Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Vinslit Davíðs og Jóns Steinars: ,,Hann hætti að tala við mig“

Jón Steinar Gunnlaugsson
Jón Steinar Gunn­laugs­son

Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður og fyrr­verandi hæstarréttardómari, er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggva­sonar. Jón Steinar segist í þættinum ekki hafa heyrt í Davíð Oddssyni í langan tíma, líklega vegna þess að Davíð hafi verið ósáttur við skoðanir hans:

,,Við höfum ekki talað saman í meira en ár. Hann hætti bara að tala við mig og hefur líklega farið í fýlu út í mig. Hann hefur ekki fengist til að segja mér hvað veldur þessum vinslitum. Kannski af því að ég lét ég í ljósi andúð mína á meðferð hæstaréttar á broti þar sem bankamenn voru dæmdir umvörpum í fangelsi fyrir umboðssvika­brot. Það eru skilyrði fyrir slíkum brotum að menn hafi haft tilgang til auðgunar. Ég skrifaði um þetta og einn af þeim sem voru tengdir Arionbanka, Ólafur Ólafsson, leitaði til mín og ég skrifaði álitsgerð um þann dóm, þar sem ekki stóð steinn yfir steini og brotinn réttur á sakborningi. Ég held, þó að ég viti það ekki fyrir víst að Davíð, gamli vinur minn, hafi alls ekki verið hrifinn af þessu,” segir Jón Steinar og bætir við: 

En mér er alveg sama, af því að ég lifi fyrir lögfræðina mína og mína eigin sannfæringu. Ég má ekki byrja að gefa afslátt á minni betri vitund. Ég hef alltaf tekið það hlutverk alvarlega að vera lögfræðingur og dómari og að starfa við að verja réttindi borg­aranna. Það hefur þýtt það að ég hef oft gagnrýnt Davíð í gegnum tíðina, bæði á pólitískum forsendum og öðrum, þó að það hafi nú aldrei valdið vinslitum fyrr en núna. En ég var til dæmis alls ekki hrifinn af því þegar hann lét Reykja­víkurborg reisa veitinga­stað uppi á Öskju­hlíðinni á sínum tíma, þegar Perlan var byggð. Hvaða bull er það að Reykja­víkurborg sé að reka veitinga­stað í Öskjuhlíð? Eða þegar hann ætlaði að láta íslenska ríkið gangast í ríkis­ábyrgðir fyrir skuld­bindingar Íslenskrar Erfða­greiningar. Þetta er einka­fyrirtæki. Hvaða rugl er það? Eða þegar hann var að banna einka­fyrirtækjum að eiga hlut í fjöl­miðlum. Þá skrifaði ég grein í Morgun­blaðið sem hét: ,,Ég styð frelsið”. Lífs­hugsjón mín er sú að við búum í samfélagi að við séum frjálsir einstaklingar. Að við eigum að vera frjáls til athafna, en bera svo ábyrgð á því sem við erum að gera. Þetta eru mínar grundvallar­skoðanir og það að halda mig við þessar hugsjónir hefur oft kostað mig vandræði. Það er oft verið að reyna að gera eitthvað annað úr mér en ég er. Ég er hugsjóna­maður, bæði í pólitík og lögfræði. Og ef að Sjálfstæðis­flokkurinn er ekki að breyta rétt, þá fær hann engan stuðning hjá mér. Ég neita að láta flokka mig í eitthvað lið.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“