Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Lögmaðurinn þvertekur fyrir kynferðisbrot gegn flugfreyju á geðdeild: „Einfaldlega ástarsamband“

Lögmaðurinn þvertekur fyrir kynferðisbrot gegn flugfreyju á geðdeild: „Einfaldlega ástarsamband“
Myndin teng­ist ekki efni grein­ar­innar beint

Lög­mað­ur­inn sem sak­aður er um nauðgun á geð­deild þver­neitar sök og segir að sam­bandið við eig­in­konu skjól­stæð­ings síns hafi ekki verið nauð­ung af neinu tagi og ekki af kyn­ferð­is­legum toga fyrr en eftir að hann heim­sótti hana á geð­deild. Hann segir þau hafa átti í vina­sam­bandi um ára­bil og í fram­hald­inu hafi verið dað­urs­sam­band á milli þeirra.

„Þetta var ein­fald­lega ást­ar­sam­band og mis­tök af minni hálfu,“ segir lög­mað­ur­inn í sam­tali við Mannlíf. Hann við­ur­kennir að málið sé á gráu svæði.

Vísir sagði frá því í upp­slátt­ar­frétt að umræddur lög­maður hefði verið kærður fyrir að nauðga kon­unni þegar hún var á geð­deild eftir að eig­in­maður hennar var hnepptur í gæslu­varð­hald vegna gruns um að hann hefði smyglað tveimur kílóum af kóka­íni til lands­ins og áður umtals­verðu magni af ávana­bind­andi verkja­lyfjum. Eig­in­mað­ur­inn var skjól­stæð­ingur lög­manns­ins en Lands­réttur bann­aði það sam­band seinna vegna vin­áttu þeirra og dæmdi lög­mann­inn frá mál­inu. Konan sem um ræðir starf­aði sem flug­freyja hjá Icelandair. Hjónin og lög­mað­ur­inn höfðu átt í ára­löngu vin­áttu­sam­bandi.

Lög­mað­ur­inn hefur lagt fram gögn sem sýna að kyn­ferð­is­legt sam­band hans við kon­una hófst eftir að hún losn­aði af geð­deild. Fyrir liggur vitn­is­burður kon­unnar og vin­konu hennar sem styðja þann mál­flutn­ing. Dað­urs­sam­band hafði verið á milli hans og kon­unnar um tíma en sam­bandið færð­ist á annað svið dag­inn eftir að konan losn­aði af geð­deild.

Hjónin standa nú í skiln­að­ar­ferli en eru sam­mála um að kæra lög­mann­inn fyrir atvikin á geð­deild. Hann hefur við­ur­kennt að þau hafi sýnt hvort öðru atlot en þver­tekur fyrir að þau hafi haft sam­farir á sjúkra­hús­inu. Þá bendir hann á að eng­inn vitn­is­burður sé til um annað. Hann full­yrðir jafn­framt að hjónin hafi látið ber­ast til sín að málið félli niður gegn hárri greiðslu til þeirra.

Rekin frá Icelandair

Flug­freyjan er grunuð um aðild eða yfir­hylm­ingu vegna kóka­ínsmygls­ins. Smyglið komst upp í októ­ber síð­ast liðnum þegar mað­ur­inn fékk senda tveggja kílóa kóka­ín­send­ingu frá Þýska­landi á heim­ili for­eldra sinna í Vogum. Maðurinn nálg­að­ist efnin og fór með þau ásamt félaga sínum í hús­næði sem er í eigu hans. Þar kom lög­reglan aðvíf­andi og hand­tók menn­ina, son hans og eig­in­kon­una í fram­hald­inu. Maðurinn þrætir fyrir að hafa vitað hvað væri í pakk­anum. Þau voru öll dæmd í gæslu­varð­hald ásamt 16 ára syni manns­ins. Eftir að gæslu­varð­hald­inu sleppti var flug­freyjan inn­rituð á geð­deild. Hún var send í frí og síðan rekin úr starfi hjá Icelandair.

Stjórn­endur Icelandair brugðu skjótt við og ráku flug­freyj­una.

Auk þessa eru hjónin til rann­sóknar vegna meints smygls á ópíóíða­lyfj­unum sem talið er að hafi verið komið til lands­ins frá Tenerife í ferða­tösku. Umrædd lyfi eru lyf­seð­ils­skyld á Ísland en ekki á Spáni. Gríð­ar­legur gróði er í sölu á slíkum lyfjum á svörtum mark­aði. Ekkert hefur sann­ast í því máli en síma­gögn eru til grund­vallar því máli. Meðal ann­ars er þar sam­skipti hjón­anna þar sem vanga­veltur eru uppi um að sölu­virðið sam­svar­aði útborgun í íbúð.

Hörð við­ur­lög liggju við báðum málum. Reikna má með að verði mað­ur­inn fund­inn sekur þá bíði hans allt að þriggja ára fang­elsi fyrir kóka­ín­málið. Sannist sök í máli lög­manns­ins getur það kostað hann dóm og missi rétt­inda.

Fréttin hefur verið upp­færð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð