Hópur dugnaðarforka safnaði rusli í 24 „saltpoka“ á Bolungarvík á Ströndum um helgina.
Á vef Landhelgisgæslunnar má lesa um frábært framtak 20 sjálfboðaliða sem söfnuðu heilmiklu rusli á Bolungarsvík á Ströndum en ruslið var síðan flutt til Ísafjarðar með varðskipinu Freyju. Alls safnaðist í 24 „saltpoka“.

Var þetta tíunda hreinsunarferð hópsins sem kallar sig Hreinni Hornstrandir. Lauk ferðinni er varðskipið lagðist að bryggju á Ísafirði með „afla“ helgarinnar eins og það er orðað hjá Gæslunni.

Hreinni Hornstrandir
Allar ljósmyndirnar eru fengnar frá Gæslunni.





















Athugasemdir