Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Geir Ólafsson: „Þunglyndi og kvíði er bara ömurlegur sjúkdómur“

Geir Ólafsson: „Þunglyndi og kvíði er bara ömurlegur sjúkdómur“
Geir Ólafsson

„Við erum með tvö lög sem þeir hafa áhuga á að gefa út í Kólumbíu fyrir kól­umbínskan markað og við unnum þau hérna í Kólumbíu. Þessi tón­list hefur fengið góða dóma og menn eru hrifnir af þessu og kveikja á per­unni varð­andi það að þetta gæti náð langt. Ég ætl­ast ekki til neins og er miklu frekar að vinna þetta af ástríðu heldur en ein­hverri hug­mynda­fræði um það hvað þetta gæti verið; þetta verður bara það sem verður,“ segir Geir Ólafsson sem flutti fyrr á þessu ári til Kólumbíu ásamt kól­umbískri eig­in­konu sinni, Adriana Patricia Sanchez Krieger, og sex ára gam­alli dóttur þeirra, Önnu Rós.

Geir samdi annnað lagið, She’s My Whole World, sem er tileiknað Adriana. Textinn er eftir Terry Knudsen. Richard Scobie samdi hitti lagið, All That I Wish For, og er text­inn einnig eftir hann. Lögin eru fleiri og koma þau öll síðar út á geisla­diski. „Það eru bara þessi tvö lög sem við erum að leggja áherslu á hér.“ Hér á Íslandi er Geir í sam­vinnu við Óttar Felix Hauksson. „Ég er mjög ánægður og stoltur yfir því verk­efni. Ég er stoltur yfir því að ég sé að koma með músík eftir mig sjálfan og að hún sé að fá góða dóma. Mér finnst það bara ótrú­lega magnað.“

Upp­töku­stjór­inn fyrr­nefndu lag­anna tveggja er Harbey Marin Martinez sem hlotið hefur Grammy-verð­laun í Suður-Ameríku og voru lögin hljóð­blönduð þar. Önnur lög voru tekin upp á Íslandi og var upp­töku­stjór­inn Vil­hjálmur Guð­jóns­son. Und­ir­leik­ur­inn var tek­inn upp í Los Angeles.

Ég er með algjör­lega heimsklassa hljóð­færa­leik­ara.

Það er fleira fram undan hjá Geir en í des­em­ber heldur hann sína árlegu jólatón­leika hér á landi, Las Vegas Christmas Show, sem haldnir verða í Gamla Bíói 1., 2., 3. og 4. des­em­ber. Þetta verður sjö­unda árið í röð sem tón­leik­arnir verða haldnir. Don Randi, sem starfað hefur með stór­stjörnum í Banda­ríkj­unum svo sem Frank Sinatra og Barbara Streisand, mætir enn eitt árið með stór­sveit sína. „Þarna verður þriggja rétta gala­d­inner, rosa­lega flott skreyttur salur og heimsklassa hljóð­færa­leik­arar. Þetta er orðið svaka­lega rútínerað og ég er með frá­bært fólk. Ég er með algjör­lega heimsklassa hljóð­færa­leik­ara. Ég er með Vilhjálm Guð­jóns­son, Þóri Bald­urs­son, Birgi Nielsen, Heimi Inga Guð­munds­son og Ástvald Þrasta­son og svo er ég með sjö gæja frá Ameríku. Þetta er nátt­úr­lega svaka­legt band. Þetta er æðis­legt band. Þessu fylgir mikil vinna og yfir­lega. Ég er ekki með nein stór­fyr­ir­tæki sem kaupa 500 miða. Ég þarf að hafa fyrir þessu sjálfur og ég er bara ánægður með það. Og orðið á göt­unni um þessa sýn­ingu er gott og ég hef heyrt fólk sem hefur farið á sýn­ing­una segja að það vilji fara aftur. Þetta er aldrei eins. Við erum aldrei með sömu mús­ík­ina nema að litlum hluta af því að það eru ákveðin lög sem ganga alltaf vel í fólk. Það er gaman að vinna með Don Randi sem spil­aði inn á allt hjá The Beach Boys, Elvis Presley og Frank Sinatra. Fólk gerir sér ekk­ert grein fyrir því þegar það mætir hverjir eru á svið­inu að spila fyrir það. Þetta er ótrú­lega gaman.“ Hér má sjá við­burð­inn.

Geir segir að tón­listin sé Guðs gjöf. „Þegar maður er í tón­list þá verður maður að þakka Guði fyrir þessa frá­bæru gjöf og þakka honum fyrir að hafa gefið sér hæfi­leika til þess að geta sinnt henni.“

Kom að lokuðum dyrum

Geir flutti tíma­bundið til Kólumbíu ásamt fjöl­skyldu sinni fyrr á þessu ári þar sem eig­in­kona hans fékk ekki starf við hæfi á Íslandi þar sem þau bjuggu saman um ára­bil en Adriana sagði sögu sína í við­tali við Mannlíf fyrr á þessu ári. Þar segir meðal ann­ars: „Mér var sagt að hér á landi fengi fólk frá heima­landi mínu vinnu við þrif eða við að gæta barna,“ segir Adriana Patricia Sanchez Krieger, efna­hags- og mark­aðs­fræð­ingur, um reynslu sína af því að fara í atvinnu­við­tal hjá ráð­gjafa­fyr­ir­tæki sem var eitt það stærsta hér á landi en hún vildi fá starf miðað við menntun sína og reynslu hér á landi; þess má geta að hún stund­aði háskóla­nám í heima­landi sínu, Kólumbíu, og einnig í Mexíkó og Banda­ríkj­unum. Hún hafði áður komið að lok­uðum dyrum hjá stór­fyr­ir­tækjum hér á landi eftir að hafa farið í fjölda atvinnu­við­tala.“

Adriana er með margra ára reynslu úr alþjóð­legum við­skipta­heimi og vann til dæmis sem yfir­maður mark­aðs­mála hjá Sant­ander-bank­anum bæði í Suður-Ameríku og á Spáni. Hún gafst upp á atvinnu­leit­inni á Íslandi og fékk í fyrra starf sem fram­kvæmda­stjóri mark­aðs­mála hjá VISA í fjórum löndum í Suður-Ameríku og býr fjöl­skyldan nú í Bogotá. Geir nefnir að yfir­menn VISA á alþjoða­vísu hafi valið Adriana ásamt fleirum til að fara á vegum VISA til Katar síðar á þessu ári þegar heims­meist­ara­mótið í fót­bolta verður haldið þar en VISA er aðal­styrkt­ar­að­ili þess.

Ég skamm­ast mín fyrir mót­tök­urnar sem hún fékk á Íslandi.

„Þetta er fyrir neðan allar hellur í sam­fé­lagi okkar,“ segir Geir um mót­töku íslenskra atvinnu­rek­enda þegar Adriana sótti um fjölda starfa hér á landi. „Það er fullt af fólki sem hefur ótrú­lega hæfi­leika sem getur látið sam­fé­lag okkar blómstra enn meira en fær ekki tæki­færi til þess vegna þess að það eru ein­hverjir aðilar með minni­mátt­ar­kennd í ein­hverjum stöðum sem geta komið í veg fyrir það. Þetta gengur ekki. Adriana er heims­þekkt í sínu starfi fyrir dugnað og fyrir það að vera frjó í starfi og hugsun. Það fer ekk­ert nema gott orð af henni. Hún er vel metin í öllum löndum í Suður-Ameríku sem eru hjá VISA. Öllum. Ég skamm­ast mín fyrir mót­tök­urnar sem hún fékk á Íslandi; að þetta skuli vera til í mínu sam­fé­lagi. Í landi sem ég hef alla tíð elskað og virt; að það skuli taka þátt í svona. Að þetta skuli vera til í okkur.“

Geir segir að ástæð­una megi rekja til fámenn­is­ins á Íslandi. „Við erum í sjálfu sér ekki þjóð­fé­lag. Við erum ætt­bálkur og það sést bara best á því hvernig við störfum og hvernig hlut­irnir ganga fyrir sig á Íslandi. Ef við ætlum að vera þjóð­fé­lag þá þurfum við að koma með nýja stjórn­ar­skrá og við þurfum að fara að segja skilið við eitt­hvað sem við erum búin að venja okkur á og temja okkur í gegnum ára­tugi og aldir. Við þurfum sam­fé­lag sem fún­kerar og segja skilið við ætt­bálk­ana. Og fólkið í land­inu á að eiga landið en ekki ein­hverjir örfáir aðilar sem eru gjör­sam­lega að eyði­leggja allt fyrir öllum.“

Ísland er í fram­tíð­arplönum okkar sem fjöl­skyldu.

Geir segir að fjöl­skyldan sé ekki alflutt frá Íslandi. „Við verðum hérna í smá­tíma og ég fer nátt­úr­lega fram og til baka. En við tökum bara einn dag í einu. Við eigum íbúð­ina okkar á Íslandi og Ísland er í fram­tíð­arplönum okkar sem fjöl­skyldu. Yfirmenn VISA vilja nú helst að fólk vinni heima og mæti á skrif­stof­una kannski tvisvar í viku. Adriana var tjáð um dag­inn að hún mætti vinna hvar sem hún byggi en akkúrat í augna­blik­inu er hún að vinna að ákveðnu verk­efni sem felur í sér að hún þarf að ferð­ast á milli Kólumbíu og ann­arra landa í Suður-Ameríku og þar af leið­andi ákváðum við að hún myndi vera hér á meðan þetta varir.“

Fatlaðir að betla

Talið berst að fátækt­inni í Kólumbíu.

„Hjón með lítið barn stóðu nýlega fyrir utan húsið sem við búum í og kall­aði mað­ur­inn að hann þyrfti hjálp vegna þess að þau ættu ekki heim­ili, væru fátæk og ættu lítið barn sem þyrfti að fá að borða. Hann kall­aði að þau þyrftu að sofa ein­hvers staðar um nótt­ina.“

Þögn.

„Það eru svona hlutir sem eru til og þetta sér maður hérna því miður. Þegar maður er að keyra og stoppar á rauðu ljósi þá koma til dæmis rosa­lega færir lista­menn og sýna list sína og afla sér þannig tekna og svo kemur fólk sem er blint, er í hjóla­stól eða sem vantar hend­urnar á; þetta er nátt­úr­lega ógeðs­legt og það er ömur­legt að vita að þetta sé í sam­fé­lögum hvort sem það er hér eða ein­hvers staðar ann­ars staðar.“

Geir segir að þrátt fyrir ástandið í land­inu sé lækn­is­þjón­usta almennt góð í Kólumbíu og að hún sé í 22. sæti yfir bestu heil­brigð­is­kerfi í heim­inum. „Hérna eru frá­bærir læknar og hjúkr­un­ar­fólk alveg eins og heima en hérna er prótókól í kringum það sem virkar miklu betur. Ég fór í flensu­sprautu um dag­inn og þurfti ekki að borga krónu fyrir það vegna þess að það er almanna­heill að fólki líði vel. Og þetta er hvatn­ing fyrir það að mæta í bólu­setn­ingu til þess að koma í veg fyrir að fólk veik­ist.“

Það eru spít­alar fyrir börn fátæk­linga.

Geir segir að þetta bjóð­ist öllum lands­mönnum. „Fátækt fólk getur allt leitað til læknis og fengið heil­brigð­is­hjálp án þess að borga krónu fyrir það. Það eru spít­alar fyrir börn fátæk­linga. Það er allt hér. Það er hugsað fyrir öllu.“

Hvað hefur Geir lært af því að búa í Kólumbíu? „Ég hef lært það hvað við megum vera þakk­lát á Íslandi fyrir margt. Hér eru hlutir sem þú myndir aldrei sjá á Íslandi og Íslend­ingar hafa ekki hug­mynd um; hér er handa­laust fólk að biðja um pen­ing og fólk sem á ekki skó. Það er ekk­ert kerfi hér til að taka við fólki; það þarf að bjarga sér sjálft. Ísland gæti verið para­dís á jörðu. Ísland gæti verið flottasta land í heimi. En það er langt frá því að svo sé. Hugs­un­ar­háttur okkar er þess eðlis. Hann er ætt­bálks­legur. Hann er ekki þjóð­ern­is­legur. Það er vanda­málið.“

Kvíðastillandi og jafnvel róandi

Fyrir utan flensu­spraut­una hefur Geir þurft að nýta sér heil­brigð­is­kerfið í Kólumbíu en hann hefur í mörg ár þjáðst af miklum kvíða.

„Ég hef verið hepp­inn af því að ég hef verið með gott bak­land en það eru ekki allir sem hafa það. Og ég hef verið hepp­inn að hafa kynnst góðum lækni sem heitir Ólafur þór Ævarsson; þú mátt nafn­greina hann af því að hann er frá­bær læknir og hann er búinn að hjálpa mér og gera mig í raun og veru að því sem ég er í dag.

Ég sagði ein­hvern tím­ann að það sé eitt að vera kvíð­inn í tengslum við það að fara að gera eitt­hvað þegar fólk veit hvað það er að fara að gera en það er ekk­ert hægt að gera þegar maður er með sjúk­legan kvíða sem er lík­am­legur og and­legur og hann hellist yfir mann og maður getur ekki tengt hann við neitt. Það er miklu erf­ið­ara. Þung­lyndi og kvíði er bara ömur­legur sjúk­dómur og það er ömur­legt að vita til þess að fólk skuli vera að þjást af þessu.“

Þung­lyndið. „Auðvitað verður maður deprí­mer­aður þegar maður fær þetta. Ég verð aldrei reiður eða skap­bráður; ég læt þetta ekki bitna á fjöl­skyld­unni minni. Ég þarf bara að leggj­ast út af, hvíla mig og slaka á. En ég get ekki gert neitt á meðan. Það versta við þetta er að þetta er að ger­ast allt of oft.“

Fólk á ekki að hafa skoð­anir á ein­hverju sem það þekkir ekki.

Kvíðinn og þung­lyndið hafa jú áhrif á lífs­gæði Geirs. Mikil áhrif. „Þetta er bara erfitt. Og þetta er mjög mis­jafnt eftir fólki. Þannig að það skal eng­inn gera lítið úr þessu því þeir sem þekkja þetta vita hvað þetta er en þeir sem þekkja þetta ekki eiga bara að hafa hljótt því þeir vita ekki hvað þetta er. Þannig að fólk á ekki að hafa skoð­anir á ein­hverju sem það þekkir ekki. Það á ekki að hafa skoð­anir á fólki sem það þekkir ekki eða hafa fyrir fram ákveðnar skoð­anir. Það er svo mikil tíma­sóun að eyða tím­anum sínum í það til dæmis að tala um annað fólk.“

Geir segir að það hjálpi sér að vera mjög upp­tek­inn. „Það breytir þó ekki því að ég get fengið kvíða­kast þótt ég sé að spila á píanó.“

Ég hef hringt á sjúkra­bíl af því að mér hefur liðið svo illa.

Hann tekur kvíða­still­andi lyf og hann hefur reglu­lega þurft að taka róandi lyf. „Kvíðinn hefur þá verið svo mik­ill að ég hef ekki ráðið við mig. Ég hef hringt á sjúkra­bíl af því að mér hefur liðið svo illa. Þetta er rosa­legt. Það sem hjálpar mér mest er að ég er aldrei upp á kant við neinn. Ég eyði ekki tím­anum mínum í að tala illa um fólk eða að vera að ríf­ast við fólk. En ég læt ekki vaða yfir mig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi