Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Bein Alfred Swinscoe eru fundin, 56 árum eftir að hann hvarf: „Morðinginn gerði sex börn föðurlaus“

Bein Alfred Swinscoe eru fundin, 56 árum eftir að hann hvarf: „Morðinginn gerði sex börn föðurlaus“
Beiti­landið þar sem leif­arnar fund­ust

Lög­reglan hefur borið kennsl á mann­vist­ar­leifar sem fund­ust á akri í Sutton-in-Ashfield. Um er að ræða leifar manns sem týnd­ist fyrir 56 árum síðan. Skriða komst á málið eftir opin­bert ákall lög­regl­unnar um upp­lýs­ingar um málið varð til þess að barna­barn steig fram.

Lög­reglu­full­trúar voru fyrst kall­aðir á vett­vang við Coxmoor-veg eftir að veg­far­andi fann bein þann 26. apríl síð­ast­lið­inn. Lokað var fyrir umferð á svæð­inu og allt flug bannað einnig, þar á meðal dróna­flug, á meðan lög­reglan rann­sakar vett­vang­inn.

Alfred Swinscoe hvarf snemma árs 1967, er barna­barn hans, Russell Lowbridge var aðeins fjög­urra ára gam­all en Alfred hafði verið á kend­eríi á Miners Arms barnum í Pinxton í Der­by­skíri. Fjöl­skylda hans hefur beðið í 56 ár eftir svörum um hið dul­ar­fulla hvarf Alfreðs.

Alfred með syni sínum, Gary

Lowbridge, sem nú er sex­tugur, hafði sam­band við lög­regl­una eftir að hún aug­lýsti eftir upp­lýs­ingum um lík­ams­leifar sem fund­ust við Coxmoor-veg en hafði ekki verið búið að bera kennsl á enn. DNA-sýni voru borin saman úr Russell og syni Alfreds, sem nú er á átt­ræð­is­aldri. Kom í ljós að DNA-sýnin pössuðu við DNA sem fannst í bein­unum.

Lög­reglan seg­ist vita hvernig Alfred var myrtur og að teymi dyggra rann­sókn­ar­lög­reglu­manna ynnu nú við hlið vís­inda­manna við að finna morð­ingja Alfreds. Swinscoe var sex barna námu­verka­maður og bjó í hinu litla þorpi Pinxton í Der­by­skíri er hann týnd­ist. Alfred vann í Langton Colliery námunni frá fjórtán ára aldri en hann sást síð­ast þann 20. jan­úar árið 1967. Hann var „skeri“ þekktur fyrir að stjórna vél sem skar stóra klumpa af kolum úr kola­flöt­inni svo aðrir brotn­uðu síðan niður.

Hann var kall­aður „Spör­fugl­inn“ og var einnig þekktur sem „Dúfu­meist­ar­inn frá Pinxton“ vegna ástar hans á dúfu­kapp­leik. Fjögur af sex börnum hans eru enn á lífi og þá á hann fjöldi barna­barna.

Síðast sást til hans í Miners Arms í Vestur-Kirkju­stræti í Pinxton, en það var vin­sæll bar meðal námu­verka­manna. Knæpan, sem nú hefur verið breytt í íbúð­ar­hús, er stað­sett nálægt þeim stað sem bein Alfred fund­ust.

Fjöl­skylda hans hefur verið sagt frá nið­ur­stöðu DNA-rann­sókn­ar­innar og hefur hlotið aðstoð sér­stak­lega þjálfaðra full­trúa á meðan á þess­ari flóknu rann­sókn stendur. Lög­reglan er nú smá saman að mála upp mynd af lífi Alfreds, hverja hann þekkti og tíma­röð­ina á atburðum dag­ins sem hann hvarf.

Það er talið að Alfred hafi setið á drykkju með tveimur sonum sínum og vinum, kvöldið sem hann hvarf. Hann sást síð­ast klukkan hálf 12 að kvöld, er hann gaf syni sínum pen­ing svo hann gæti keypt næsta umgang. Hann skrapp svo til að nota úti­kamar­inn en snéri aldrei aftur.

Telja rann­sókn­ar­lög­reglu­menn að Alfred hafi verið myrtur og graf­inn á beiti­landi, sirka fjögur til sex fet ofan í jörð­ina. Á beina­grind­inni fund­ust nokkrir alvar­legir áverkar, sem verða rann­sak­aðir nánar. Þá verða fram­kvæmdar frekar próf­anir til að sjá nákvæm­lega hvernig hann var myrtur og hvað hann hefur lengi legið þar sem hann fann. Þá er einnig verið að rann­saka föt sem fund­ust með bein­unum, þar á meðal tveir sokkar og skór.

Aðstoð­ar­lög­reglu­stjór­inn Rob Griffin sagði: „Ég get ekki ímyndað mér hversu átak­an­legt það hefur verið fyrir fjöl­skyldu Afred að þurfa að bíða í 56 ár eftir svörum. Sumir með­limir fjöl­skyld­unnar eru ekki lengur meðal okkar en þau dóu án þess að vita hvað kom fyrir ást­vin þeirra þessa nótt. Það eina sem þau vissu var að Alfred fór á bar­inn eitt kvöldið og kom aldrei aftur heim. Við vitum að Alfred var myrtur. Við vitum það því það er grein­legt að hver sem gerði þetta gróf hann við Coxmoor-veg í þeirri von um að hann fynd­ist aldrei. Þrátt fyrir að glæp­ur­inn var fram­inn fyrir meira en 50 árum, mun það ekki stoppa okkur í að nota öll okkar ráð til að kom­ast að því hver morð­ing­inn er. Við viljum þakka fjöl­miðlum og almenn­ingi fyrir að dreifa beiðni okkar áfram, sem varð til þess að son­ar­sonur Alfred steig fram. Í síð­ustu viku vissum við ekki hver mað­ur­inn í eng­inu var en vorum búnir að úti­loka öll þrjú manns­hvörfin héðan með DNA-rann­sóknum.“

Enn hélt Griffin áfram: „Við vissum að um væri að ræða karl­mann á milli 40 til 60 ára í aldri og að hann hefði verið um 165 cm á hæð. Nú erum við með nafnið hans. Ef við getum skilið hvernig lífi hann lifði, þá getum við skilið hvernig hann dó. Rann­sókn­inni miðar mjög hratt en við viljum aftur biðla til almenn­ings um hjálp. Við viljum heyra í öllum sem hafa ein­hverjar upp­lýs­ingar um Alfred. Þekktir þú hann? Varstu á Miners Arms í Pinxton á sama tíma og Alfred? Ertu með ein­hverjar upp­lýs­ingar sem geta hjálpað okkur að vita hvað gerð­ist þetta kvöld?“

„Eftir því sem tím­inn líður, minnkar tryggðin og við vonum að fólk sem hafði upp­lýs­ingar um málið á sínum tíma, muni stíga fram núna. Það er óhugs­andi annað en að finna út hvað kom fyrir Alfred, ekki aðeins til að færa fjöl­skyld­unni frið, heldur einnig svo hægt sé að sækja þann sem ber ábyrgð­ina til saka. Morð­ing­inn gerði sex börn föð­ur­laus. Morðingi hans stal af honum tæki­færið á að byggja upp traust og var­an­leg tengsl sem oft er á milli ömmu og afa og barna­barna. Morð­ing­inn skyldi þau eftir með ósvar­aðar spurn­ingar í ára­tugi, um það hvað kom fyrir ást­vin þeirra. Við vonum að almenn­ingur geti hjálpað okkur að finna sann­leik­ann.“

Nott­ing­ham Post skrif­aði um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife