Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fréttamálið: Ofbeldisalda skellur á unglingana okkar

Fréttamálið: Ofbeldisalda skellur á unglingana okkar
Myndin teng­ist ekki þeim atvikum sem um er rætt í grein­inni.

Und­an­farið ár hefur hver fréttin rekið aðra þar sem sagt er frá grófu ofbeldi ung­linga og ung­menna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og má með sanni kalla það bylgju. Barna­mála­ráð­herra sagði nýlega að þörf væri á átaki til að sporna gegn þess­ari þróun. Því er verk­efna­stjóri á neyð­ar­mót­töku Land­spít­al­ans sam­mála, en þar mæla menn aukna hörku í lík­ams­árásum þessa ald­urs­hóps.

Hnífsstungur og kynferðisbrot

Fréttir hafa borist und­an­farið af auknu ofbeldi meðal ung­linga og ung­menna. Sést það helst meðal ann­ars á meira ofbeldi í miðbæ Reykja­víkur en stungu­árásum hefur fjölgað sem og alvar­leg kyn­ferð­is­brot svo fátt eitt sé nefnt. Sem nýlegt dæmi má nefna að í ágúst­mán­uði réð­ust nokkrir ung­lings­piltar á 16 ára gamlan dreng og stungu hann í bakið og var talið mikið mildi að dreng­ur­inn lifði árás­ina af, enda blæddi mikið. Ger­end­urnir voru 17 og 18 ára. Þá var meint kyn­ferð­is­brot í Fjöl­brauta­skóla Suð­ur­lands, þar sem báðir aðilar voru undir lög­aldri, mikið í umræð­unni fyrir stuttu. Nýjasta málið er frá miðjum sept­em­ber en þá var ráð­ist á 18 ára dreng með þroska­skerð­ingu í und­ir­göngum við Sprengisand í Reykja­vík og reynt að hafa af honum hjól en hann var á leið á íþrótta­æf­ingu. Í kjöl­farið var hann stung­inn þrisvar sinnum. Pilt­ur­inn var fluttur á gjör­gæslu þar sem hann und­ir­gekkst aðgerð. Ger­end­urnir voru þrír ung­lings­piltar.

Vett­vangur glæps­ins.

Í árs­skýrslu Stíga­móta fyrir síð­asta ár, kemur fram að mikla athygli hafi vakið hversu margir ofbeld­is­manna, sem leitað hafi til sam­tak­anna, hafi verið undir lög­aldri er þeir frömdu brotin. Þar kemur fram að af þeim 700 brota­mönnum sem safnað var upp­lýs­ingum um á síð­asta ári, hafi 107 þeirra eða 16.7 pró­sent, verið á aldr­inum 14-17 ára. Enn­fremur kemur fram í skýrsl­unni að 66.4 pró­sent brota­þol­anna sem leit­aði til Stíga­móta árið 2021 hafi verið yngri en átján ára er þau voru fyrst beitt kyn­ferð­is­of­beldi.

Kynferðismálum fjölgar á ný eftir Covid

Hulda Hrönn Björg­úlfs­dóttir, verk­efna­stjóri á neyð­ar­mót­töku Lands­spít­al­ans fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis, sagði í við­tali við Mannlíf að aukin harka sé að fær­ast í lík­ams­árás­ar­mál, þá sér­stak­lega hjá ungu fólki en áður en hún varð verk­efna­stjóri vann hún á bráða­mót­tök­unni í 15 ár.

Bráða­mót­taka Land­spít­al­ans.

 „Fólk hefur áhyggjur af því, árás­irnar eru orðnar gróf­ari, verið er að nota hnífa og fleiri vopn og hópárásir þar sem ekk­ert er gefið eftir. Þetta er ekki kýl­ingar eins og þekkt­ist í gamla­daga. Fólk ein­hvern­veg­inn svífst einskis og við vitum ekki alveg hvað veldur en við höldum að þetta teng­ist inter­net­inu. Þar er allt orðið svo opið,” sagði Hulda.
Sagði hún einnig að kyn­ferð­is­af­brotum meðal ungs fólks sé að aukast aftur eftir nokkra lægð síð­ustu tvö árin. „Við tengjum þetta við Covid, því að flest kyn­ferð­is­brota­mál sem koma til okkar tengj­ast skemmt­ana­líf­inu. Það eru engar sam­göngu­tak­mark­anir lengur og fólk er að fara út á djam­mið á skemmti­stöð­unum og í partý en kyn­ferð­is­brotin eiga sér ekki stað á skemmti­stöð­unum heldur í heima­húsum eftir djam­mið að mestu. Þetta er ekki meira en fyrir Covid en er að fara upp í svip­aðan fjölda og fyrir Covid.“ Aðpurt segir Hulda að kyn­ferð­is­brotin séu þó ekki mæl­an­lega gróf­ari en áður. „Þetta er mjög svipað og hefur verið þó það komi grófar árásir inn á milli, en það hefur kannski ekki verið mikið í umræð­unni. Ég á þá við árásir þar sem áverkar eru sýni­legir en tek fram að allar árásir eru auð­vitað hrylli­legar.“

Hulda segir einnig í sam­tali við Mannlíf að grunur sé um að kyn­ferð­is­brotin komi oft vegna klám­notk­unar ung­menna. Samkvæmt skýrslu Mennta­vís­inda­stofn­unar um börn og net­miðla sem kom út á árinu, hafa tæp­lega þrír af hverjum tíu nem­endum í 8. bekk horft á klám á net­inu en hlut­fallið hækkar svo með árunum. Rúmur helm­ingur nem­enda í 10. bekk hefur horft á klám og 70 pró­sent fram­halds­skóla­nema.

Dæmi um nið­ur­stöðu könn­un­ar­innar

„Strákar virð­ast fá sínar hug­myndir um það hvað kyn­líf er eða haldað að það sé, ég veit það ekki, úr klámi. Það virð­ist vera ofsa­lega mikil harka í þessu, þó að það séu til alls­konar hug­myndir um kyn­líf þá ertu kannski ekki í því á fyrsta stefnu­móti.“ En hvað er hægt að gera til að sporna við þess­ari þróun? „Það er hell­ings vinna í gangi núna, það eru lands­sam­ráðs­fundir og það á að fara að reyna að búa til ein­hvern far­veg og auka fræðslu í skólum. Það er það sem mér finnst að þurfi að gera.“

Annað dæmi úr könn­un­inni

Átak nauðsynlegt

Eitthvað þarf að gera því varla vill þjóðin lifa í sam­fé­lagi þar sem börnin þeirra eiga það í hættu að verða fyrir hnífs­stungum og hópárásum þegar þau fara út á meðal jafn­aldra sinna. En eru ráða­menn með putt­ann á púls­inum? Í við­tali í Bítið á Bylgj­unni í lok ágúst, sagði barna­mála­ráð­herr­ann Ásmundur Einar Daðason að sér­stakt átak þurfi til svo kveða megi niður þá ofbeld­is­bylgju sem skollið hefur yfir meðal íslenskra ung­linga og ung­menna. Sagði hann það standa til að koma á fót stýri­hópi sem muni skoða ofbeld­is­mál barna og leiðir til að sigr­ast á þeim vanda.

Ásmundur Einar Daðason

„Ég átti fund nýlega með rík­is­lög­reglu­stjóra til að ræða þessi mál. Ég hef líka verið að ræða þetta við lög­regl­una, við dóms­mála­ráð­herra. Ég held að við þurfum að fara í aukið átak þegar kemur að þessum málum. Við þurfum að fara inn í skól­ana, við þurfum að fara í fyr­ir­byggj­andi aðgerðir,“ sagði Ásmundur í við­tal­inu og hélt áfram: „Ég verð að við­ur­kenna að ég er ekki með svörin við því hvað við getum gert og hvernig. Þess vegna höfum við verði í sam­tali um það. Við þurfum að setja vinnu af stað og erum að und­ir­búa að setja í gang ein­hvers konar stýri­hóp sem fer ofan í þessi mál og skoðar það sem lítur að ofbeld­is­málum barna, þar sem þau eru ger­endur og þar af leið­andi þolendur líka.“

Þannig að já, ráða­menn virð­ast vera með putt­ann á púls­inum en hvort lausn þeirra á þessum vanda muni duga til verður tím­inn einn að leiða í ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag