Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Adriana Patricia Sanchez Krieger: „Fólk frá heimalandi þínu vinnur við þrif hér á landi“

Adriana Patricia Sanchez Krieger: „Fólk frá heimalandi þínu vinnur við þrif hér á landi“
Adriana Patricia Sanchez Krieger

„Mér var sagt að hér á landi fengi fólk frá heima­landi mínu vinnu við þrif eða við að gæta barna,“ segir Adriana Patricia Sanchez Krieger, efna­hags- og mark­aðs­fræð­ingur, um reynslu sína af því að fara í atvinnu­við­tal hjá ráð­gjafa­fyr­ir­tæki sem var eitt það stærsta hér á landi en hún vildi fá starf miðað við menntun sína og reynslu hér á landi; þess má geta að hún stund­aði háskóla­nám í heima­landi sínu, Kólumbíu, og einnig í Mexíkó og Banda­ríkj­unum. Hún hafði áður komið að lok­uðum dyrum hjá stór­fyr­ir­tækjum hér á landi eftir að hafa farið í fjölda atvinnu­við­tala. Adriana, sem er gift Geir Ólafs­syni söngv­ara, gafst upp á atvinnu­leit­inni á Íslandi og fékk í fyrra starf sem fram­kvæmda­stjóri mark­aðs­mála hjá VISA í fjórum löndum í Suður-Ameríku. Hún flytur bráð­lega til Kólumbíu ásamt sex ára dóttur þeirra Geirs, Önnu Rós, þar sem hún mun verða með skrif­stofu í Bogotá og ferð­ast vinnu sinnar vegna á milli land­anna fjög­urra. Geir mun svo fara á milli og búa í báðum lönd­unum. Adriana er með margra ára reynslu úr alþjóð­legum við­skipta­heimi og vann til dæmis sem yfir­maður mark­aðs­mála hjá Sant­ander-bank­anum bæði í Suður-Ameríku og á Spáni.

Ég var mjög fók­useruð á starfs­feril minn.

„Ég hóf starfs­feril minn í banka­geir­anum í Kólumbíu og vann í 15 ár hjá Sant­ander-bank­anum sem er stærsti banki í Suður-Ameríku og sá fimmti stærsti í Evrópu; þar hóf ég alþjóð­legan starfs­feril en ég vann í þrjú ár í Kólumbíu, tvö ár í Mexíkó og síðan vann ég hjá bank­anum í Madrid á Spáni þar sem höf­uð­stöðvar hans eru. Ég vann á þessum árum við þróun verk­efna á ýmsum mörk­uðum svo sem á Spáni, í Portúgal, Brasilíu, Banda­ríkj­unum og á Bret­landi. Starfs­menn Sant­ander-bank­ans eru um 183.000 og vann ég meðal ann­ars við fram­tíð­ar­sýn bank­ans í öllum löndum þar sem hann er starf­ræktur og fór þess vegna til ýmissa landa vegna þess verk­efnis. Ég var mjög fók­useruð á starfs­feril minn; ég var súper­kona þangað til ég lenti í „Ólafsson-hvirf­il­bylnum,“ segir Adriana en segja má að Geir Ólafsson söngv­ari hafi komið eins og storm­sveipur inn í líf hennar á nes­inu þar sem eldar gusu upp úr iðrum jarðar í fyrra. Það log­aði eldur í hjarta hans dag­inn sem hann sá Adriana í fyrsta skipti.

O Sole Mio

Árið var 2009. Hrunið hafði leikið Ísland sem og fleiri lönd grátt og vin­kona Adriana, Patrica Reyes, stakk upp á að þær færu til Íslands í frí þar sem hér væri ódýrt að vera. „Írlands?“ segir Adriana að hún hafi spurt vin­konu sína. Hún hlær; segir svo að hún elski að fara í heilsu­lindir en vin­konan hafði sagt að Bláa lónið á Íslandi væri ein sú besta í heim­inum.

„Við vorum hérna í 10 daga. Þremur dögum eftir kom­una til lands­ins tal­aði Patricia um að bestu dúnsængur í heimi væru fram­leiddar á Íslandi. Ég vissi það ekki. Hún sagði að það væri sér­stök verslun við Laugaveg sem seldi slíkar sængur, Dún og fiður. Við fórum þangað og keypti Claudia nokkrar sængur; þetta hefur án efa verið besta sala dags­ins. Sagt var að þær yrðu pakk­aðar í loft­tæmdar umbúðir þannig að auð­velt yrði að fara með þær í flug. Okkur var sagt að starfs­maður myndi koma með sæng­urnar í Bláa lónið morg­un­inn eftir en við gistum á hót­el­inu þar alla ferð­ina.

Þú getur ímyndað þér! „The deli­very boy!“

Morg­un­inn eftir vorum við að borða morg­un­mat; við ætl­uðum síðan að fara í nudd og ég var ómáluð og með hárið í tagli. Ég leit hræði­lega út,“ segir Adriana með áherslu. „Þetta var um klukkan níu um morg­un­inn og allt í einu kom ein­hver maður inn og fylgdi honum mik­ill hávaði,“ segir hún en nokkrar konur fóru að tala við mann­inn og taka af honum myndir. „Þetta var eins og í fugla­bjargi. Síðan kall­aði mað­ur­inn: „Hver er Claudia Reyes?“ Ég hugs­aði með mér „hví­lík nið­ur­læg­ing“. Ég sagði við Claudia að hann væri að leita að henni. Maðurinn kom til okkar og sagð­ist vera með sæng­urnar frá Dún og fiður. Síðan leit mað­ur­inn, Geir, á mig og ég leit hræði­lega út. Hann sagði okkur síðan að bíða, fór í eld­húsið og heils­aði upp á starfs­menn þar og kom svo aftur til okkar. Vinkona mín spurði hvort hann væri búinn að borða morg­un­mat og hann sagði svo ekki vera og náði í stól og sett­ist hjá okkur. Ég spurði Claudia á spænsku hvað væri í gangi. Þú getur ímyndað þér! „The deli­very boy!“ Í Kólumbíu sest „the deli­very boy“ ekki hjá við­skipta­vinum. Geir spurði okkur síðan hvaðan við værum og hvað við værum að gera á Íslandi. Hann sagð­ist vera frægur söngv­ari og að fólkið hafi þekkt hann þegar hann kom inn. Ég hugs­aði með mér „guð minn almátt­ugur“. Hann horfði mikið á mig og sagði að ég væri fal­leg­asta kona sem hann hefði séð á ævi sinni. Og ég hugs­aði aftur með mér „guð minn almátt­ugur“. Vinkona mín spurði hann um Ísland og hann sjálfan og svo spurði hann mig hvers vegna ég segði ekki neitt. Ég sagði þá „ertu söngv­ari?“. „Já,“ sagði hann. „Syngdu þá,“ sagði ég. Þá stóð hann upp og byrj­aði að syngja O Sole Mio. Ég leit á Patricia og sagði að hann gæti sungið.“

Geir bauð vin­kon­unum næstu daga meðal ann­ars út að borða og á fót­bolta­leik. „Við fórum ýmis­legt með honum en ég vildi ekki fara neitt með honum ein. Síðasta dag­inn sagði hann að við tvö þyrftum að tala saman en ég vildi það ekki. Ég sagði að hann væri senni­lega hinn dæmi­gerði söngv­ari sem væri með öllum konum á eyj­unni og að ég hefði ekki áhuga. Ég væri ekki þannig og ég væri ekki að leita að kærasta. Þá sagði hann að hann myndi kvæn­ast mér einn dag­inn. Mér fannst þessir Íslend­ingar vera klikk­aðir,“ segir Adriana og hlær.

Ást í Las Vegas

Árin liðu. Þrjú ár liðu. Adriana og Geir vorum í sam­skiptum um einu sinni í mán­uði: Sendu tölvu­póst eða töl­uðu saman í síma.

„Hann hringdi í mig í jan­úar 2012 og óskaði mér gleði­legs árs en ég hafði farið að vinna verk­efni fyrir VISA í Kólumbíu eftir að hafa unnið á Spáni. Hann spurði hvenær hann gæti komið til Kólumbíu og ég sagði að hann gæti það þegar hann vildi; Kólumbía væri frjálst land og fólk gæti komið þangað sem ferða­menn. Þá sagð­ist hann vilja vera með mér. Ég sagði að það yrði ekki. Þá sagð­ist hann koma fram á tón­leikum í Los Angeles í febr­úar og hann vildi bjóða mér á tón­leik­ana. Ég hafði aldrei komið þangað þannig að ég sló til.“

Fyrst þessi maður fengi áritun til að kom­ast til Banda­ríkj­anna þá væri hann ekki á lista hjá Interpol.

Og í febr­úar hitt­ust þau Adriana og Geir eftir þriggja ára aðskilnað í borg englanna. Áður hafði hún þó gúgglað Geir. „Ég hugs­aði með mér að fyrst þessi maður fengi áritun til að kom­ast til Banda­ríkj­anna þá væri hann ekki á lista hjá Interpol.“ Hún hlær. „Það eru brjál­æð­ingar út um allt og ég vissi í raun­inni ekki hver hann er. Ég sagði svo við Geir að hann yrði að bera virð­ingu fyrir mér og sofa í sér­her­bergi.“

Hún talar um hvað Geir sé heill­andi. Sér­stakur. „Ég kynnt­ist honum betur; ekki karakt­ernum sem fólk þekkir sem er partur af „the show“ heldur þessum ein­stak­lingi sem er blíður, elsku­legur og vina­legur og ég hugs­aði með mér hvað hann væri góður maður. Hann stakk síðan upp á því að við færum til Las Vegas sem við gerðum og þá byrj­uðum við að vera saman. Hann sagð­ist í ferð­inni vilja kynn­ast for­eldrum mínum. Úff, hann fór hratt í þetta. Þá sagði hann að ég væri búin að láta hann bíða í þrjú ár og þá sagð­ist ég vilja kynn­ast for­eldrum hans fyrst. Hann bauð mér þá til Íslands og kom ég hingað í apríl og hitti for­eldra hans sem eru ynd­is­legir. Við fórum síðan til Kólumbíu þar sem hann hitti for­eldra mína og systur og ég hugs­aði með mér hvernig ég ætti að útskýra þetta af því svona ger­ast hlut­irnir ekki í Suður-Ameríku.“

Verk­efn­inu fyrir VISA lauk svo í Kólumbíu og flutti Adriana aftur til Spánar í jan­úar 2013 til að halda áfram að vinna fyrir Sant­ander-bank­ann og flutti Geir líka þangað. Hún varð ófrísk árið 2015, dóttirin Anna Rós kom svo í heim­inn og árið 2017 gengu þau Adriana og Geir í hjóna­band – eitt­hvað sem Geir hafði sagst ætla að gera eftir stutt kynni árið 2009. Hann vissi hvað hann vildi.

Hvað er ástin í huga Adriana? „Ástin er jafn­vægi. Ástin er friður. Ástin er ró. Ástin er sam­ein­ing. Ástin er að vera með sam­eig­in­leg mark­mið. Mesta ástin er síðan móð­ur­ástin.“

Fordómar

Adriana, Geir og Anna Rós fluttu til Íslands og Adriana ákvað að verða heima­vinn­andi hús­móðir. Eftir eitt ár fannst henni veggirnir á heim­il­inu vera farnir að þrengja að sér. Hún vildi fara aftur út á vinnu­mark­að­inn og ákvað að leita sér að vinnu. Og hún vildi leggja eitt­hvað til íslensks sam­fé­lags.

„Ég hugs­aði með mér „guð minn góður, hvað hef ég gert?“. Ég elska dóttur mína og ég elska Geir en por favor! Geir sagði að íslensk fyr­ir­tæki myndu slást um mig með mína reynslu. Ég tala spænsku, ensku og portú­gölsku af því að mamma er brasil­ísk og er með alþjóð­lega reynslu og hann sagði að ég skyldi ekki hafa áhyggjur. Geir þekkir marga og hann sagð­ist ætla að hafa sam­band við fólk í ýmsum fyr­ir­tækjum til að athuga hvort ég fyndi starf. Og þarna byrj­uðu hremm­ing­arnar.“

Þá gerði ég mér grein fyrir að við­kom­andi hafði verið að fal­ast eftir upp­lýs­ingum.

Adriana nefnir sum af stærstu fyr­ir­tækjum lands­ins sem eru með alþjóð­leg tengsl mörg hver og fór hún í mörg atvinnu­við­töl. Hún nefnir jafn­vel tveggja tíma við­töl og hafi hún meðal ann­ars verið spurð hvernig hún hafi unnið og leyst hin ýmsu verk­efni og það kom jafn­vel fyrir að hún hafi verið beðin um að senda í kjöl­farið lýs­ingu á ýmsum verk­efnum sem hún hafði unnið erlendis. Svo var aldrei hringt í hana í kjöl­farið. „Þá gerði ég mér grein fyrir að við­kom­andi hafði verið að fal­ast eftir upp­lýs­ingum varð­andi það hvernig ég vann hin ýmsu verk­efni. Í ein­hverju til­felli var þetta ferli sem stóð yfir í einn og hálfan mánuð! Ég sótti til dæmis um starf þar sem var aug­lýst eftir sér­fræð­ingi á mark­aðs­sviði sem tal­aði að minnsta kosti tvö tungu­mál og hefði þekk­ingu á Suður-Ameríku og Evrópu! „Það er ég!“ Ég komst í við­tal og þá var spurt hvort ég tal­aði íslensku. Ég sagði svo ekki vera og þá var mér sagt að þetta gengi ekki. Ég sagð­ist geta lært íslensku. Mér skild­ist hins vegar að starfið fælist í að fá útlend­inga til lands­ins.

Ég sótti á þessum tíma um störf meðal ann­ars í bönkum, flug­fé­lögum og hjá korta­fyr­ir­tæki og svo sagði Geir að ég yrði að skrá mig hjá ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæki. Það væri málið. Ég fór í tveggja tíma við­tal hjá einu slíku og sagði frá reynslu minni og þekk­ingu. Starfs­mað­ur­inn þar sagði að það væri hindrun að ég tal­aði ekki íslensku. Ég sagði að ég væri til­búin til að læra íslensku. Eftir tveggja tíma við­tal sagð­ist þessi starfs­maður ætla að vera hrein­skil­inn: Að til Íslands kæmi fólk frá heima­landi mínu til að þrífa hús eða gæta barna.“

Adriana tár­ast.

Þögn.

„Þetta var mjög erfitt. Ég tek fram að ég ber mikla virð­ingu fyrir fólki sem vinnur við þrif; þetta er mjög erfitt starf sem ég hef aldrei unnið við og hef ekki hugsað mér að vinna við það. Ég gekk mennta­veg­inn og byggði ekki upp alþjóð­legan starfs­frama til að þrífa hús. Það sama á við að gæta barna. En ef þetta er það sem mér er boðið upp á á Íslandi þá nei takk.“

Hún segir að Geir hafi beðið úti í bílnum á meðan hún var í við­tal­inu hjá ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­inu og fór hún að gráta þegar hún var sest inn í bíl­inn.

„Geir var bál­reiður. Hann sagð­ist ætla að tala við þennan starfs­mann en ég vildi það ekki.“

Adriana segir að hún haldi að þrennt ráði því hvernig við­tökur hún fékk þegar hún sótti um starf hér á landi og hún er varla sú eina af erlendu bergi brotin sem hefur sömu sögu að segja.

Ég er hins vegar að fara að flytja úr landi vegna þess að ég fæ ekki starf við hæfi.

„Í fyrsta lagi eru ríkj­andi for­dómar á Íslandi sem tengj­ast því að stór hluti útlend­inga sem flytur hingað til lands er fólk sem stendur illa fjár­hags­lega og kemur til að leita að betra lífi. Margt af þessu fólki er frá fátækum löndum, er jafn­vel ómenntað og fer að vinna við þrif eða að gæta barna. Ísland er frá­bært land til að búa í. Þetta er stór­kost­legt land í því til­liti. Ég er hins vegar að fara að flytja úr landi vegna þess að ég fæ ekki starf við hæfi; ef staðan væri önnur þá myndi ég búa hér áfram. Ég er ekki betri en þeir sem flytja til Íslands í leit að betra lífi heldur hef ég fengið fleiri tæki­færi í líf­inu en flest af þessu fólki; ég hef unnið hjá einum stærsta banka í heimi og gegnt þar ábyrgð­ar­störfum. „Hvað er hún að vilja upp á dekk?“ gæti fólk hugsað. Ég flutti til Íslands vegna ástar. Ég hitti einu sinni kunn­ingja okkar og var þá spurð hvað kílóið af kóki kosti í Kólumbíu. Ha? ég skil ekki! Coca Cola? Þá var mér bent á að ég væri frá Kólumbíu og að við­kom­andi ætti við kókaín. Ég sagð­ist ekki hafa hug­mynd um það.“

Adriana segir að í öðru lagi sé Ísland lítið og fámennt land og að Íslend­ingar almennt ekki vanir eins stórum alþjóð­legum fyr­ir­tækjum og hún hefur unnið hjá hvað þá vanir erlendum starfs­mönnum sem hafa unnið hjá slíkum fyr­ir­tækjum. Og í þriðja lagi segir hún að Íslend­ingar mættu vera lít­il­lát­ari; hún segir að margir Íslend­ingar virð­ist hroka­fullir.

Jú, hún grét í bílnum þar sem Geir beið og hún segir að hún hafi gert sér grein fyrir því að þau við­brögð og mót­tökur sem hún fékk hafi ekki skil­greint hana sjálfa svo sem kommentin um það að landar hennar komi til Íslands til að vinna við þrif og að hún hafi verið spurð hvað kílóið af kóka­íni kosti. „Þetta er ekki ég; ég er meira en þetta sem mann­eskja.“

Fátæktin

Faðir Adriana er frá Kólumbíu og móðir hennar frá Brasilíu og talar Adriana spænsku, portú­gölsku og ensku. Föð­ur­fjöl­skyldan á bújarðir og lærði faðir hennar land­bún­að­ar­verk­fræði í háskóla í Brasilíu og þar kynnt­ist hann ást­inni í lífi sínu, móður Adriana og fjög­urra systra hennar, sem var að læra enskar og portú­galskar bók­menntir. Þau gengu í hjóna­band og bjuggu í Kólumbíu í nokkrum borgum vegna vinnu fjöl­skyldu­föð­ur­ins. Og í einni þeirra, Cali, fædd­ist Adriana Patricia Sanchez Krieger. Svo var flutt til Bogotá.

Föð­ur­af­inn og -amman áttu verslun og var Adriana ein­ungis um sjö ára þegar hún fór að hjálpa þeim. Hún segir að þetta hafi verið sitt fyrsta starf. Hlær. „Halló, hvað má bjóða þér?“ Þú getur ímyndað þér að koma inn í verslun þar sem sjö ára barn var að vinna. Þetta var mitt fyrsta starf; alls ekki skrifa að börn í Kólumbíu vinni.“ Hlátur. „Þar er ekki barna­þrælkun; mér fannst bara vera gaman að vera með ömmu og afa og var oft hjá þeim í fríum. Frá því ég var barn vildi ég vinna mér inn pen­ing. Þegar ég var síðar í háskóla fékk ég laun við að aðstoða pró­fess­ora.“

Hún segir að draumur sinn sem barn og ung­lingur hafi verið að ferð­ast. „Ekki að gifta mig og verða móðir; það var ekki aðal­at­riðið varð­andi fram­tíð­ar­draumana. For­eldrar mínir lögðu áherslu á að ég myndi mennta mig, ferð­ast og lifa líf­inu og svo gæti ég gift mig og eign­ast börn. Mig dreymdi um að ferð­ast og kynn­ast nýjum stöðum en ég hef meðal ann­ars farið til Kína, Egypta­lands, Grikk­lands, Tyrk­lands, ég hef farið til Evr­ópu­landa eins og Bret­lands, Þýska­lands, Portú­gals, Spánar, Tékk­lands og Króatíu og svo hef ég farið til næstum því allra landa í Suður-Ameríku.“

Hún segir að for­eldrar sínir séu ekki millj­arða­mær­ingar en hafi það gott en það sama er ekki að segja um alla í Kólumbíu þar sem fátæktin er sums staðar mikil og segir hún að þar séu börn sem fái engan mat að borða og að sum þeirra deyi úr vannær­ingu.

„Það sem ég hef aldrei getað van­ist er að sumir Íslend­ingar kvarta mikið. Það þarf nátt­úr­lega að laga ýmis­legt á Íslandi en landið er þó fyrsta flokks. Hér eru mikil lífs­gæði, gott heil­brigðis- og mennta­kerfi og mögu­leik­arnir eru miklir. Og á meðan sum börn hafa ekk­ert að borða í Kólumbíu þá eru sumir á Íslandi að kvarta yfir því að kom­ast ekki til Tenerife. Þetta er partur af hugs­un­ar­hætt­inum,“ segir Adriana sem tekur fram að hún eigi mjög góða vini á Íslandi sem verði alltaf í hjarta hennar.

Fram undan er fjöl­skyldu­líf í tveimur löndum þótt Adriana muni verja meiri tíma í Kólumbíu heldur en á Íslandi. Anna Rós mun flytja með móður sinni til Kólumbíu síðar í maí og Geir fer með þeim en hann er í fram­boði fyrir Mið­flokk­inn fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar og það fer allt eftir því hvernig honum gengur í þeim slag hversu miklum tíma hann mun verja með fjöl­skyld­unni.

Hún sem fékk ekki starf á Íslandi mun því halda áfram að vinna sem fram­kvæmda­stjóri mark­aðs­mála hjá VISA í nokkrum löndum í Suður-Ameríku með aðsetur í Bogotá í Kólumbíu.

Það að upp­lifa svona höfnun gerir mann lít­il­lát­ari.

„Hvað hefur Adriana lært af því að fá þessi við­brögð hér á landi í atvinnu­leit­inni? „Lít­il­læti; það að upp­lifa svona höfnun gerir mann lít­il­lát­ari og ég hef lært að það eru hlutir sem ég get ekki breytt. Það er ekki hægt að breyta hugs­un­ar­hætti Íslend­inga; ég get það alla­vega ekki. Sumir Íslend­ingar kvarta og ég mun aldrei skilja það. Ég get hvorki breytt hugs­un­ar­hætt­inum né for­dómunum. Ég get ekki breytt ímynd­inni. Ég myndi vilja að sumir Íslend­ingar hugs­uðu öðru­vísi, ég myndi vilja að þeir sæju það sem ég sé og mögu­leik­ana hér en margir þeirra sjá þá ekki.“

Fram undan eru heitir dagar. Adriana bendir á að þar sem Kólumbía er eitt þeirra landa sem mið­baugur liggur um þá séu ekki árs­tíðir þar heldur breyt­ist hita­stigið eftir því í hvaða hæð er um að ræða. „Hitinn er almennt um 35-38 stig niðri við sjó og hærra inn í land­inu. Í borgum eins og Medillín er hita­stigið um 21 stig og í Bogotá sem er í um 2.600 metra hæð er mun kald­ara.“

Adriana talar um góm­sætu ávext­ina sem vaxa í Kólumbíu og svo talar hún um tón­list­ina og dans­inn.

„Ég verð að segja eitt; íbúar í Kólumbíu verða að kunna að dansa. Og það skiptir engu máli hvort fólk dansar vel eða illa. Dansinn er aðferð til að tengj­ast öðru fólki, kynn­ast fólki og eign­ast vini og jafn­vel verða ást­fang­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ