bera sig eftir upp­lýs­ingum. Hann veltir því upp hvort um sé að ræða eðli­lega við­skipta­hætti.

„Var að fá reikn­ing frá ein­hverri snyrti­stofu vegna meints skróps barns míns í pant­aðan tíma fyrir mörgum mán­uðum. Eru þetta lög­mætir við­skipta­hættir? Er pöntun á tíma við­skipta­samn­ingur?“ segir í færslu manns­ins.

„Ég hef oft séð svona skil­mála, að maður þurfi að afbóka með t.d. sól­ar­hrings fyr­ir­vara hjá hár­greiðslu­stofum, sál­fræð­ingum o.fl. eða vera rukk­aður um hálft gjald,“ segir í athuga­semd ann­ars not­anda við færsl­una. Við­kom­andi segir að sér þyki það að vissu leyti eðli­legt, þar sem þjón­ustu­að­ilar geti ekki selt öðrum tíma sem fólk skrópi í.

Höfundur upp­hafs­færsl­unnar svarar þá: „Já, en er laga­heim­ild fyrir því? Er maður að und­ir­gang­ast við­skipta­samn­ing þegar maður hringir og pantar tíma? Segir neyt­enda­lög­gjöfin eitt­hvað um þetta?“

„Það er góð spurn­ing,“ segir í annarri athuga­semd seinni aðil­ans. Við­kom­andi seg­ist ekki viss, en telji þó lík­legt að fyr­ir­tækjum sé heim­ilt að setja skil­mála af þessu tagi, ef við­skipta­vinir séu upp­lýstir um þá við bókun. „Ef það er ekki gert þá finnst mér það mjög vafa­samt.“

Reikningur dagsettur fjóra mánuði aftur í tímann

Höfundur upp­hafs­færsl­unnar útskýrir þá að hann sé ósáttur við snyrti­stof­una sem um ræðir, vegna þess að reikn­ingnum, sem barst frá fyr­ir­tæki sem hann sjálfur þekkti ekki til, fylgdi engin skýr­ing. Reikn­ing­ur­inn hafi einnig verið dag­settur með eindaga og inn­heimtu­gjaldi fjóra mán­uði aftur í tím­ann. Í ofaná­lag hafi tím­inn sem um ræðir sann­ar­lega verið not­aður af barni hans.

Í sam­tali við Mannlíf seg­ist mað­ur­inn, sem vill ekki koma fram undir nafni, vera búinn að senda stof­unni sem um ræðir snyrti­legt bréf og bíði þess nú að reikn­ing­ur­inn verði felldur niður. Hann segir að honum þyki und­ar­leg­ast í þessu að hægt sé að senda fólki reikn­inga án allra skýr­inga, sem neyt­endur þurfi síðan sjálfir að afla upp­lýs­inga um.

Þess ber að geta að neyt­endur eiga ávallt rétt á að vita til­efni reikn­ings; fyrir hvað sé rukkað.

Skróp eitt stærsta vandamál þjónustuaðila

Árið 2019 vakti bók­un­ar­fyr­ir­tækið Noona athygli á því í DV að skróp væri eitt stærsta vanda­mál sem þjón­ustu­að­ilar glímdu við. Millj­arðar töp­uð­ust árlega vegna þessa. Stéttir sál­fræð­inga, snyrti­fræð­inga, kíróprakt­ora, hár­snyrti­fræð­inga, ráð­gjafa og ótal ann­arra þjón­ustu­að­ila yrðu fyrir miklu tekju­tapi þegar þeir sætu eftir með sárt ennið vegna skrópa við­skipta­vina. Í grein Noona sagði að sam­kvæmt gögnum þeirra væri skrópað í um það bil 5 pró­sent allra tíma á Íslandi. Á verstu mán­uðum sem fyr­ir­tækið hefði séð var skrópað í 20 pró­sent allra tíma mán­að­ar­ins.

Í grein­inni var bent á skróp­gjöld sem góða lausn á vanda­mál­inu. Þjón­ustu­að­ilar gætu þá rukkað 50 til 70 pró­sent heild­ar­verðs­ins fyrir ónýtta tíma. „Ef við­skipta­vinir bera fjár­hags­legan hvata af því að mæta í tíma mun skróp minnka. Ein­stak­lingar sem ætla sér ekki endi­lega að mæta í tíma hugsa sig tvisvar um að bóka ef þeir eiga á hættu að þurfa að greiða skróp­gjald,“ segir í grein­inni.

Þó er sér­stak­lega til­tekið að taka þurfi til­lit til aðstæðna hverju sinni þegar kemur að skróp­gjöldum.

„Ákvörðun sem varðar fram­komu fyr­ir­tækja við við­skipta­vini sína þarf að horfa á með linsum sið­ferð­is­ins, sann­leik­ans og sann­girni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð