Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kristján Kristjánsson er æðrulausi trúbadorinn: „Við áttum ekkert en áttum nóg“

Kristján Kristjánsson er æðrulausi trúbadorinn: „Við áttum ekkert en áttum nóg“
Kristján Krist­jáns­son

„Æðru­leysið er trilla sem er um eitt og hálft tonn og sjö metrar og með 20 hest­afla búkk­vél; lítil vél sem fer ekk­ert hratt. Hún fer svona sex mílur þægi­lega. Topp­hrað­inn sex mílur. Það er svona 10 – 12 kíló­metra hraði,“ segir Kristján Krist­jáns­son tón­list­ar­maður, betur þekktur sem KK, í við­tali við Reyni Trausta­son. KK segir að það sé gott að kom­ast út á sjó á Æðru­leys­inu. Róa út á Æðru­leys­inu sem er plast­bátur.

Ertu þá að veiða?

„Stundum er ég að fara út til að bara vera.“

Bara núvit­undin?

„Já, ætli það ekki.“

Skoða bát­ana. Þetta var eins og seg­ull.

KK bjó erlendis í 13 ár; í Svíþjóð.

„Fljót­lega eftir að ég kom heim fór ég að túra um landið; það var nýtt fyrir mér. Ég var 35 ára. Ég hafði farið einn hring í gamla daga. Á putt­anum. Svo fór ég að þvæl­ast um allt út af mús­ík­inni og sá allt landið og það fyrsta sem ég gerði alltaf þegar ég kom á alla staði var að fara niður á höfn. Skoða bát­ana. Þetta var eins og seg­ull. Svo tók ég myndir og svo var ég kom­inn með mynd af alveg eins bát og ég á í dag inni í bíl, uppi á vegg og alls staðar. Svo kom þetta í hend­urnar á mér. Fyrst vorum við fjórir sem keyptum saman bát og svo end­aði ég bara einn með hann.“

Ertu að fara eitt­hvað á vetrum út?

„Nei.“

Það er bara þegar er best og blíð­ast?

„Já.“

Hann segir að hann hafi langað svo í þetta líf.

„Þetta dró mig til sín. Síðan komu strand­veið­arnar þannig að þú gast farið að veiða eitt­hvað smá­vegis fjóra mán­uði á árinu og landað og selt afl­ann. Ég fór í það og það var alveg meiri­háttar. Meiri­háttar líf.“

Þannig að þú hefur verið atvinnu­sjó­maður?

„Já, í þrjú sumur.“ Hann reri tvö sumur frá Reykja­vík og eitt sumar frá Akranesi.

Maður var að reyna að ná fisk líka. Stundum gekk það vel. Stundum ekki.

Fiskaðir þú vel?

„Það fer eftir því hvernig maður lítur á það.“

Þú mátt fiska um 800 kíló á dag.

„Ef maður lítur á það þannig þá held ég að ég hafi ekki fiskað vel; ef maður lítur á það þannig í kílóum og krónum.“

Varstu nokkuð að hugsa um þetta í kílóum og krónum? Varstu ekki að höndla ham­ingj­una?

„Maður var að reyna að ná fisk líka. Stundum gekk það vel. Stundum ekki. Eins og þetta er.“

Algert ævintýri

KK bjó um tíma í hús­bíl með fjöl­skyld­unni á Sví­þjóð­ar­ár­unum en á þeim tíma var hann götu­spil­ari.

„Það var bara draumur. Ímyndaðu þér það besta; það var þannig. Þá varstu tengdur öðrum sem voru að lifa sams konar lífi og svo að koma sér fyrir fyrir utan bæinn í fal­legum skóg­ar­jaðri eða þar sem var vatn. Svo voru bíl­arnir í hring og eldur í miðj­unni. Og börn að leika sér. Og krakk­arnir að læra um galdra. Þetta voru alls konar lista­menn sem voru þarna. Við gerðum þetta þegar krakk­arnir voru búnir með skól­ann á árunum 1986-1990. Krakk­arnir klár­uðu skól­ann í maí og svo pökk­uðum við inn í bíl og fórum. Við vorum mikið uppi í Noregi.“

Við áttum ekk­ert en áttum nóg.

Það þarf ekk­ert 150 fer­metra til að vera ham­ingju­samur.

„Nei, ég held þetta hafi verið eitt ham­ingju­samasta tíma­bil lífs okkar. Við áttum ekk­ert en áttum nóg.“

Er aldrei pirr­ingur í svona návígi? Var þetta bara ljúft?

„Þetta var algert ævin­týri öll sumrin.“

KK er spurður hvernig til­finn­ing það hafi verið að vera götu­spil­ari.

„Það er dásam­legt.“

Og var hægt að lifa af því?

„Já.“

Voru menn örlátir?

„Já. Í dag er það svo­lítið erfitt. Það eru voða fáir með pen­inga á sér. Menn hafa verið að deila miðum með ban­ka­upp­lýs­ingum og kenni­tölum.“

Lentir þú aldrei í neinu klandri?

„Nei. Við vorum á göt­unni og við sáum allt götu­liðið sem annað fólk sá ekki. Við vorum allan dag­inn á göt­unni og þá færðu nýja sjón.“

Við vorum bara trú­badúrar.

Þetta er ósýni­legt sam­fé­lag.

„Þetta er ósýni­legt sam­fé­lag. Við sáum ýmis­legt. Við vorum ekk­ert á þeim stað að við værum að bögga neinn sem hefði getað haft slæm áhrif á okkur. Við vorum bara trú­badúrar. Við vorum bara að spila þarna. Það var eng­inn að fokka í okkur.“

Hvar varstu mest?

„Ég var mikið í Osló og svo var ég í Kaup­manna­höfn; ég skrapp stundum yfir um helgar þegar var gott veður og spil­aði á Strikinu til þess að ná í pen­ing. Ég fór um Evrópu og var svo­lítið í Hamborg og svo var ég ráð­inn í hljóm­sveit og túraði með Red Archibald and the Internationals um allt Þýska­land einn vetur.“

Rímnasöngur og hiphop

Svo flutti fjöl­skyldan heim til Íslands árið 1990.

„Við sökn­uðum fjall­anna og hafs­ins. Maður sá það þegar maður kom heim. Það vant­aði. Við bjuggum í Suður-Svíþjóð, á Skáni, og þar eru engin fjöll. Eina hafið er Eyr­ar­sundið þarna á milli Dan­merkur og Sví­þjóðar. Øresund.“

Þá byrj­aði KK-ævin­týrið og þú slóst í gegn. Platan ykkar seld­ist í bíl­förmum.

„Hún seld­ist mjög vel. Það gekk vel og það var gaman.“

Hver smell­ur­inn á fætur öðrum og þú varðst popp­stjarna hér.

„Já.“

Það er svo­lítil breyt­ing frá því að spila á göt­unni.

„Já, þetta bara skeði. Bara óvart.“

Svo er ég að spila með hinum og þessum.

KK seg­ist vera að spila mikið.

„Margir hafa sam­band við mig og biðja mig um að spila. Svo er ég að spila með hinum og þessum. Ég spil­aði í mörg ár með Magga Eiríks og svo bætt­ist Pálmi við og við vorum þrír að spila. Pálmi, Maggi og ég höfum tekið nokkra tón­leika og svo höfum við Mugison spilað saman smá­vegis líka.“

Ertu sáttur við lífið?

„Ég var aldrei með neitt plan.“

Þú berst bara með sunn­an­gol­unni eða hvað sem það er?

„Ég veit það ekki. Ég held það sé þannig hjá mörgum lista­mönnum.“

Það finnst mörgum öðrum þetta líka vera skemmti­legt.

KK sér nokkrum sinnum í viku um útvarps­þátt­inn Á reki.

„Þetta eru tæp­lega klukku­tíma þættir. Á laug­ar­dögum er mest tekin fyrir íslensk tón­list; þá eru kórar, rímna­söngur, ein­söngur og gömul popptón­list. Og kvar­tett­arnir. Það eru dásam­legir kvar­tettar sem við eigum upp­tökur af. Svo á þriðu­dögum og mið­viku­dögum er ég að taka alls konar tón­list. Það er gömul tón­list, gam­alt rokk og stundum hiphop-lög þess vegna sem eru bara lög sem mér finnst vera skemmti­leg. Svo að ég fæ að velja það sem mér finnst vera skemmti­legt. Ég er svo hepp­inn að ég er ekk­ert einn um þetta. Það finnst mörgum öðrum þetta líka vera skemmti­legt. Sem betur fer.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag