Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Hlöðver Haraldsson á Hólmadrangi og hjátrúin: Skipaði kokknum að henda sviðahausunum í sjóinn

Hlöðver Haraldsson er oft kenndur við Hólma­drang þar sem hann var skip­stjóri um árabil. Hólma­drangur var annar af fyrstu frysti­togurunum sem Íslendingar eignuðust. Hann er nýjasti gestur Reynis Trausta­sonar í hlað­varpinu Sjóarinn. Hér má lesa brot úr viðtalinu eða hlusta á það í heild sinni.

Svo varð Hlöðver sjómaður að atvinnu. Frændur hans áttu bát í Ólafsvík og þar var hann með þeim á vertíð á netum, snurvoð og trolli.

„Ég lærði nátt­úrlega helling af þeim. Svo keyptu þeir stærri bát og við voru á vertíð um veturinn á netum og svo var farið á troll um sumarið og það var ráðinn togara­skipstjóri, Haukur Hallvarðsson. Ég var stýri­maður. Hann var hörku kall og ég lærði mikið af honum. Þá fórum við á trollið og þá byrjaði neta­vinnan.“

Þarna var Hlöðvar búinn að fara í Stýrimanna­skólann. Svo tók hann fljótlega flugið sem skip­stjóri.

„Ég ætlaði mér nú aldrei að verða skip­stjóri. Það var ekki takmarkið. Ég var búinn að kynnast ýmsu; ég var búinn að fara með skip­stjórum sem maður hugsaði með sér hvers konar rosalegu hörku­karlar þetta væru. Það sem skeði er að það kom togara­verkfall; allir togararnir sigldu inn í Reykja­víkurhöfn og karlinn var togara­skipstjóri og kom í land til að taka þátt í verk­fallinu.“

Á bátnum.

„Já. Þá var enginn skip­stjóri og ég varð að taka við og var ekki einu sinni búinn með fullan tíma sem stýri­maður. En við fengum undanþágu. Þetta tókst mjög vel og við fylltum bátinn og fórum í siglingu til Belgíu. Þá kom karlinn; þá var verk­fallið búið.“

Og ferillinn var hafinn.

Og ég kenndi svið­unum um.

Hlöðver talar um hjátrú afa síns.

„Kallinn, afi, var búinn að kenna mér að trúa á hitt og þetta. Ég missti einu sinni trollið á sunnudegi; engin festa. Ég tók eftir einu en það var að það voru svið í matinn í hádeginu. Einhvern tímann seinna voru aftur svið í matinn og þá fékk ég grjót í pokann og og missti hann. Og ég kenndi sviðunum um. Þannig að þá kom hjátrúin og þá bannaði ég svið.“

Eitt sinn átti Hlöðver skip­stjóri að vera í fríi en það breyttist. Þá hafði kokkurinn hugsað sér gott til glóðarinnar og hafa svið í matinn. Hlöðver sagði kokkinum að henda þeim í sjóinn. „Ég hjálpaði honum að vera öruggur með að hver einasti haus færi í sjóinn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt