Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hlöðver flúði þyrlu dönsku landhelgsigæslunnar á Dohnrbanka: „Spennufallið var svo rosalegt“

Hlöðver flúði þyrlu dönsku landhelgsigæslunnar á Dohnrbanka: „Spennufallið var svo rosalegt“

Hlöðver Har­alds­son er oft kenndur við Hólma­drang þar sem hann var skip­stjóri en Hólma­drangur var annar af fyrstu frysti­tog­ur­unum sem Íslend­ingar eign­uð­ust.

„Það var gaman að fara á nýtt skip; hann var til­tölu­lega nýr þá. Þetta átti eig­in­lega ekki að ganga; hann var ein­hvern veg­inn í loft­inu. Kvótinn var lít­ill en samt fór maður. Og það gekk vel,“ segir Hlöðver í við­tali við Reyni Trausta­son.

Svo var það rækjan og var farið á Dor­hnbank­ann sem er mið­línan milli Íslands og Græn­lands.

„Það gekk á ýmsu. Við Steini (Þor­steinn Ingason sem var stór eig­andi í Hólma­drangi) vorum sam­mála um að línan væri ekki á réttum stað. Það var ekki mikil veiði. Steini sagði að við yrðum að gera eitt­hvað í þessu og hann spurði hvað við ættum að gera. Ég sagði að þetta end­aði með því að við yrðum teknir og ég settur í stein­inn.

Þannig að ef varð­skipið kæmi þá gæti maður slakað þessu út.

Við fórum inn fyrir lín­una og vorum með 2000 metra tog­vír á spil­unum þannig að við tókum vír­inn í sundur á 1000 metrum þannig að ef varð­skipið kæmi þá gæti maður slakað þessu út. Við vorum með tvö troll og svo vorum við til­búnir með vara­hlera.“

Það var hins vegar þyrla sem nálg­að­ist Hólmatind. „Þá var það spurn­ingin hvað ætti að gera svo þeir kæmust ekki um borð þannig að við stög­uðum allt skipið; settum stög frá mastr­inu og alveg fram úr og svo aftur úr þannig að það var ekki nokkur leið að koma niður manni.“

Í ljós kom að þyrlan lét mann síga um borð í annað íslenskt skip á svæð­inu.

„Ég var bara 10-15 mílum austar; innar. Mér leið alltaf best að vera innstur.“

Næst Græn­landi.

„Því þeir komu alltaf sunnan að og frá lín­unni.“

Sögðu að ísjak­inn væri að koma og væri á mik­illi ferð.

Hlöðver seg­ist hafa verið í góðu sam­bandi við skip­stjór­ana á finnska tog­ar­anum Fin­landia, sem var með veiði­leyfi fyrir innan lín­una, og svo græn­lenska tog­ar­anum Tasiilaq. „Þeir kölluð á mig og sögðu að ísjak­inn væri að koma og væri á mik­illi ferð.“ Þarna var átt við varð­skip.

„Þá var nátt­úr­lega híft. Það voru tvö til þrjú tonn af rækju í og maður tímdi ekk­ert að henda rækj­unni sem var stór.“

Gull­molar.

„Ég treysti bara á guð og lukk­una og við unnum rækj­una og strák­arnir vissu ekk­ert hvað var að ger­ast. Það var ekk­ert kastað aftur en keyrt á fullri ferð. Svo sá ég þá koma og ég átti 14-15 mílur eftir í mið­lín­una. Ég sá að þá átti að taka mig næst. Þeir voru komnir tölu­vert nálægt og sáu öll stögin og hann var að biðja mig um að stoppa. Ég sagði að það væri ekki til umræðu og hann var alltaf að kalla. Ég fór út á brú­ar­væng en ég hafði ekki taugar til að vera inni í brúnni. Þetta er lengsta sigl­ing sem ég hef farið í á ævinni; þessar 12 mílur. Þetta voru eins og 12 dagar.“

Þú slappst út fyrir lín­una.

„Hann fylgdi mér extra tvær til þrjár mílur og svo sneri hann við. Þá fékk maður áfall. Spennu­fallið var svo rosa­legt. Við vorum með 60-70 tonn af rækju um borð,“ segir Hlöðver.

Útgerð­ar­stjór­inn var búinn að lofa honum því að ef hann yrði tek­inn þá yrði barist fyrir því að það yrði við­ur­kennt að línan væri á röngum stað.

Maður bauð ísnum birg­inn.

„Já, og borga sekt­ina. Þetta róaði allt hug­ann þannig að maður var nógu kaldur til að gera þetta. Svo var það að kom­ast þangað út af ísnum. Maður var alltaf að fara suður eftir, suður undir Vík­ur­ál­inn. Hann var far­inn að gliðna. Svo fór maður norður eftir og þá lenti maður alltaf í honum þéttum. Maður var orð­inn svo vanur þessu að maður bauð ísnum birg­inn.“

Varstu þá ekki að skemma dall­inn?

„Nei, hann var rosa­lega sterkur. Hólma­drang­ur­inn var breiður að framan og hann var rosa­lega góður að eiga við í ísnum. Stundum var það þannig að maður átti sér enga von. Þá beið maður bara þangað til þetta lag­að­ist.“

Þangað til ísinn gliðn­aði.

„Það kom tvisvar fyrir að við vorum innan um Græn­lend­inga, rétt norður við þá, og svo gliðn­aði ísinn noður eftir og ég hugs­aði með mér að það væri best að fara norður. Og þangað fór ég þangað til ég var alveg stopp í ís. Og þá fann ég lænu pakk­aða af rækju. Lengst norður af. Og ég lét skip­stjór­ann á Tasiilaq vita og hann fyllti síðan nokkra túra, karl­inn. En við vorum ekki nógu hraustir til að vera þarna.“

Hemingway

Hlöðver er frá Stykk­is­hólmi.

„Þetta byrj­aði á bryggj­unni í Stykk­is­hólmi. Afi minn, fósturafi minn, var skip­stjóri og ég vissi alveg hvernig væri að fiska og vissi af hverju hann fiskaði. Pabbi var raf­virki og hann vildi alltaf að ég yrði raf­virki. Hann var alltaf að tala um að það væri ekk­ert vit í því að fara út á sjó. Málið var að ég var alltaf hjá afa og fylgj­ast með því hvað hann var að gera. Ég bað pabba oft um pen­ing en hann sagð­ist vera blankur og þá fór ég til afa og bað hann um 10, 20 eða 30 kall og það var ekk­ert mál; en ég varð alltaf að vinna fyrir því. Hann var að beita og var á grá­slepp­unni.

Maður fór með honum á sjó og lærði mikið af honum.

Svo kom að því að maður fór að spá í hlut­ina; fram­haldið. Hvað maður ætti að gera. Ég var með eitt á hreinu en það var að það þýddi ekk­ert að vera raf­virki því þeir voru alltaf blankir. Þá var ekk­ert annað en að fara bara á sjó­inn. Þannig byrj­aði þetta með kall­inum; maður fór með honum á sjó og lærði mikið af honum. Það var tunglið og þá var stór­streymt. Smá­streymt. Þrjá daga fyrir tungl. Þrjá daga eftir tungl. Ef það var að norð­austan þá fór hann á ákveð­inn stað. Hann hataði vest­an­átt­ina; þá fór hann ekk­ert á sjó, karl­inn. Og maður tók eftir þessu. Hann var allta að spá í hlut­ina.“

Svo fóru þeir á skak.

„Ég fór með honum á hand­færi og þá byrj­aði ballið. Gúmmíið á krók­unum mátti ekki vera skakkt og krók­ur­inn ekki ryðg­aður. Hann var alltaf að kenna mér hvernig ætti að narra fisk­ana á krók­ana. Svo var þetta stundum þannig að hann setti mér tak­mark og ég varð að draga 100 fiska yfir dag­inn. Og þeir urðu að vera 40 sentí­metra langir og stærri. Stundum voru þeir 39 sentí­metrar og þá háls­braut ég þá og teygði aðeins úr þeim til að þeir næðu 40 sentí­metrum.“

Hlöðvar segir frá fleiri reglum sem afi hans hafði í huga. „Eins og á grá­slepp­unni; hann fór alltaf þegar var fjara til að tékka á hvernig þar­inn lá og sand­læn­urnar inni í þar­anum. Svo voru það netin; það mátti ekki vera þang í hnút­unum. Þetta var allt upp á að narra fisk­inn í veið­ar­færin.“

Þetta er svo­lítið eins og karl í sögu eftir Hemingway.

„Já, maður lærði mikið af kall­inum.“

Hann var fisk­inn.

„Hann var hörku fiski­maður.“

Sviðahausarnir í sjónum

Svo varð Hlöðver sjó­maður að atvinnu. Frændur hans áttu bát í Ólafsvík og þar var hann með þeim á ver­tíð á netum, snur­voð og trolli.

„Ég lærði nátt­úr­lega hell­ing af þeim. Svo keyptu þeir stærri bát og við voru á ver­tíð um vet­ur­inn á netum og svo var farið á troll um sum­arið og það var ráð­inn tog­ara­skip­stjóri, Haukur Hall­varðs­son. Ég var stýri­maður. Hann var hörku kall og ég lærði mikið af honum. Þá fórum við á trollið og þá byrj­aði neta­vinnan.“

Þarna var Hlöðvar búinn að fara í Stýri­manna­skól­ann. Svo tók hann fljót­lega flugið sem skip­stjóri.

„Ég ætl­aði mér nú aldrei að verða skip­stjóri. Það var ekki tak­markið. Ég var búinn að kynn­ast ýmsu; ég var búinn að fara með skip­stjórum sem maður hugs­aði með sér hvers konar rosa­legu hörkukarlar þetta væru. Það sem skeði er að það kom tog­ara­verk­fall; allir tog­ar­arnir sigldu inn í Reykja­vík­ur­höfn og karl­inn var tog­ara­skip­stjóri og kom í land til að taka þátt í verk­fall­inu.“

Á bátnum.

„Já. Þá var eng­inn skip­stjóri og ég varð að taka við og var ekki einu sinni búinn með fullan tíma sem stýri­maður. En við fengum und­an­þágu. Þetta tókst mjög vel og við fylltum bát­inn og fórum í sigl­ingu til Belgíu. Þá kom karl­inn; þá var verk­fallið búið.“

Og fer­ill­inn var haf­inn.

Og ég kenndi svið­unum um.

Hlöðver talar um hjá­trú afa síns.

„Kallinn, afi, var búinn að kenna mér að trúa á hitt og þetta. Ég missti einu sinni trollið á sunnu­degi; engin festa. Ég tók eftir einu en það var að það voru svið í mat­inn í hádeg­inu. Einhvern tím­ann seinna voru aftur svið í mat­inn og þá fékk ég grjót í pok­ann og og missti hann í troll­inu. Og ég kenndi svið­unum um. Þannig að þá kom hjá­trúin og þá bann­aði ég svið.“ Einu sinni um borð í ein­hverju skip­anna átti að vera svið í mat­inn. Og Hlöðver sagði kokk­inum að henda þeim í sjó­inn. „Ég hjálp­aði honum að vera öruggur með að hver ein­asti haus færi í sjó­inn.“

Hjátrúin tengd­ist ýmsu.

„Mánu­dagur var ekki besti stað­ur­inn til að byrja með nýja hlera eða nýtt troll.“

Smugan

Hlöðver fór í Smuguna.

„Það var eitt ævin­týrið, Smugan. Steini hringdi og sagði að það væri hægt að fara í Smuguna.“

Það er fjög­urra sól­ar­hringa sigl­ing eða meira.

„Já, maður var búinn að vera þarna í nokkra daga og maður lét flottrollið fara þótt maður eig­in­lega mætti það ekki. Norð­mað­ur­inn vildi ekki að það væri gert og lét vita af því.“

30 dagar í Smugunni.

Voru menn ekki þá að verða klikk­aðir?

„Jú, við vorum orðnir þreyttir. Svo kom í mann að fara norður eftir og sjá hvort maður fyndi ekki ísinn.

Við sigldum í 12-14 tíma norður eftir þar til við vorum komnir í ískrap og svo þegar við vorum komnir svo­lítið í krapið þá sá maður að botn­inn var far­inn að ganga upp sums staðar. Hvíta línan brotn­aði og svo gekk botn­inn upp.“

Bara fiskur.

Allar stýr­ingar í vél­unum brotn­uðu.

„Við köst­uðum og drógum upp og fengum 10-15 tonn. Svo var það nátt­úr­lega græðgin; kasta aftur. Og það var híft aftur. Við voru með pok­ana á dekk­inu og svo kom vél­stjór­inn og sagði að það væri ekki hægt að vinna fisk­inn af því að hann væri fros­inn.“

Það var hörku­gaddur.

„Hörku­frost og krap þarna. Allar stýr­ingar í vél­unum brotn­uðu. Og við urðum að bíða og þíða þetta og byrja upp á nýtt næsta dag.

Það var veitt í 10 daga og þá vorum við að verða olíu­lausir. Það end­aði með því að við vorum þarna þrír; Sigl­firð­ingur, Stak­fellið og við. Við vorum að verða olíu­lausir og olíu­skipð fann ekki Hólma­drang. Það trúði ekki að við væru svona norð­ar­lega. Svo gátum við komið þeim í skiln­ing um að við væru alveg nyrst og svo kom hann og við vorum á síð­asta degi með olí­una.“

Maður hefði kannski átt að verða læknir.

Einn skip­verj­inn slas­að­ist þegar var verið að taka olí­una en spotti lenti á nef­inu á honum.

„Nefið á honum opn­að­ist. Það er eig­in­lega með því versta sem ég hef lent í. Það var ekk­ert hægt að gera. Ég varð að græja þetta; sauma þetta. Ég hafði saumað nokkra áður sem var bara lít­il­ræði miðað við þetta. Þetta var hraustur strákur sem bjarg­aði því. Það var reynt að fá þyrl­una til að koma en við vorum svo langt í burtu frá eyju þar sem hægt var að taka olíu og birgðir og fengum að vita að hún gæti komið eftir tvo til þrjá daga og að þeir hefðu bara 10 mín­útur til að hífa mann­inn upp. Það gekk sem betur fer og hann fór til Noregs og þetta greri allt.“

Þú hefur saumað nefið vel.

„Já, það var bara vel gert. Maður hefði kannski átt að verða læknir.“

Hlöðver hætti svo.

„Þetta var komið nóg. Þetta var að ganga frá manni.“

Barfluga

Til eru mið sem eru kölluð nöfnum sem eru frá Hlöðveri komin. Hann segir að „flug­bar­inn“ sé vin­sæl­ast.

„Hugurinn ber mann stundum hálfa leið. Það var þannig að ég átti vin­konu í Sviss og skrapp ég þangað í land­legum. Þegar maður var búinn að bóka mið­ann fór sjálf­stýr­ingin í suð­ur­átt og það var bara togað í suður. Við fengum ekki mikið í fyrstu tveimur holl­unum. Það er barð þarna; þeir kalla það í dag Hlölla­barð. Við fisk­uðum ágæt­lega þar; það voru sjö til átta tonn í hali. Og svo var það búið. Og þá var haldið áfram suður eftir. Það er mik­ill fjall­garður þarna sem liggur í austur og vestur og við tog­uðum þangað til við vorum fastir. Það var hell­ings lúða í. Á dýpt­ar­mæl­unum lítur fjall­garð­inum út eins og bar. Svo voru félag­arnir að spyrja hvar ég væri og sagð­ist ég vera á leið­inni suður eftir; á barnum.“

70-80%

Hlöðver hefur búið um ára­bil í Suður-Afríku eða í 22 ár en hann hefur unnið þar hjá útgerð­inni Irvin & Johnson Ltd. Hann segir að þegar hann byrj­aði þar hafi hann fengið mikla aðstoð frá Hamp­iðjuni og nefnir troll sem hann hafi séð um að yrðu flutt til Suður-Afríku

„Ég var skip­stjóri hjá þeim í byrjun og fór svo í land sem ráð­gjafi og skip­stjóri í landi en þá ráð­leggur maður þeim í sam­bandi við öll veið­ar­færi og hjálpar þeim að fiska og ég fór mjög oft út með þeim; sýndi þeim hvernig á að fiska á okkar íslenska máta með krafti og öllu því sem því fylgir.“

Núna sér hann um 10 skip.

Það er búið að búa til skip­stjóra sem eru mjög góðir í dag.

Hlöðver er spurður hvort aðskiln­aður sé enn við líði.

„Þetta er orðin meiri ein­stefna núna. Þessir lit­uðu, þessir dökku, eru komnir svo mikið inn núna. Þegar ég byrj­aði þá voru þeir kannski 20-30% en núna þurfum við að vera með 70-80% og ef það er ekki þá missum við hluta af kvót­anum. Líka ef við höfum ekki við­skipti við veið­ar­færa­fyr­ir­tækin sem eru við­ur­kennd á þessu business­plani sem við erum með en þau missa ákveðin rétt­indi og eru bara sektuð ef þau eru ekki með þetta hlut­fall í lagi.“

Er þetta ekki frekar jákvætt?

„Ég myndi segja að þetta væri mjög jákvætt fyrir þetta fólk. En það er nátt­úr­lega skortur á menntun þarna. Þetta er ekk­ert auð­velt. Þetta er fólk sem er að koma úr byggðum þar sem skól­arnir eru lélegir og ekk­ert að hafa en þetta er mjög dug­legt fólk. Það vill vinna, það vill standa sig og það þarf bara að hjálpa því, leið­rétta og fara rétt að því. Það er búið að búa til skip­stjóra sem eru mjög góðir í dag.“

Rosalegt kikk

Hlöðver seg­ist vera orð­inn hálfur Suður-Afríkani. „Ég er stundum far­inn að hugsa eins og þeir; taka því bara rólega dag frá degi og vera ekk­ert að æsa sig yfir hlut­unum.“

Hann segir að þegar hann flutti til Suður-Afríku hafi hann gert sér grein fyrir því hvað öryggið skipti miklu máli og býr hann á stað þar sem allt er lokað og þar sem örygg­is­gæsla er góð. „Það er fylgst með öllu.“

Hver er hættan?

„Hættan er nátt­úr­lega alltaf fyrir hendi að það sé brot­ist inn. Það er mikið um að þeir séu að fylgja fólki heim að hús­unum. Þetta er bara Afríka. Hún er svona.“

Hlöðver er ekk­ert á leið­inni til Íslands til að búa.

„Þegar maður er kom­inn á þennan aldur þá skiptir veðrið svo miklu máli; að geta farið út að labba, labbað á strönd­inni, spilað golf, farið upp í fjöll og gert það sem manni langar til. Og ef manni leið­ist Höfða­borg þá er eitt­hvað að manni. Ég var meira að segja kom­inn í kappakstur; átti Lotus 7. Og var í kappakstri í tvö ár.“

Var það ekki kikk?

„Það var rosa­legt kikk.“

Hægt er að horfa á við­talið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi