Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dagmar Ýr er nýr framkvæmdastjóri Austurbrúar: „Það eru forréttindi að taka við svona starfi“

Dagmar Ýr er nýr framkvæmdastjóri Austurbrúar: „Það eru forréttindi að taka við svona starfi“
Dagmar Ýr.

Dagmar Ýr Stef­áns­dóttir hefur verið ráðin til að gegna stöðu fram­kvæmda­stjóra Aust­ur­brúar.

Hún tekur við starf­inu af Jónu Árnýju Þórð­ar­dóttur, sem hefur sinnt því síðan 2014.

Dagmar er með B.A. gráðu í fjöl­miðla­fræði frá Háskól­anum á Akureyri. Síðan 2013 hefur hún starfað sem yfir­maður sam­skipta og sam­fé­lags­mála hjá Alcoa Fjarða­áli. Þar hefur hún m.a. haft umsjón með sam­skiptum við hags­muna­að­ila, útgáfu sam­fé­lags­skýrslu, við­burð­ar­stjórnun, gerð aug­lýs­inga­efnis ásamt því að sitja í fram­kvæmda­stjórn fyr­ir­tæk­is­ins og sinna verk­efnum því tengdu, s.s. mannauðs­málum og rekstri.

Áður starf­aði Dagmar sem for­stöðu­maður mark­aðs- og kynn­ing­ar­sviðs hjá Háskól­anum á Akureyri í fimm ár og var þar áður frétta­maður hjá fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu N4 í eitt ár. Hún er full­trúi í háskóla­ráði Háskól­ans á Akureyri og situr í stjórn Stapa líf­eyr­is­sjóðs. Auk þess hefur Dagmar setið í fagráði Upp­bygg­ing­ar­sjóðs Aust­ur­lands, Hvata­sjóðs Seyð­is­fjarðar, heima­stjórn Fljóts­dals­hér­aðs, verið full­trúi í stjórn Álkla­s­ans að við­bættri þátt­töku í ýmsum fjöl­breyttum sam­starfs- og sam­ráðs­vett­vöngum á svæðis- og lands­vísu.

Dagmar er fjöru­tíu og eins árs gömul og upp­alin í Merki í Jökuldal. Hún hefur lengst af búið á Egils­stöðum en bjó um tíma á Akureyri þar sem hún stund­aði nám og starf­aði síðar við Háskól­ann á Akureyri, eins og þegar hefur komið fram.

Eig­in­maður hennar er Guð­mundur Hinrik Gúst­avs­son og saman eiga þau tvo drengi, þrettán og sjö ára.

Hennar áhuga­mál eru hreyf­ing og úti­vist auk þess sem hún nýtur þess að fara í leik­hús og sækir tón­leika við öll gefin tæki­færi.

„Ég er virki­lega spennt að takast á við þetta verk­efni,“ segir Dagmar Ýr.

„Það eru for­rétt­indi að taka við svona starfi og breiða út fagn­að­ar­er­indið um Aust­ur­land. Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum með starfs­fólk­inu og stjórnum Aust­ur­brúar og SSA til að gera Aust­ur­land að enn betri stað til að búa á og heim­sækja.“

Berglind Harpa Svav­ars­dóttir, for­maður SSA og stjórnar Aust­ur­brúar, fagnar ráðn­ing­unni og segir að mikil sátt ríki um hana.

„Jóna Árný, frá­far­andi fram­kvæmda­stjóri, var ein­stak­lega öflug í sínu starfi og skilar af sér góðu búi. Stjórn SSA og Aust­ur­brúar er sann­færð um að Dagmar Ýr sé rétta mann­eskjan til að taka við af henni. Hug­myndir hennar sam­rým­ast fram­tíð­ar­sýn okkar, eins og hún birt­ist í Svæð­is­skipu­lagi Aust­ur­lands, og hún hefur réttu þekk­ing­una og reynsl­una til að stýra Aust­ur­brú áfram til góðra verka.“

Áætlað er að Dagmar Ýr komi til starfa hjá Aust­ur­brú í júní.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil