Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Eiturlyf fyrir 50 milljónir í Vogum – Blásaklaus húsmóðir með tvö kíló af kókaíni í forstofunni

Eiturlyf fyrir 50 milljónir í Vogum – Blásaklaus húsmóðir með tvö kíló af kókaíni í forstofunni
Dul­ar­fulla kóka­ín­málið kom upp í Vogum í októ­ber síð­ast­liðnum.

Kóka­ín­send­ing sem kom frá Þýska­landi til Íslands fyrir tæpum sjö mán­uðum átti eftir að draga dilk á eftir sér. Um var að ræða tvö kíló sem send voru á nafn eldri manns í Vogum á Vatns­leysu­strönd. Hús­ráð­endur munu hafa komið af fjöllum þegar send­ingin barst á heim­ili þeirra. Þau tóku þó við pakk­anum og greiddu upp­settan send­ing­ar­kostnað.

Mannlíf ræddi við kon­una sem full­yrðir að vand­ræða­gangur hafi verið með pakk­ann sem hafi verið í nokkra daga í for­stof­unni hjá henni og veikum manni hennar áður en sonur þeirra, kunnur athafna­maður, kom og sótti pakk­ann og flutti hann í nær­liggj­andi hús sem hann og þáver­andi eig­in­kona hans voru með í bygg­ingu. Aðrar heim­ildir eru um að pakk­inn hafi aðeins stoppað við í for­stofu hjón­anna í örfáar klukku­stundir áður en son­ur­inn nálg­að­ist send­ing­una.

Húsið vaktað

Það sem fólkið í Vogum vissi ekki í októ­ber árið 2022 var að fylgst var með hverju fót­máli þeirra, símar hleraðir og húsið vaktað af dul­búnum lög­reglu­mönnum. Yfirvöld í Þýska­landi höfðu upp­götvað efnið og ákveðið að fylgja pakk­anum eftir til Íslands og upp­lýsa hverjir stæðu að glæpnum. Sendi­bún­aði var komið fyrir í pakk­anum og honum fylgt eftir alla leið í Voga á Vatns­leysu­strönd þar sem við­tak­endur voru eldra fólk sem þótti afar ólík­legt til að standa í smygli á svo miklu af fíkni­efnum. Inn­kaups­verðið Evrópu er talið vera um 10 millj­ónir króna, sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs, en götu­virði efn­anna, eftir íblöndun, allt að 50 millj­ónum króna og því gríð­ar­lega mikið undir fyrir þá sem stóðu að inn­flutn­ingnum.

Konan hringdi og lét hjónin vita af pakk­anum. Þegar athafna­mað­ur­inn kom með pakk­ann á áfanga­stað í nágrenn­inu dró til tíð­inda. Lög­reglan mætti og hand­tók mann­inn og 16 ára son hans og í fram­hald­inu eig­in­konu hans, flug­freyju hjá Icelandair. Athafn­mað­ur­inn þvertók fyrir að eiga efnin og kvaðst koma af fjöllum. Hann kunni þó enga skýr­ingu á því að efnin voru send á for­eldra hans og kvaðst ekk­ert vita um erlendan send­anda efn­anna. Ung­ling­ur­inn var tal­inn alsak­laus. Þá er fátt sem bendir til beinnar aðildar flug­freyj­unnar að því máli. Spurn­ingar eru þó uppi um afhend­ingu á pen­ingum til ótil­greinds aðila í Hollandi.

Ásökun um nauðgun

Lög­reglan lagði ekki trúnað á frá­sögn manns­ins. Yfir­gnæf­andi líkur eru á aðild hans þótt hugs­an­lega sé stærri aðili að baki. Hjónin voru hneppt í gæslu­varð­hald auk þess að meintur sam­starfs­maður hjón­anna var hand­tek­inn á leið frá húsi hjón­anna og hnepptur í gæslu­varð­hald. Konunni var sleppt eftir nokkra daga en mað­ur­inn sat inni á meðan málið var til rann­sóknar. Gæslu­varð­haldið reynd­ist henni þó þung­bært og hún hafn­aði inni á geð­deild þar sem næsti hluti þessa máls hófst. Lögmaður manns­ins var dæmdur frá mál­inu vegna ára­langra vin­áttu­tengsla við þau hjónin. Hann heim­sótti kon­una á geð­deild þar sem þau áttu í nánum sam­skiptum en ekki kyn­ferð­is­legum. Það mál átti eftir að vekja enn meiri athygli en kóka­ínsmyglið eftir að það var látið ber­ast að lög­mað­ur­inn hefði átt í ást­ar­sam­bandi við eig­in­konu skjól­stæð­ings síns.

Grein Vísis frá byrjun mán­að­ar­ins.

Vef­mið­ill­inn Vísir sagði frá geð­deild­ar­mál­inu og lét í veðri vaka að lög­mað­ur­inn hefði mis­notað kon­una og jafn­vel nauðgað henni á geð­deild. Málinu var lýst sem ein­stöku í íslenskri rétt­ar­sögu. Það voru blaða­menn­irnir Magnús Heimir Jónasson og Oddur Ævar Gunn­ars­son eru skrif­aðir fyrir grein­inni. Oddur Ævar er blaða­maður á Vísi en Magnús Heimir var á Frétta­blað­inu þegar það fór í þrot og starf­aði ekki á Vísi. Vísir fylgdi mál­inu ekki eftir og ræddi ekki við lög­mann­inn. Mannlíf ræddi við lög­mann­inn sem stað­festi að hann hefði átt í ást­ar­sam­bandi við kon­una en harð­neit­aði að hafa beitt hana nauð­ung. „Þetta var ein­fald­lega ást­ar­sam­band og mis­tök af minni hálfu,“ sagði hann.

Ásökun á lögmann

Lög­mað­ur­inn þvertók fyrir það en við­ur­kennndi að þau hefðu átt í ást­ar­sam­bandi sem færst hefði á alvar­legt stig eftir að konan útskrif­að­ist af geð­deild­inni. Í frétt Vísis í byrjun þessa mán­aðar var því haldið fram að lög­mað­ur­inn hefði mis­beitt valdi sínu sem verj­andi og haldið eig­in­mann­inum lengur í gæslu­varð­haldi lengur en efni stóðu til svo hann gæti ræktað ást­ar­sam­bandið við kon­una. Fátt í gögnum máls­ins styður að lög­mað­ur­inn hafi brotið af sér með þessum hætti. Þegar konan var inni  á geð­deild var lög­mað­ur­inn dæmdur í undr­rétti frá því að gæta hags­muna manns­ins. Það mál var kært til Lands­réttar sem stað­festi í fram­hald­inu að vegna  vin­áttu­tengsla gæti lög­mað­ur­inn ekki gætt hags­muna gæslu­varð­halds­fang­ans sem yrði að fá nýjan verj­anda.

Konan vildi skilnað

Á meðan athafna­mað­ur­inn var ennþá í gæslu­varð­haldi ákvað flug­freyjan að sækja um skilnað. Þannig var staðan þegar hann losn­aði. Allt var komið í bál og brand. Hjónin voru grunuð um stór­fellt smygl á kóka­ín­inu auk þess að hafa smyglað til lands­ins frá Spáni miklu magni af ópíóða­lyfjum sem áttu að gefa gríð­ar­legan hagnað. Lyfin eru lyf­seð­ils­skyld á Íslandi en ekki á Spáni. Gríð­ar­legur hagn­aður er af slíku smygli. Neysla þeirra stór­hættu­leg og hefur kostað mörg manns­líf að und­an­förnu. Lög­reglan byggði grun sinn á síma­gögnum úr síma flug­freyj­unnar sem hafði verið gerður upp­tækur. Samkvæmt þeim hafði konan meðal ann­ars ráð­lagt mann­inum að taka til­tekið flug frá Spáni til Íslands til að forð­ast leit.

Rekin frá Icelandair

Afleið­ing­arnar fyrir flug­freyj­una urðu alvar­legar. Hún stóð í skiln­aði og var rekin úr starfi sínu hjá Icelandair. Þá slitn­aði fljót­lega upp úr sam­bandi hennar við lög­mann­inn. Nokkru eftir að frétt Vísis birt­ist var hún aftur lögð inn á geð­deild. Frétta­flutn­ingur af mál­inu hafði að sögn valdið henni áfalli. Flug­freyjan og athafn­að­ur­inn hafa nú sam­ein­ast í því að bera sakir á lög­mann­inn.

Stjórn­endur Icelandair brugðu skjótt við og ráku flug­freyj­una.

Lög­mað­ur­inn sagði í sam­tali við Mannlíf að sér hefði, eftir króka­leiðum, borist há fjár­krafa gegn því að málið yrði fellt niður. Hann harð­neitar að borga. Ekki eru til stað­fest gögn um það en lög­fræð­ingar sem virð­ast starfa fyrir hjónin ósk­uðu eftir fundi með lög­mann­inum til ræða fram­vindu máls­ins. Því erindi var ekki svarað.

Segist saklaus

Mannlíf hefur rætt við eig­in­mann­inn sem vildi ekki á því stigi tjá sig efn­is­lega um málin. Hann sver af sér sakir í kókaí­mál­inu og smygl­inu á ópíóíð­unum. Hann stað­hæfir að lög­mað­ur­inn hafi með sam­band­inu við eig­in­kon­una brotið gegn þeim hjónum og rústað fjöl­skyldu hans og kallar eftir rétt­læti þar. Hann sagð­ist jafn­framt myndu una nið­ur­stöðu dóm­stóla í kóka­ín­mál­inu, sem er enn á rann­sókn­ar­stigi. Hann lof­aði að segja sína hlið máls­ins í Mannlífi. Móðir hans tekur í sama streng. Hún telur son sinn vera sak­lausan, enda hefði hann engin fjár­ráð til þess að kaupa svo mikið magn af eit­ur­lyfjum. Hún efast því um sekt sonar síns en telur eðli­legt að rétt­ar­kerfið taki á mál­inu og upp­lýsi um það hvernig tvö kíló af kóka­íni bár­ust inn á heim­ili þeirra hjóna í Vogum.

Áréttað skal að ekki hefur verið dæmt í mál­inu. Viðurlög við smygli af þess­ari stærða­gráðu geta verið allt að þriggja ára fang­elsi, ef sök sann­ast. Við bæt­ist að ef sök sann­ast í ópíóíða­mál­inu þá liggur þar fang­els­is­dómur undir. Staða fólks­ins er því grafal­var­leg.

Óljóst er hver staða ásakan­anna á hendur lög­mann­inum er. Það mál er einnig hjá lög­reglu og yfir­heyrslur hafa farið fram, meðal ann­ars yfir honum og ást­kon­unni fyrr­ver­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina