Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Helgi tekur Bjarkey til bæna- Kann ekki að skammast sín: „Hvers vegna faldi meirihlutinn erindi N4“

Fjöl­miðla­mað­ur­inn Helgi Seljan lætur Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttur, þing­konu VG og for­mann fjár­laga­nefndar, fá það óþvegið í pistli sem hann birtir á Facebook. Helgi segir hana ekki kunna að skamm­ast sín eftir að hún full­yrti í Bítinu í morgun að ekki stæði til að draga til baka 100 milljón króna styrk til sjón­varp­stöðv­ar­inar N4. Helgi segir málið vera ævin­týra­legt fúsk en einnig felu­leikur, þar sem bréf fram­kvæmda­stjóra N4 til Alþingis var ekki birt, líkt og venja er.

Sjá einnig: María seg­ist fara á haus­inn ef ríkið styrki ekki N4 – Svona var bréf hennar til mágs síns

Hér fyrir neðan má lesa pistil Helga í heild sinni

-Að kunna ekki að skamm­ast sín-

Formaður fjár­laga­nefndar mætti í Bítið í morgun – eftir að hafa baðað sig í eigin góð­mennsku á sam­fé­lags­miðlum í gær á kostnað öryrkja – og varði þetta ævin­týra­lega fúsk og felu­leik varð­andi erind­is­rekstur hennar fyrir N4.

Bjarkey hélt því fram að það hefði nú aldeilis ekki verið hætt við að styrkja N4, marg­falt á við aðra. Það væri bara sett í hendur ráð­herra.

Það þyrfti bara að árétta skiln­ing fólks á þessu öllu. Það fór nefni­lega allt á hlið­ina, sagði hún.

Það hafi eitt vakað fyrir þeim blessuðum í meiri­hlut­anum að bregð­ast við, því þau teldu og vildu auka stuðn­ing við fjöl­miðla á lands­byggð­inni, einkum við fram­leiðslu þátta og sjón­varps­efnis. Því hentu þau þarna inn óvæntum hund­rað millum, sem svo ráð­herr­ann ætti bara að úthluta með áherslu á sjón­varps­efni á lands­byggð­inni.

Síðan segir hún: „Það væri áhuga­vert ef Byggða­stofnun og fjöl­miðla­nefnd myndu vinna grein­ingu á stöðu fjöl­miðla í dreif­býl­inu og koma með til­lögur að því hvernig mætti gera betur þar.”

Það var og!

Þannig að sú bjarg­fasta trú þeirra meiri­hluta­menn­ana, að nauð­syn­legt væri að styrkja N4 byggði ekki á neinu nema þess­ari beiðni (því eng­inn annar bað um styrk eða hefði fengið hann sam­kvæmt upp­legi nefnd­ar­innar, þrátt fyrir full­yrð­ingar um annað).

Ekkert mat lág fyrir á nauð­syn þess að rjúka til og marg­falda styrk til sjón­varps­mark­að­ar­ins í kjör­dæmi Bjarkeyjar.

Bara bréf mág­kon­unnar frá Kaup­manna­höfn, upp­fullt af rang­færslum.

(Hér er ágætt að benda á að inni á vef Fjöl­miðla­nefndar blasir nú við stór frétt um úthlutun á sér­stöku fram­lagi til lands­byggð­ar­miðla af fjöl­miðla­styrknum, þar sem óskað er eftir umsóknum. Það er sem sagt þegar til slíkur sér­stakur lands­byggð­ar­pottur, ofan á hinn almenna)

Skammar­haus­inn beit svo Bjarkey af (í fáséðum stíl við annað) þegar hún lagði til að einn eig­enda N4 tæki að sér að kanna þörf fyr­ir­tæk­is­ins fyrir aukið fé.

Ég gef mér reyndar að það hafi verið grín.

Eins og þegar hún reyndi að tala Stefán Vagn frá til­lög­unni, sem hann sann­ar­lega lagði fyrir þingið með meiri­hlut­anum. Sam­lík­ingin við bónd­ann og búvöru­samn­ing­inn var þar punchline, að ég held.

Eftir stendur ósvarað hvers vegna meiri­hlut­inn faldi erindi N4 og ætl­aði aug­ljós­lega ekki að það kæmi fyrir augu okkar allra hinna.

Í proper þjóð­þingum væri það talið meiri­háttar mál ef slík erindi væru ekki birt opin­ber­lega.

Hér er þetta hins vegar auka­at­riði, enda virð­ist það ein­hverra hluta vegna vera einka­mál fjöl­skyldna og kjör­dæma, hvernig hakkað er í pyls­unar í fjár­laga­nefnd alþingis.

For­svars­menn rík­is­stjórn­ar­innar verða að svara fyrir þessi vinnu­brögð; sem sann­ar­lega var ekki undið ofan af nema af því að upp um þau komst.

Öryrkjar lands­ins geta svo þakkað Bjarkeyju góð­mennsk­una, og þá sér­stak­lega þeir sem búa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi