Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ritstjóri Austurfréttar svarar frétt Moggans: „Þeir þurfa hins vegar líka að horfa inn á við“

Ritstjóri Austurfréttar svarar frétt Moggans: „Þeir þurfa hins vegar líka að horfa inn á við“
Gunnar Gunn­ars­son rit­stjóri Aust­ur­fréttar Mynd: Thorsteinn Asgeirsson

Gunnar Gunn­ars­son rit­stjóri Aust­ur­fréttar svarar Morg­un­blað­inu sem kvartar yfir boð­skiptum Veð­ur­stofu Íslands þegar kemur að við­vör­unum. Gunnar spyr úr því að hans litli frétta­mið­ill hafi náð skila­boðum Veð­ur­stof­unnar, hvers vegna náðu stóru miðl­arnir þeim ekki?

Gunnar Gunn­ars­son rit­stjóri Aust­ur­fréttar

Gunnar Gunn­ars­son skrif­aði pistil á frétta­miðli sínum Aust­ur­frétt, í dag þar sem hann svarar frétt Morg­un­blaðs­ins þar sem segir að tak­mark­aðar við­var­anir hafi borist um snjó­flóða­hættu á Aust­fjörðum aðfara­nótt 27. mars. Að aðeins hafi birst til­kynn­ing á Facebook-síðu veð­ur­stof­unnar og því hafi stærstu vef­miðl­arnir misst af þeim. En Gunnar segir að vef­miðl­arnir verði að líta inn á við. Segir hann bæði rétt og eðli­legt að „setja spurn­inga­merki við boð­skiptin“ en spyr þó þeirrar spurn­ingar, að ef Aust­ur­frétt, með aðeins tvo blaða­menn og enga skipu­lagða helg­ar­vakt, hafi náð við­vör­unum, hvers vegna hafi stóru landsmiðl­arnir ekki náð þeim. Pistil­inn má lesa í heild sinni hér að neðan.

„Í Morg­un­blað­inu í dag er fjallað um að tak­mark­aðar við­var­anir hafi borist um vænt­an­lega snjó­komu og þar með snjó­flóða­hættu á Aust­fjörðum aðfara­nótt 27. mars síð­ast­lið­ins. Lagt er út frá því að stærstu vef­miðlar lands­ins hafi þar af leið­andi ekki birt upp­lýs­ingar þar um. Þeir þurfa hins vegar líka að horfa inn á við.

Þegar líða tók á sunnu­dag fóru að birt­ast frá Veð­ur­stof­unni og Vega­gerð­inni við­var­anir um mögu­lega snjó­flóða­hættu. Um kvöld­mat var orðið ljóst hvert stefndi og var þá komin færsla inn á blogg­síðu ofan­flóða­deildar um að snjó­flóð hefðu fallið þá um dag­inn.

Gul veð­ur­við­vörun gekk í gildi fyrir Aust­firði um klukkan níu. Þá var komin við­vörun við snjó­flóða­hættu og meðal ann­ars ákveðið að loka veg­inum um Fagradal vegna hennar klukku­stund síðar. Frá því greindi Aust­ur­frétt. Á þeim tíma var þó ekki talin hætta í byggð og því lögð áhersla á lokun veg­anna.

Í frétt Morg­un­blaðs­ins
 er lagt út frá því að Veð­ur­stofan hafi aðeins birt við­vörun á Facebook og aðeins lítið brot 38 þús­und fylgj­enda hennar hafi getað séð hana þar. Á móti séu Mbl.is og Vísir með 220 þús­und manns á hverjum degi. Á svip­aðan hátt og lagt er út frá því að aðeins brot fylgj­enda Veð­ur­stof­unnar á Facebook hafi getað séð til­kynn­ing­una má að sama skapi velta því upp til hversu stórs hluta mark­hóps­ins, það er að segja Aust­firð­inga, landsmiðl­arnir tveir hefðu náð.

Eftir á er bæði rétt og eðli­legt að setja spurn­inga­merki við boð­skiptin. Fyrst Veð­ur­stofan taldi rétt að senda út til­kynn­ingu á Facebook, hefði ekki verið rétt að senda út tölvu­póst á frétta­miðla og sveit­ar­fé­lagið líka?

En er kannski rétt að spyrja – fyrst Aust­ur­frétt, með enga skipu­lagða helg­ar­vakt og aðeins tvo blaða­menn, náði utan um við­var­an­irnar – hvers vegna gerðu landsmiðl­arnir það ekki líka? Kannski var það lukka að Aust­ur­frétt skyldi taka einn vefrúnt fyrir svefn­inn og sjá við­var­an­irnar sem komnar voru í loftið, einkum miðað við að vera á þessum tíma­punkti stað­sett í öðru tíma­belti. Að Aust­ur­frétt væri með Veð­ur­appið sett upp og fékk þar af leið­andi til­kynn­ingu um gulu við­vör­un­ina.

En kannski var það ára­löng vinna í að byggja þekk­ingu á svæð­inu sem skipti máli. Að kvöld­vaktin setti það í for­gang að kanna hvað lægi að baki veð­ur­við­vörun frekar en að end­ur­birta fast­eigna­aug­lýs­ingar sem fréttir, eitt­hvert dramakastið í borg­ar­stjórn eða eitt­hvað álíka?

Þeim til varnar má þó halda því til haga að sunnu­dag­ur­inn 26. mars virð­ist hafa verið ágætis frétta­dagur, til dæmis með ferða­fólki við Vík í vanda og umræðum um vopna­væð­ingu lög­regl­unnar. Það breytir því þó ekki hver vaktar Aust­ur­land umfram aðra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil