Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Samherji segir upp öllu starfsfólki Hólmadrangs á Hólmavík: „Hvorki RÚV né Stöð 2 minntust á málið“

Samherji segir upp öllu starfsfólki Hólmadrangs á Hólmavík: „Hvorki RÚV né Stöð 2 minntust á málið“
Hólmavík Mynd: westfjords.is

Starfs­fólk Hólma­drangs á Hólmavík fékk til­kynn­ingu fyrir síð­ustu helgi um fyr­ir­hug­aða lokun hjá fyr­ir­tæk­inu og að hverjum ein­asta starfs­manni verði sagt upp störfum frá og með 30. júní næst­kom­andi. Alls er um að ræða 21 starfs­mann í heild­ina.

Fram kemur í frétt Sam­stöðv­ar­innar að Hólma­drangi sé búinn að vera burð­ar­liður í atvinnu­lífi Hólm­vík­inga síð­ustu 58 árin. „Nú lýkur 58 ára sögu rækju­vinnslu Hólma­drangs, en fyr­ir­tækið hefur verið mikil stoð í atvinnu­lífi Hólm­vík­inga þrátt fyrir að gengið hafi með skini og skúrum,“ skrifar Bergvin Eyþórs­son, vara­for­maður Verka­lýðs­fé­lags Vest­firð­inga á vef félags­ins. „Í októ­ber 2018 var Hólma­drangi veitt heim­ild til greiðslu­stöðv­unar og síðar veitt heim­ild til nauða­samn­inga, en allt fór vel að lokum og hélt Hólma­drangur áfram vinnslu og starfs­fólk hélt áfram að hafa atvinnu og nýr ráð­andi hlut­hafi kom til sög­unnar, Snæfell, dótt­ur­fé­lag Samherja. Því miður var það skamm­góður vermir því nú hefur Hólma­drangur til­kynnt starfs­fólki sínu um áform­aða hóp­upp­sögn og lokun fyr­ir­tæk­is­ins eftir erf­iðan rekstur und­an­far­inna ára.“

Og Bergvin heldur áfram: „Boðað hefur verið til fundar þann 22. júní nk. þar sem verður yfir­farið hvort for­sendur hafi breyst og skapað rými fyrir aðrar nálg­anir til að bregð­ast við vand­anum auk þess sem áhersla verður lögð á sam­tal við starfs­menn. Þrátt fyrir að talað sé um sókn­ar­færi í fisk­eldi og ferða­manna­þjón­ustu er ekk­ert í hendi sem taki neitt við hjá því starfs­fólki sem missir vinn­una um kom­andi mán­aða­mót. Ekki er hægt að vísa fólki til nágranna­byggð­ar­laga til vinnu þar sem vetr­ar­þjón­usta Vega­gerð­ar­innar yfir Stein­gríms­fjarð­ar­heiði og Þrösk­ulda er naumt skömmtuð.“

Áfall fyrir Hólmavík

„Í Stranda­byggð búa 436 manns sam­kvæmt upp­lýs­ingum Hagstofu, en sam­kvæmt gögnum Verk Vest sem er deilda­skipt stétt­ar­fé­lag eru aðeins að jafn­aði 103 félags­menn starf­andi á Hólmavík og starfa að jafn­aði 64 þeirra fyrir ríki og sveit­ar­fé­lög,“ skrifar Bergvin á vef­inn. „Þetta skilur eftir að jafn­aði 39 manns á vinnu­mark­aði sem er eru almennir launa­menn á almennum vinnu­mark­aði sem spannar verka­fólk, sjó­menn, skrif­stofu- og versl­un­ar­fólk, en af þessum fjölda starfa að jafn­aði 19 hjá Hólma­drangi. Um næstu mán­aða­mót missir 48,72% þessa hóps vinn­una!“ Bætti hann við: „Ekki varð nú meira upp­hlaup vegna þessa en svo að hvorki RÚV né Stöð 2 minnt­ust á málið í kvöld­fréttum í gær­kvöld,“ furðar Bergvin sig á. „Erfitt er að bera það áfall sem nú dynur yfir Hólm­vík­inga saman við önnur land­svæði þar sem töl­urnar yrðu svo ótrú­legar að fólk á erfitt með að ímynda sér slíkt, en setjum þetta í sam­hengi við fólks­fjölda. Á Hólmavík missa 21 vinn­una af 436 íbúum, eða 4,82%. Ef við heim­færum það upp á Reykja­vík­ur­borg eina og sér jafn­gildir það því að 6.828 manns myndu missa vinn­una, og ef við heim­færum það upp á höf­uð­borg­ar­svæðið í heild jafn­gildir það því að 12.062 myndu missa vinn­una. Það má í það minnsta gefa sér að það hefði verið rætt í kvöld­fréttum!“

Sam­stöðin minn­ist á Facebook-færslu Sigurðar Pét­urs­sonar sögu­kenn­ara og bætir við að í kvöld verði fundur á Akranesi vegna frest­unar hval­ver­tíðar en við það missa um 200 manns vinn­una. Bendir Sigurður á ólík við­brögð við þessum fréttum.

Ólík viðbrögð

„Ólík við­brögð – ólík valda­staða: Hólma­drangur, í eigu Samherja, lokar rækju­vinnsl­unni, stærsta vinnu­staðnum á Hólmavík. Stór hluti verka­fólks á Hólmavík missir vinn­una. ,,Rækju­vinnslan Hólma­drangur er lyk­il­vinnu­staður Hólma­víkur og Stranda­byggðar allrar. Lokun vinnsl­unnar er reið­ar­slag fyrir sam­fé­lagið,“ segja Stranda­menn. Og Verka­lýðs­fé­lag Vest­firð­inga sam­þykkir ályktun, sem útskýrir málið. Smáfrétt?“ spyr Sigurður á Facebook

Sigurður svarar svo sjálfum sér: „Ekkert kvóta­fyr­ir­tæki á Hólmavík með ítök í stórum fjöl­miðli, engin við­brögð frá þing­mönnum eða valda­mönnum: Kvótafurst­arnir ráða örlögum fólks og byggða,“. Og heldur áfram: „Berum saman við­brögðin við stöðvun hval­veiða á vegum Hvals hf., tíma­bundið úthald eins fyr­ir­tækis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu: Rík­is­stjórnin riðar til falls, segja menn, for­síða Morg­un­blaðs­ins, sem lædd­ist innum lúg­una í morgun, und­ir­lögð, þing­flokkur Sjalla fundar, for­maður verka­lýðs­fé­lags­ins boðar mót­mæla­fund. Það er greini­lega ekki sama hver á í hlut.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil