Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Kennari dó eftir skot úr rafbyssu: „Frændi minn bað um hjálp og hann fékk hana ekki“

Kennari dó eftir skot úr rafbyssu: „Frændi minn bað um hjálp og hann fékk hana ekki“

Frændi Patrisse Cullors, með­stofn­anda Black Lives Matters-hreyf­ing­ar­innar í Banda­ríkj­unum lést aðeins klukku­stundum eftir að hafa fengið stuð úr raf­byssu og hand­tek­inn af lög­regl­unni í Los Angeles.

Keenan Anderson hét frænd­inn en hann var aðeins 31 árs að aldri og var faðir og kenn­ari en hann lést á spít­ala í Santa Monica. BBC sagði frá mál­inu.

Lög­reglan í Los Angeles hefur undir höndum mynd­skeið lög­reglu­manns sem sýnir atvikið sem gerð­ist 3. jan­úar síð­ast­lið­inn. Í mynd­skeið­inu sést Anderson grát­biðja um hjálpa á meðan lög­reglu­menn­irnir halda honum niðri. Lög­reglu­mað­ur­inn sem stuð­aði hann fékk til­kynn­ingu um umferð­ar­ó­happ í Venice-hverf­inu í Los Angeles um klukkan 15:00.

Lög­reglu­stjór­inn Michel Moore sagði á blaða­manna­fundi á mið­viku­dag­inn að Anderson hefði framið lög­bröt er hann reyndi að stinga af eftir umferð­ar­á­rekstur. Sagði hann að mað­ur­inn hefði gert til­raun til þess að flýja af vett­vangi með því að „reyna að kom­ast í bif­reið ann­arrar mann­eskju án leyfis.“

Sést Anderson í miklu upp­námi í mynd­skeið­inu, er lög­reglan mætir á vett­vang en hann sést þar segja lög­reglu­manni: „ein­hver er að reyna að drepa mig,“ þó ekki hafi verið neina ógn að sjá í mynd­skeið­inu.

Í byrjun sett­ist Anderson niður sam­kvæmt fyr­ir­skipun lög­regl­unnar en þegar fleiri lög­reglu­menn mæta á vett­vangt stóð hann upp og hljóp út á götu og óhlýðn­að­ist skip­unum um að stoppa. Er lög­reglan náði honum og gerðu til­raun til að hand­sama hann. Í fyrstu hlýddi hann skip­unum lög­regl­unnar en byrj­aði svo að öskra „Gerið það, hjálp. Þeir eru að reyna að George Floyd-a mig!“ og átti þá við það er lög­reglu­maður myrti hinn þeldökka George Floyd árið 2020 í Minn­ea­polis.

Raf­byssan var notuð á Anderson í um það bil 30 sek­úndur eftir að lög­reglu­mað­ur­inn sem á henni hélt hafði ítrekað sagt honum að hætta að veita and­stöðu við hand­tök­una „eða ég stuða þig.“ Aðrir lög­reglu­menn héldu honum niðri. Hann var svo stuð­aður í fimm sek­úndur í við­bót.

Sjúkra­bíll kom á vett­vang um það bil fimm mín­útum eftir að raf­byssan var notuð á honum og var Anderson fluttur á sjúkra­hús í grennd­inni. Lést hann um fjórum og hálfum klukku­tíma síðar eftir að hafa farið í hjarta­stopp. Samkvæmt lyfja­prófi lög­regl­unnar í Los Angeles, sem gert var á Anderson kom í ljóst að í blóði hans fannst kanna­bis og kókaín. Skrif­stofa dán­ar­dóms­stjóra Los Angeles sýslu mun einnig gera slíkt próf.

Mynd­skeiðið kemur sér illa fyrir lög­regl­una í Los Angeles því á rétt undir viku hafa þrír svartir eða brúnir menn látið lífið eftir sam­skipti við lög­regl­una. Hinir tveir eru þeir Takar Smith, 45 ára og Oscar Sanchez, 35 ára en báðir voru þeir skotnir til bana af lög­regl­unni í byrjun jan­úar. Borg­ar­stjóri L.A., Karen Bass kall­aði atvikin „afar trufl­andi“. Lög­reglan seg­ist vera að rann­saka öll þrjú and­látin.

Anderson bjó í Washington DC en var í heim­sókn í Los Angeles. Dauði hans hefur end­ur­vakið kröfur mót­mæl­enda um umbætur hjá lög­regl­unni, en sumir þeirra telja að lög­reglu­menn eigi ekki að fá að bera skot­vopn er þeir sinna umferð­ar­slysum.

Patrisse Cullors, með­stofn­andi Black Lives Matters-hreyf­ing­ar­innar og frænka Anderson sagði í við­tali við Guardian: „Frændi minn bað um hjálp og hann fékk hana ekki. Frændi minn ótt­að­ist um líf sitt. Síðustu tíu árin fylgd­ist hann með sam­tökum sem börð­ust gegn drápum á svörtu fólki. Hann vissi hvað var í húfi og var að reyna að vernda sjálfan sig. Enginn vildi vernda hann.“ Hefur Cullors ásamt fleirum, kraf­ist þess að lög­reglu­stjór­inn segi af sér.

Lög­reglu­stjór­inn seg­ist búast við að mynd­bandið kom­ist fyrir almenn­ings­sjónir en það gæti tekið allt að 45 daga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife