Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

McConaughey var kúgaður til kynlífs 15 ára og nauðgað 18 ára: „En ætla ég að burðast með þetta?“

McConaughey var kúgaður til kynlífs 15 ára og nauðgað 18 ára: „En ætla ég að burðast með þetta?“
Matthew McConaughey Mynd: Nathan Congleton

Stór­leik­ar­inn Matthew McConaughey tjáði sig opin­skátt um for­tíð­ina í nýju við­tali í hlað­varps­þætt­inum The Conversation: About the Men en þar sagði hann meðal ann­ars frá því að hann hafi verið kúg­aður til kyn­lífs aðeins 15 ára. Þá var hann einnig mis­not­aður af karl­manni 18 ára gam­all.

Matthew hefur áður sagt frá mis­notk­un­inni í bók sinni Greenlights en í hlað­varps­þætt­inum vildi hann ekki fara í mikil smá­at­riði í báðum mál­unum en sagði að hann hafi vitað að eitt­hvað var ekki í lagi. Byggði hann það á þeirri leið­sögn sem hann hafði fengið frá for­eldrum sínum.

Í við­tal­inu rifj­aði hann upp þegar hann lærði fyrst um kyn­líf og kyn­ferð­is­lega nánd frá föður sínum:

„Mér hafði verið kennt, verið leið­beint af for­eldrum mínum um virð­ingu gagn­vart konum, virð­ingu gagn­vart sam­böndum, virð­ingu fyrir kyn­ferð­is­legri nánd, virð­ingu fyrir rými. Pabbi kenndi okkur um býfl­ug­urnar og blómin þar sem hann sagði „Þú ert að kom­ast á kossa­ald­ur­inn, ekki satt?“ og ég svar­aði, „jú herra.“ Og þá sagði hann, „Sko, þetta mun ganga tals­vert lengra einn dag­inn. Þetta mun senni­lega enda á þú verðir náinn ein­hverri og það kemur að brjóst­unum og senni­lega muntu fara fyrir neðan belti,“ ég er að umorða þetta, og hann sagði svo „Þetta mun ger­ast hjá þér líka“.“ Matthew hélt áfram að lýsa sam­tal­inu við föður sinn: „Og hann heldur áfram og segir við mig „Sonur, sem karl­maður í þessum kring­um­stæðum, ef þú finnur að stelpa, að konan hiki, stopp­aðu. Þú gætir jafn­vel fundið að stelpan hikar og eftir að þú stoppar að þá biður hún þig um að halda áfram. Ekki gera það. Bíddu þar til næst.“ Og hann hafði rétt fyrir sér,“ sagði Mathew og sagð­ist hann hafa upp­lifað einmitt þetta en alltaf tekið rétta ákvörðun og stoppað.

Sagði leik­ar­inn að vegna þess­arar kennslu hafi hann verið mjög skýr um það hvað telst vera heil­brigt kyn­ferð­is­sam­band og hvað ekki og að hann hafi fundið það strax, að vera kúg­aður til kyn­lífs 15 ára, hafi alls ekki verið rétt.

„En ég var mjög viss að þetta var ekki rétt, að þetta væri ekki flott, að þetta væri ekki eins og þetta á að vera,“ sagði Matthew og hélt áfram: „Eftir þetta átti ég í nokkrum heil­brigðum kyn­ferð­is­legum sam­böndum og kynnst stelpur sem ég hreifst af og þær af mér og smá saman urðum við nán­ari og það var fal­legt og klaufa­legt og allt það, en aldrei ljótt eins og hitt var.“

Þegar Matthew var svo mis­not­aður 18 ára seg­ist hann ekki hafa tengt það við kúg­un­ina fyrr en löngu seinna. „Ég tengdi þetta ekki saman,“ sagði hann. Við­ur­kennir hinn 52 ára gamli leik­ari að hann hafi ekki farið í með­ferð til að kom­ast yfir áfallið sem hann lenti í, en að hann hafi átt svo marga góða að sem hjálp­uðu honum í gegnum þetta. „Ég hef átt mjög góða vini. Ég hef átt góða leið­bein­endur,“ sagði Matthew en sagði enn­fremur að fólk tak­ist á við áföll á mis­mun­andi hátt. Segist hann ekki hafa haft það val að fest­ast í þessu, hann elski lífið of mikið og trúir of mikið á fólk til þess að eyða líf­inu hræddur við allt það slæma og hættu­lega sem hefur komið fyrir hann.

„Ég ætla ekki að vera hræddur í sam­böndum vegna þess að fyrsta reynsla mín var kúgun. Neihei. Það var frá­vik. Nei, nei. Þannig er þetta ekki. Ég ætla ekki að láta þetta eyði­leggja traust mitt á fólki og segi:

„Nei, ég get átt heil­brigt sam­band. Það er óum­semj­an­legt. Nei.“

Þetta gerð­ist. Er ég að afneita þessu? Nei, ég er ekki að afneita þessu. Ljótt, oj. Ég fæ enn, jafn­vel þegar ég er að segja þér þessa sögu, ég fæ enn … en ætla ég að burð­ast með þetta? Ég vel, óum­semj­an­legt, ég ætla ekki að burð­ast með þetta, burð­ast með þennan far­angur inn í það líf sem ég vil lifa og hvernig ég kem fram við fólk og treysti fólki og hvernig ég lít á kring­um­stæður og þær áhættur sem ég gæti tekið.“

Það var ETonline sem fjall­aði um við­talið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife