Tanja Ísfjörð, ein af forsprökkum og stofnendum aðgerða- og baráttuhópsins Öfgar, sem berst gegn kynbundnu ofbeldi, virðist leið yfir vinslitum Jóns Steinars Gunnlaugssonar lögmanns og Davíðs Odssonar ritstjóra. Hún tjáir sig um vinslitin á Twitter þar sem hún segir glettin og vafalaust í kaldhæðni:
„ Karlar eru körlum verstir. S orglegt:/ “
Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður og fyrrverandi hæstarréttardómari, er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar. Jón Steinar segist í þættinum ekki hafa heyrt í Davíð Oddssyni í langan tíma, líklega vegna þess að Davíð hafi verið ósáttur við skoðanir hans:
Sjá einnig: Vinslit Davíðs og Jóns Steinars: ,,Hann hætti að tala við mig“
,,Við höfum ekki talað saman í meira en ár. Hann hætti bara að tala við mig og hefur líklega farið í fýlu út í mig. Hann hefur ekki fengist til að segja mér hvað veldur þessum vinslitum.“































Athugasemdir