Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Samráð hjóna um smygl á miklu magni á ópíóíðalyfjum: „Já, svo við getum keypt húsið“

Samráð hjóna um smygl á miklu magni á ópíóíðalyfjum: „Já, svo við getum keypt húsið“
Faraldur geysar á land­inu vegna ópíóða­lyfja.

Hjón, sem eru til rann­sóknar vegna umfangs­mik­ils smygls á kóka­íni og lyf­seð­ils­skyldum lyfjum, skipu­lögðu í sam­ein­ingu smygl á ópíóða­lyfjum frá Spáni til Íslands á síð­asta ári. Lyfin eru seld á frjálsum mark­aði á Spáni en ekki á Íslandi. Konan starf­aði sem flug­freyja hjá Icelandair en mað­ur­inn er athafna­maður. Hvorugt þeirra var fram að þessu þekkt fyrir glæpi.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Mannlífs leiða sam­skipti hjón­anna á sam­fé­lags­miðlum í ljós að þau höfðu sam­vinnu um inn­flutn­ing á töfl­unum sem fela í sér ofsa­gróða. Lyfin voru keypt á Spáni og flutt til Íslands. Um er að ræða að hluta drápslyf, ópíóíða­lyf, sem kostað hafa mörg manns­líf í far­aldri sem geysað hefur að und­an­förnu.

Sveit­ar­fé­lagið Vogar.

Lög­reglan á Suð­ur­nesjum fer með rann­sókn máls­ins sem rekja má til þess að 2 kíló af kóka­íni voru send í pósti frá Þýska­landi á heim­il­is­fang for­eldra athafna­manns­ins í Vogum. Þetta var í októ­ber á síð­asta ári. Móðir athafna­manns­ins sagði í sam­tali við Mannlíf ekki hafa haft hug­mynd um það hvað væri í pakk­anum.

For­eldr­arnir greiddu undir send­ing­una og son­ur­inn kom nokkru síðar og sótti pakk­ann og fór með hann í hús sem hjónin voru nýbúin að kaupa. Fólkið vissi þá ekki að heim­ili hjón­anna var leyni­lega vaktað af lög­reglu. Upp hafði kom­ist um efni send­ing­ar­innar áður en hún fór frá Þýska­landi og ákveðið að fylgj­ast með henni á áfanga­stað og ná glæpamðn­n­unum að baki inn­flutn­ingnum. Stað­setn­ing­ar­bún­aði var komið fyrir í pakk­anum. Athafna­mað­ur­inn sagði við Mannlíf að hann hefði ekki haft hug­mynd um efni send­ing­ar­innar og talið að um væri að ræða send­ingu sem tengd­ist við­haldi á húsi þeirra. Hann hafði gjarnan gefið upp heim­il­is­fang for­eldr­anna þegar um pant­anir var að ræða. Móðir hans tók í sama streng og taldi hjónin ungu ekki hafa þau fjár­ráð sem þyrfti til að fjár­magna kaup á slíku magni kóka­íns sem talið var að leggi sig á 50 millj­ónum króna í sölu­virði á Íslandi.

Drápslyfjum smyglað

Lög­reglu­menn­irnir í Vogum brugðu skjótt við þegar pakk­inn var sóttur. Hjónin, sam­starfs­maður þeirra og sonur voru hand­tekin í rassíu lög­regl­unnar og gæslu­varð­halds kraf­ist yfir þeim öllum. Sími flug­freyj­unnar var gerður upp­tækur. Þá komu í ljós sam­skipti hjón­anna sem vís­uðu til þess að þau hefði haft sam­vinnu allt árið um að smygla lyfjum sem gjarnan eru kennd við ópíóíða. Þessi lyf hafa að und­an­förnu kostað fjölda manns­lífa og eru sann­kölluð drápslyf.

22. jan­úar sendir mað­ur­inn konu sinni, flug­freyj­unni, skila­boð á messen­ger um að mikið sé í húfi. Hún tekur undir og talar um kaup á húsi þeirra: „Verður bara að heppn­ast,“ skrifar mað­ur­inn. „Já, svo við getum keypt húsið,“ svarar eig­in­konan. Hún segir verst að hann hefði þurft að fara í flug frá Tenerife þar sem væru fullt af Íslend­ingum. „Og labba í gegn með þeim“.

Tenerife er afar vin­sæll ferða­manna­staður. Lyf sem kennd eru við ópíóíða eru ekki lyf­seð­ils­skyld.

Maðurinn sendi konu sinni myndir af lyfjum sem hann hafði kom­ist yfir. Um var að ræða OxyContin og fleiri ávana­bind­andi lyf. OxyContin er notað við miklum eða mjög miklum verkjum. Lyfið er lífs­hættu­legt ef það er notað í stórum skömmtum.

Þú græjar meira, you know what

Hann upp­lýsti kon­una, sam­kvæmt sam­skipt­unum, um að hann væri kom­inn með hart­nær 500 töflur sem myndu gefa mik­inn gróða, enda sölu­verð hverrar töflu um 3000 krónur.

„Var að telja, eg er með 480 töflur, pæla í að reyna að senda eitt­hvað á undan mér,“ skrif­aði mað­ur­inn. Kona hans svarar sam­dæg­urs. „480 er það sinnum 3000 eða um 1.440.000 kr. ?“.

Nokkrum dögum seinna, 28 jan­úar, reifar flug­freyjan „brilli­ant“ hug­mynd um fleiri ferðir. Móðir hennar var á leið til Tenerife og hún taldi upp­lagt að eig­in­mað­ur­inn skellti sér líka.

„Ég á flug til Tene 12 feb. Þú ferð með þeim út. Segist vera að laga ein­hverja tönn sem meiðir þig eða eitt­hvað slíkt. Ég kem svo með næstu vél 3 dögum seinna og við förum heim sléttri viku eftir að þú fórst út. Þú græjar meira, you know what“.

Hann svarar sam­dæg­urs. „Ég að vera á bótum en vinna. Flytja inn töflur ….“.

Meðal ann­arra sam­skipta eru myndir af kvitt­unum fyrir kaupum á lyfjum og myndir af umræddum lyfjum sem mað­ur­inn sendi konu sinni. Rétt er að taka fram að mað­ur­inn hafnar því í sam­tali við Mannlíf að hafa flutt inn umrædd lyf. Hann seg­ist vera bak­veikur og geta fengið verka­lyf hér­lendis eftir þörfum og þyrfti því ekki að leita til útlanda.

Frá Amster­dam.

Í júlí síð­ast­liðnum dregur enn til tíð­inda. Flug­freyjan var þá stödd í Hollandi. Þá kemur fram í sam­skiptum að eig­in­mað­ur­inn biður konu sína að koma hárri fjár­hæð á mann í Amster­dam.

Mér leið eins og glæpa­manni

29. júlí skrifar flug­freyjan. „Fer þá í hrað­banka á morgun. Og set í umslag“.

Hún vill svo vita meira um mann­inn sem á að taka við pen­ing­unum. „Ég er ekk­ert að fara að segja. Bara rétti honum þetta. Og heitir hann John?“

Maðurinn svarar: „Ég veit ekki alveg“ og bætir svo við „satt“.

„Já, væri gott að geta keypt hús,“ skrifar hún. Eftir að pen­ing­arnir, 700 þús­und, hafa verið afhentir lýsir hún líðan sinni.

„Búin. Mér leið eins og glæpa­manni“.

Gríð­ar­legt magn af kóka­íni barst á heim­ili í Vogum.

Ekki kemur fram í sam­skipt­unum í hvaða skyni þessi greiðsla var innt af hendi eða hvort hún teng­ist kóka­ín­mál­inu. Hjónin hafa haldið því fram að greiðslan hafi verið innt af hendi í greiða­skyni við félaga þeirra. Kókaínið kom til Íslands í októ­ber, þremur mán­uðum eftir að flug­freyjan afhenti pen­ing­ana í Amster­dam.

Bjarney Ann­els­dóttir, yfir­lög­reglu­þjónn á Suð­ur­nesjum, segir málið enn ekki vera komið á ákæru­svið.

„Málið er enn til rann­sóknar. Það er eitt­hvað í það að það verði sent til ákæru en beðið er nið­ur­stöðu m.a. fjár­mála­grein­ingar,“ skrifar hún.

Kóka­ín­málið hefur síðan vafið upp á sig. Flug­freyjan og maður hennar standa í skiln­aði og hún var rekin úr starfi sínu hjá Icelandair. Þau hafa sakað fyrr­ver­andi lög­mann manns­ins um að hafa mis­notað kon­una þegar hann heim­sótti hana á geð­deild eftir að hún losn­aði úr gæslu­varð­haldi. Lög­mað­ur­inn hefur lýst yfir sak­leysi sínu en við­ur­kennir ást­ar­sam­band við kon­una. Upp úr því sam­bandi slitn­aði. Lög­mað­ur­inn seg­ist hafa fengið kröfu um að greiða til­tekna fjár­hæð til að ná sáttum sem hann hafi alfarið hafnað. Eig­in­mað­ur­inn hafnar því að hafa viljað ná pen­ingum af lög­mann­inum en seg­ist aðeins hafa viljað ná fram rétt­læti gagn­vart lög­mann­inum sem hafi splundrað fjöl­skyldu hans.

Sjá fyrri frétt:

Eiturlyf fyrir 50 millj­ónir í Vogum – Blásak­laus hús­móðir með tvö kíló af kóka­íni í for­stof­unni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi