Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ína Berglind frá Fellabæ sigraði söngkeppni Samfés: „Ég man ekki eftir mér öðruvísi en syngjandi“

Ína Berglind frá Fellabæ sigraði söngkeppni Samfés: „Ég man ekki eftir mér öðruvísi en syngjandi“
Ína Berglind Guð­munds­dóttir Mynd: Gunnar Gunnarsson

Hin Fell­bæska Ína Berglind Guð­munds­dóttir sigr­aði á dög­unum söng­keppni Samfés, sam­taka félags­mið­stöðva á Íslandi með frum­sömdu lagi.

Aust­ur­frétt tók við­tal við hina ungu og efni­legu söng­konu. Fram kemur í við­tal­inu að í söng­keppni Samfés syngi ung­lingar á aldr­inum 14 til 16 ára en Ína Berglind var annar tveggja full­trúa Aust­ur­lands í keppn­inni í ár. Þó að flestir kepp­endur syngi lög eftir þekkt tón­list­ar­fólk, leyn­ast oft á milli frum­samið efni.

Ína Berglind keppti fyrir félags­mið­stöð­ina Nýung á Egils­stöðum en hún flutti lagið sitt „Til­gangs­lausar setn­ingar.“ Enn sem komið er hefur Ína Berglind ekki gefið neitt út opin­ber­lega en hefur síð­ustu mán­uði verið dug­lega að koma fram víðs­vegar um Aust­ur­land. Mun hún meðal ann­ars koma fram á Skóg­ar­deg­inum mikla sem hald­inn verður í Hall­orms­stað­ar­skógi á morgun. Setur hún stefn­una á uptökur í Stúdíó Síló.

„Ég samdi lagið fyrir nokkru síðan. Ég er búin að semja lengi og á tölu­vert af lögum en ég hef reyndar aðal­lega verið að gera það fyrir mig en ekki spilað mikið af því fyrir aðra. „Til­gangs­lausar setn­ingar“ fjallar um komment sem fest­ast stundum dálítið inni í manni og maður losnar ekki við. Þetta er byggt á per­sónu­legri reynslu minni en ég vil samt ekki fara neitt nánar út í hvað það merkir,“ sagði Ína Berglind í við­tal­inu við Aust­ur­frétt.

„Annars eru lang­flest lögin mín byggð á ein­hverri reynslu því maður er að reyna að koma hugs­unum sínum á blað. Per­sónu­leg­ustu lögin eru yfir­leitt alltaf í rólegri kant­inum.“

Lengi hefur tón­listin átt hug og hjarta Ínu. „Ég man ekki eftir mér öðru­vísi en syngj­andi og ég hef verið í tón­list­ar­skóla líka frá því ég byrj­aði í skóla. Ég er að æfa á gítar í Tón­list­ar­skól­anum í Fellabæ og söng í Tón­list­ar­skól­anum á Egils­stöðum um þessar mundir.

En svo spila ég á fullt af öðrum hljóð­færum líka eins og píanó, ukel­ele og ég kann eitt­hvað fyrir mér á bassa þó ég sé kannski ekki mjög góð á hann ennþá. Önnur áhuga­mál eru ekki mikið til staðar. Ég hafði um tíma áhuga á íþróttum líka en tón­listin átti bara meira í mér og þar fékk ég miklu meiri útrás en í íþrótt­unum og fæ enn þann dag í dag.“

Þegar Ína Berglind er spurð að því hvaðan tón­list­ar­á­hug­inn komi og hvort hann komi frá for­eldr­unum skellir hún upp úr: „Nei, áhug­inn kemur ekki frá þeim og ég satt best að segja veit ekki hvaðan ég hef þennan áhuga. Ég veit til þess að langafi minn var mikið í tón­list á sínum tíma en hvernig minn áhugi kvikn­aði veit ég bara ekki.“

Ekki er Ína Berglind fyrsti Aust­firð­ing­ur­inn sem vinnur söng­keppni Samfés en hún Anya Hrund Shaddock frá Fáskrúðs­firði varst fyrst til þess árið 2017.

Lengri útgáfa birt­ist í Aust­ur­glugg­anum. Hægt er að panta áskrift hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil