Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

María segist fara á hausinn ef ríkið styrki ekki N4 – Svona var bréf hennar til mágs síns

María segist fara á hausinn ef ríkið styrki ekki N4 – Svona var bréf hennar til mágs síns

María Björk Ingv­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri N4 á Akureyri, lætur í það skína að loka þurfi sjón­varps­stöð­inni norð­lensku um ára­mótin hljóti hún ekki fjár­stuðn­ing frá rík­inu. Hún fékk vil­yrði 100 millj­óna fjöl­miðla­styrk frá mági sínum á Alþingi. Mágur hennar, fram­sókn­ar­mað­ur­inn Stefán Vagn Stef­áns­son, situr ekki aðeins á þingi heldur situr hann í meiri­hluta fjár­laga­nefndar sem ætl­aði að veita mág­kon­unni styrk­inn mynd­ar­lega.

María Björk sendi styrk­beiðn­ina til fjár­laga­nefnd­ar­innar 1. des­em­ber síð­ast­lið­inn en hana má ekki finna á vef þings­ins. Millj­ón­irnar hund­rað eru ætl­aðar fyrir sjón­varps­stöð­ina á næsta rekst­ar­ári. N4 er meðal ann­­ars í eigu KEA, Kaup­­fé­lags Skag­­firð­inga og Síld­­ar­vinnsl­unn­­ar. Stærsti eig­andi Síld­­ar­vinnsl­unnar er Sam­herji, eitt stærsta fyr­ir­tæki lands­ins sem er með höf­uð­­stöðvar á Akur­eyr­i.

Sjá einnig: María fékk 100 millj­óna fjöl­miðla­styrk frá mági sínum á þingi: „Ég brenn fyr­ir þessu starfi!“

Athygli vekur í erindi Maríu til mágs síns og ann­arra nefnd­ar­manna í fjár­laga­nefnd þings­ins að þar segir hún Samherja og önnur fjár­sterk fyr­ir­tæki á Norð­ur­landi hafa snúið baki við sjón­varps­stöð­inni og hætt að styrkja hana fjár­hags­lega. Sömu sögu sé að segja um sveit­ar­fé­lögin í lands­fjórð­ungnum.Í bréf­inu til þings­ins gefur María það jafn­framt til kynna að rík­is­styrk­ur­inn sé lífs­nauð­syn­legur

„

til þess að N4 þurfi ekki að loka um ára­mótin.“

Hér fyrir neðan má sjá bréf Maríu Bjarkar til fjár­laga­nefndar Alþingis sem Stundin birti:

„Til fjár­laga­nefndar Alþingis

Ég und­ir­rituð, María Björk Ingva­dóttir, kt. 201259-4449, fram­kvæmda­stjóri N4 ehf. óska hér með eftir styrk til N4 fjöl­mið­ils, til að halda úti fjöl­miðlun, þátta­gerð og frétta­miðlun, af lands­byggð­unum árið 2023.

Óskað er eftir 100 millj. króna styrk. N4 hefur verið leið­andi í sjón­varpi frá lands­byggð­unum síðan 2015 , gert milli 350 – 400 þætti á ári, rætt við tug­þús­undir, documenterað sögu íbú­anna síðan 2008, fyrst ein­göngu Akur­eyr­inga og nær­sveit­unga en frá 2012 og 2013 höfum við bætt öllum öðrum lands­fjórð­ungum við.

Áhorfs­mæl­ingar í októ­ber sl. sýna að tæp­lega 6 milljón sinnum hefur verið náð í þætti N4 í tíma­flakki , heima­síðu og á veitum Símans og Vodafone síð­ustu tæpu 2 árin, þá er ekki talið með áhorf í línu­legri dag­skrá. Eft­ir­spurn eftir íslensku efni frá lands­byggð­unum hefur marg­fald­ast ( 282% ) á þessu tíma­bili. En tekjur og áhorf hald­ast ekki í hendur.

1. Skilyrði fyrir Covidstyrk/ rekstr­ar­styrk frá rík­inu hefur verið að N4 hefur þurft að fram­leiða og sýna 365 þætti á ári, að með­al­tali einn nýjan þátt á dag. Kostn­aður við það er að lág­marki um 200 millj­ónir króna. Styrkur síð­asta árs nam 20 millj­ónum.

2. Mörg sveit­ar­fé­lög hafa verið til­búin að styrkja þátta­gerð af sínum svæðum, ýmist með beinum styrkjum til þátta­gerðar eða kaupum á þjón­ustu. Nú bregður svo við að aðal­baklandið, Norð­ur­land allt, hvarf frá þessu 2022 en hélt okkur volgum fram eftir ári. Það komu að lokum rúmar 4 millj­ónir sam­tals í þjón­ustu­kaup frá 12 sveit­ar­fé­lögum á Norð­ur­landi eystra nú í lok árs. ( ca 26.000.- að með­al­tali á mán­uði frá hverju þeirra ). Þetta hefur sett rekstur stöðv­ar­innar í algjört upp­nám. Fara þarf eftir tekjum og efni langar leiðir en skal haldið til haga að öll sv.félög á Aust­ur­landi, flest á Vest­ur­landi og nokkur á Suð­ur­landi hafa haldið tryggð við stöð­ina. En það dugar engan veg­inn til.

3. Aug­lýs­inga­tekjur hafa stór­minnkað á þessu ári. Kemur tvennt til; Um 55% aug­lýs­inga­fjár fer til erlendra sam­fé­lags­miðla í ár, var 40% fyrir tveimur árum. Stærstur hluti sem eftir verður á land­inu fer til RÚV, þar sem með­al­laun sölu­manna eru 1,2 millj­ónir á mán­uði.

4. Fyr­ir­tæki eru eftir Covid ekki áfjáð í að kosta þætti af sama krafti og áður. Þar er mik­ill tekju­sam­dráttur einnig. Til þess að N4 þurfi ekki að loka um ára­mótin og geti haldið starf­sem­inni áfram næstu tvö árin amk. eðaá meðan verið er að und­ir­búa ný fjöl­miðla­lög, þarf að koma stöð­inni til hjálpar við að halda uppi merkjum lands­byggð­ar­innar af sama krafti og gert hefur verið. Rík­is­styrkur þessi mun gefa okkur von um að það tak­ist en ljóst að fleiri þurfa að koma að mál­inu, bæði sveit­ar­fé­lögin og “Angels-investors” sem eiga stöð­ina í dag.

Rætt hefur verið um að leggja fram ný lög um fjöl­miðla á næstu tveimur árum. Ef ekki á kasta burt allri umfjöllun utan af landi þarf að grípa til úrræða eins og Danir fram­kvæmdu í þess­ari sömu stöðu og þeir voru í árið 1985. Þá stóð til að loka einu lands­byggða­stöð DR og reis upp gíf­ur­lega mikil mót­mæla­alda. Lagt var fram frum­varp 1986 þar sem ákveðið var að búa til TV2 sem að hluta yrði rík­is­rekin og hluta til rekin á aug­lýs­ingafé en skil­yrði að hún væri með höf­uð­stöðvar úti á landi. DR er ekki á aug­lýs­inga­mark­aði heldur sinnir sínu lög­bundna hlut­verki. TV2 og DR eru í hörku sam­keppni um áhorf og gerð vand­aðra frétta og frétta­skýr­inga sem að sögn þeirra gerir allt fjöl­miðla­starf fag­legra og betra.

Tillaga mín er þessi:

1. Skatt­leggja erlendar veitur um 6% líkt og Danir eru að fara að gera

2. Nota hluta þeirra tekna til að tryggja að RÚV fram­leiði enn meira íslenskt efni og vand­aðri fréttir og frétta­skýr­ing­ar­þætti

3. Taka RÚV af aug­lýs­inga­mark­aði og gera þannig frjálsum stöðvum kleift að lifa og vera í sam­keppni við RÚV.

4. Stofna TV2 með höf­uð­stöðvar á Akureyri og sam­eina þar undir það litla sem er eftir af lands­byggða­frétta­fólki RÚV ( Á Akureyri og Aust­ur­landi ) með N4. Bjóða öllum litlu frétta­miðl­unum sem berj­ast fyrir lífi sínu og fer sífellt fækk­andi að koma þarna inn undir hatt­inn.

5. Skipta útvarps­gjald­inu 70-30 milli RÚV og TV2 .

Kaup­manna­höfn 1.des­em­ber 2022,

F.h. N4 ehf.

María Björk Ingva­dóttir fram­kvæmda­stjóri.“

Fjár­laga­nefnd hefur nú breytt afstöðu sinni og leggur umræddar 100 millj­ónir króna í púkkið til stuðn­ings frjálsum fjöl­miðlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina