Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sæþór var enn að vakna er snjóflóð féll á húsið:„Svo komu þessi miklu neyðaröskur af neðri hæðinni“

Sæþór var enn að vakna er snjóflóð féll á húsið:„Svo komu þessi miklu neyðaröskur af neðri hæðinni“
Snjóflóð féll í Nes­kaups­stað í fyrra Mynd: Rúv-skjáskot

„Það tók okkur stund­ar­korn að gera okkur grein fyrir hvað hafði gerst enda vorum við ekki alveg vöknuð en svo heyrðum við bara neyða­röskrin og lætin frá neðri hæð­inni strax í kjöl­farið,“ sagði Sæþór Sig­ur­steins­son, íbúi í öðru af þeim tveimur fjöl­býl­is­húsum í Nes­kaup­stað sem urðu fyrir snjó­flóði snemma í morgun en hann var í við­tali við Aust­ur­frétt.

Fram kemur í frétt Aust­ur­fréttar að það sé sam­dóma álit fólks sem mið­ill­inn ræddi við, að enn verr hefði farið ef snjó­fljóðin hefðu komið örlítið síðar. Bæj­ar­búar voru lang­flestir að vakna þegar flóðin komu og fáir á ferli úti­við.

„Það var nú ekki svo að ég átt­aði mig á hvað væri á seyði og ekki heyrði ég neitt fyrr en flóðið skellur á hús­inu með miklum dynk,“ sagði Sæþór í sam­tali við Aust­ur­frétt. „Maður var svona að rísa úr rekkju og enn með stírur í augum svo að mér var brugðið þegar höggið kom á húsið en svo komu þessi miklu neyða­röskur af neðri hæð­inni. Ég glað­vakna, spóla mig í föt í einum grænum og út á stiga­gang þar sem ég geri mér loks grein fyrir hvað átt hefur sér stað. Þar fyllt­ist nán­ast öll íbúðin af snjó.“

Enginn hlaut alvar­leg meiðsl er snjó­flóðin féllu snemma í morgun en all­nokkrir þurftu að leita lækn­is­að­stoðar vegna minni­háttar meiðsla. Einn þeirra var áður­nefndur Sæþór en hann skarst nokkuð á kálfa vegna gler­brota í snjónum fyrir utan húsið er rým­ingin var gerð.

„Ég varð fyrir því að fá stærðar gler­brot beint í kálfann á mér þegar við vorum að rýma húsið og ég þurfti að drífa mig og láta sauma tvö spor í kálfann. Það var engin leið að sjá slíkt í snjónum þegar út var komið því það var brak út um allt.“

„Í sjálfu sér vorum við í þessu húsi heppin að því leyt­inu að flóðið féll fyrst á fjöl­býl­is­hús hér rétt fyrir ofan okkur og þar náði flóðið vel upp á aðra hæð þess húss. Við hér sluppum við það og mildi að eng­inn hér á neðri hæð­inni hafi til dæmis verið kom­inn í eld­húsið og staðið fyrir innan glugg­ann þegar þetta ríður yfir. En við auð­vitað tölu­vert heppn­ari en fólkið í blokk­inni hér utar því snjó­flóðið náði ekki aðeins upp á aðra hæð þar heldur sóp­aði niður bílum kringum það hús og þeir bílar komu í runnu með snjónum hér fram hjá okkar bygg­ingu og stopp­uðu hér rétt fyrir neðan á steyptum kanti,“ sagði Sæþór við Aust­ur­frétt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil