Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

María fékk 100 milljóna fjölmiðlastyrk frá mági sínum á þingi: „Ég brenn fyr­ir þessu starfi!“

María fékk 100 milljóna fjölmiðlastyrk frá mági sínum á þingi: „Ég brenn fyr­ir þessu starfi!“

María Björk Ingva­dóttir, fram­kvæmda­stjóri N4 á Akureyri, náði að sækja sér 100 millj­óna styrk úr rík­is­stjóri vegna rekst­urs sjón­varps­stöðv­ar­innar. Athygli vekur að mágur hennar, fram­sókn­ar­mað­ur­inn Stefán Vagn Stef­áns­son, situr ekki aðeins á þingi heldur situr hann í meiri­hluta fjár­laga­nefndar sem veitti mág­kon­unni styrk­inn mynd­ar­lega.

Kjarninn greinir frá því að N4 hafi náð fram þessum 100 millj­óna rík­is­styrk með því að biðja ein­fald­lega um hann. Og sú beiðni fór fyrir fjár­laga­nefnd­ina, þar sem Stefán mágur var meðal þeirra sem afgreiddi umsókn­ina.

Meiri­hluti fjár­laga­nefnd­ar sam­anstendur af þing­mönnum Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks. Stefán Vagn er þar annar af tveimur full­trúum Fram­sókn­ar­manna. Meiri­hluti­inn ákvað að veita 100 milljón króna fram­lag úr rík­is­sjóði til N4 „vegna rekst­­urs fjöl­miðla á lands­­byggð­inni sem fram­­leiða eigið efni fyrir sjón­­varps­­stöð“.

Meiri­hlut­ann skipa Bjarkey Olsen Gunn­ars­dótt­ir, for­maður fjár­laga­nefndar og þing­maður Vinstri grænna, Har­aldur Bene­dikts­son, Bryn­dís Har­alds­dóttir og Vil­hjálmur Árna­son úr Sjálf­stæð­is­flokki og Þór­ar­inn Ingi Pét­urs­son og Stefán Vagn Stef­áns­son úr Fram­sókn­ar­flokki.

María Björk sendi styrk­beiðn­ina til fjár­laga­nefnd­ar­innar 1. des­em­ber síð­ast­lið­inn en hana má ekki finna á vef þings­ins. Millj­ón­irnar hund­rað eru ætl­aðar fyrir sjón­varps­stöð­ina á næsta rekst­ar­ári. N4 er meðal ann­­ars í eigu KEA, Kaup­­fé­lags Skag­­firð­inga og Síld­­ar­vinnsl­unn­­ar. Stærsti eig­andi Síld­­ar­vinnsl­unnar er Sam­herji, eitt stærsta fyr­ir­tæki lands­ins sem er með höf­uð­­stöðvar á Akur­eyr­i.

N4 hefur einmitt fram­­leitt kostað efni fyrir Sam­herja og ýmsa aðra aðila. Í fyrra var svo helsti dag­­skrár­­gerð­­ar­­maður N4, Karl Eskill Páls­­son, ráð­inn í starf upp­­lýs­inga­­full­­trúa Sam­herja.

Síðla árs 2020 ræddi María Björk ástríðu sína fyrir rekstri N4 og sagð­ist jafn­framt vera ást­fangin upp rjáfur af eig­in­manni sínum, Ómari Braga Stef­áns­syni, bróður Stefáns Vagn Fram­sókn­ar­þing­manns.

„Ég brenn fyr­ir þessu starfi, það er svo áhuga­vert! Við gæt­um verið hvar sem er á land­inu og tök­um efni alls staðar að. Mesti vöxt­ur í fjöl­miðlun í heim­in­um er ein­mitt frá svona svæð­is­miðlum. Við þráum að heyra sög­ur og við vilj­um heyra góðar sög­ur. Það er kannski leið­ar­ljósið mitt; segj­um góðar sög­ur, töl­um við venju­legt fólk og sýn­um breidd­ina í líf­inu hvar sem er á Íslandi. Ég er ekki enn far­in á Reykja­vík­ur­markað, en kannski för­um við þangað,“ sagði María.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina