Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fellabakstur er gjaldþrota: „Kannski var maður eins og Don Kíkóti að berjast við vindmyllurnar“

Fellabakstur er gjaldþrota: „Kannski var maður eins og Don Kíkóti að berjast við vindmyllurnar“
Fella­bak­arí í hinum fagra Fellabæ. Mynd: Anna Kudryavtseva

Fella­bakstur var úrskurð­aður gjald­þrota í viku­byrjun. Rekst­ur­inn er nú aug­lýstur til sölu.

Aust­ur­frétt segir frá því að bak­aríið í Fellabæ, Fella­bakstur sé farið á haus­inn. Segir fyrrum eig­andi þess að rekst­ur­inn hafi verið þungur um langt skeið og margt hafi verið reynt til að bæta úr síð­ustu vikur en því miður hafi þær til­raunir mis­tek­ist.

„Við skil­uðum inn beiðni um gjald­þrot í lok síð­ustu viku. Hér­aðs­dóm­ari tók sér ekki langað umhugs­un­ar­frest heldur úrskurð­aði félagið gjald­þrota á mánu­dag og skip­aði skipta­stjóra. Við náðum að borga út laun um síð­ustu mán­aða­mót. Það var léttir því það leit ekki vel út á tíma­bili skömmu fyrir ára­mót,“ segir Þráinn Lárusson, eig­andi Fella­bakst­urs við Aust­ur­frétt.

Fella­bakstur var upp­haf­lega stofnað árið 1968 en Þráinn keypti fyr­ir­tækið snemma árs 2021 en fyrir átti hann meðal ann­ars veit­inga­húsið Salt á Egils­stöðum og Hótel Vala­skjálf og Hall­orms­stað.

Ýmsir þættir þyngdu róðurinn

„Rekst­ur­inn á bak­arí­inu var þarna orð­inn mjög þungur. Það var ekki fyrir að þáver­andi eig­endur legðu sig ekki fram en ein­hverra hluta vegna gekk þetta ekki. Á sama tíma var ég með eigin hug­mynd um að opna litla bak­arís­verslun, frekar en fram­leiða mest fyrir versl­anir eins og bak­aríið hafði gert. Mér fannst vera kallað eftir því úr sam­fé­lag­inu. Þarna barst mér til eyrna að bak­aríið stæði ekki vel og að það gæti orðið til góðs fyrir alla ef ég kæmi inn í það frekar en opna nýtt í beinni sam­keppni. Við Björgvin (Krist­jáns­son, bak­ari og þáver­andi eig­andi Fella­bakst­urs) töl­uðum saman. Hann hafði áhuga á að selja það og varð úr þannig við tókum á okkur skuld­bind­ingar bak­arís­ins,“ sagði Þráinn í sam­tali við Aust­ur­frétt.

Þráinn tók fjót­lega eftir kaupin til við að end­ur­bæta kaffi­hús og bak­arís­búð­ina í Fellabæ opn­aði hann svo nýja búð á Egils­stöðum ásamt því að selja brauð til versl­ana. Segir hann að síð­ar­nefndi þátt­ur­inn hafi ávalt verið erf­iður bak­arí­inu:

„Þegar við komum inn er 90% fram­leiðslu bak­arís­ins selt til end­ur­sölu, mest versl­ana. Við sáum ekki að það gengi upp fjár­hags­lega en gáfum því tæki­færi því við töldum brauðið okkar betra en það sem flutt er að og er mögu­lega orðið tveggja til þriggja daga gam­alt. Við lögðum í tals­verðan kostnað við hönnun nýrra umbúða til að efla okkur í sam­keppn­inni en það jók því miður ekki söl­una eins og þurft hefði.“

Erfitt að keppa við verksmiðjubakaríin

Bendir Þráinn á að í raun séu aðeins tvö bak­arí, Gæða­bakstur og Myllan sem fram­leiði næstum allt brauð sem pakkað sé í plast­s­poka og selt í versl­unum hér á landi. Segir hann þau bak­arí afar tækni­vædd og hag­kvæm. Þá hafi ýmis­legt fleira þró­ast á verri veg fyrir bak­arí eins og Fella­bakstur.

„Ég held að við höfum verið orðið eina bak­aríið á lands­byggð­inni sem fram­leiddi brauð í plast­pokum í versl­anir. Í byrjun árs fengum við gagn­rýni þegar við hættum að keyra brauði niður á firði þannig að versl­an­irnar gátu ekki fyllt á með okkar brauði eftir ára­mótin. Því miður gengur það ekki upp að reka bak­aríið hér þannig að það selji brauð þegar hin eru ekki til, eftir löng frí eða stórar helgar.

Við getum ekki keppt við stóru verk­smiðju­bak­aríin þar sem manns­höndin kemur nán­ast hvergi nærri heldur tölvur stjórna færi­bönd­unum og brauðin eru send inn á frysti. Á sama tíma eru launa­hækk­anir og síðan hefur allt korn hækkað vegna stríðs­ins í Úkraínu.

Síðan getum við nefnt „bake-off“, óbakað brauð sem flutt er inn frosið en bakað hér­lendis. Við vitum að það eru bak­arí sem kaupa frosið deig erlendis frá og hita upp en það hefur aldrei verið gert í Fella­bak­aríi. Við höfum nýtt okkur þetta á hót­el­unum, til dæmis með crossaint, enda er þetta að mörgu leyti hið fín­asta brauð. Í crossaint þarf smjör og staðan er sú að á inn­fluttu smjöri eru háir tollar til að vernda inn­lenda mjólk­ur­fram­leiðslu á meðan hægt er að flytja inn crossaint án tolla. Þarna er vit­laust gefið.

Við reyndum líka í tvö ár að leita víða um heim eftir hand­verks­bak­ara, eða konditor­meist­ara. Það gekk ekki og við erum ekki eina íslenska bak­aríið í þeirri stöðu,“ segir Þráinn.

„Reyndum okkar besta“

Segir hann að und­an­farin tvö ár hafi rekstur Fella­bakst­urs verið þungur. „Við fjár­festum mikið í breyt­ingum en móð­ur­fé­lagið virt­ist alltaf þurfa að leggja til meira fjár­magn. Þetta var í miðju Covid-þar sem ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki fóru illa. Um mitt síð­asta ár ákváðum við að stöðva allt fjár­streymi frá móð­ur­fé­lag­inu inn í bak­aríið, það yrði að standa undir sér. Síð­sum­ars ákváðum við að fara í ákveðnar breyt­ingar á bak­arí­inu og á tíma­bili í haust fannst okkur von­ar­glæta. Undir ára­mótin kom í ljós að þetta væri búið og við yrðum að játa okkur sigruð. Mér finnst mjög sárt að svona hafi farið og við höfum tapað miklum pen­ingum á þessu. Við reyndum okkar besta og ég var ánægður með á hvaða leið við vorum. Ég segi ekki að bakk­elsið okkar hafi verið full­komið en við vildum gera vel og Björgvin er flinkur bak­ari. Ég hef prófað ýmis­legt í mínum rekstri og stundum þegar gengur vel telur maður sig ósnert­an­legan. Við töldum að með öðrum rekstri, sem notar mikið brauð, væri hægt að reka bak­aríið. Við vorum með mat­væla­fram­leiðslu sem við færðum inn í bak­aríið til að samnýta ferðir og tæki. Þar von­uðum við að heima­fólk keypti okkar vöru ef hún væri aðeins vand­aðri frekar en það sem flutt væri að. Við hættum þess­ari fram­leiðslu nú í febr­úar þegar við sáum að hún gengi ekki upp. Kannski var maður eins og Don Kíkóti að berj­ast við vind­myll­urnar – að taka við deyj­andi stétt til að reyna að blása í hana lífi.“

Eins og áður segir hefur skipta­stjóri aug­lýst rekstur Fella­bakst­urs í heild til sölu en Þráinn von­ast til að það tak­ist að reka bak­arí í þétt­býl­ingu á Fljóts­dals­hér­aði, til fram­búðar. „Það er rétt að bak­ar­íum víða um heim fækkar en það er líka að koma upp ný teg­und bak­aría, kannski lík­ari þessum hand­verks­bak­ar­íum sem ég horfði til í byrjun. Fyrst og síð­ast þarf heima­fólk að versla við bak­aríið til að það gangi upp.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil