Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigurlaug fékk meðferð við hvítblæði: „Ég fékk strax hina alræmdu göngubakteríu“

Sig­ur­laug Hauks­dóttir greind­ist með hvít­blæði haustið 2016 og í nýjasta tölu­blaði Mannlífs gerir hún grein fyrir því hvernig hún hafi í kjöl­farið verið bit­inn af hinni alræmdu göngu­bakt­eríu: 

Sig­ur­laug Hauks­dóttir fékk með­ferð við hvít­blæði árið 2016 sem gekk vel og í kjöl­farið hefur hún upp­lifað mikil ævin­týri í alls kyns göngu­ferðum með nokkrum göngu­klúbbum. Þegar hún er beðin um að segja frá eft­ir­minni­leg­ustu ferð­inni inn­an­lands á hún erfitt með að velja en velur loks þverun Íslands sem voru nokkrar ferðir yfir fjög­urra ára tíma­bil. „Ég tel mig hafa kynnst betur land­inu eins og það er með öllum sínum nátt­úruperlum en líka land­inu sem er að fjúka burt.“

„Mín beið löng og erfið með­ferð hér­lendis. Með hjálp Ýmis, sonar míns, ákvað ég að fara í við­tal hjá banda­rískum sér­fræð­ingi í Atlanta þar sem ég upp­götv­aði til­vist til­rauna­með­ferðar í Evrópu við hvít­blæð­inu. Eftir smá grúsk um til­raun­ina afþakk­aði ég með­ferð­ina hér­lendis og fór í til­rauna­með­ferð við Rík­is­spít­ala Kaup­manna­hafnar þar sem ég losn­aði algjör­lega við krabba­meinið. Ég gat meira að segja unnið allan tím­ann á meðan á lyfja­gjöf stóð fyrir utan einn dag í upp­hafi með­ferð­ar­innar.

Ég ákvað að halda upp á þennan glæsta árangur með göngu­ferð til Sikil­eyjar og Vindeyja, sem eru eld­fjalla­eyjar norðan við Sikiley, haustið 2017. Ég hafði verið í lík­ams­rækt í ára­tugi en lítið sem ekk­ert í göngum. Ég hopp­aði því á nám­skeið hjá Einari Skúla­syni hjá Veseni og ver­gangi og þessi mán­uður hjá honum gerði úts­lagið. Ég fékk strax hina alræmdu göngu­bakt­eríu sem ég er afskapa­lega þakk­lát fyrir að hafa í dag. Ég hlakk­aði því­líkt til að taka upp þráð­inn í göng­unum eftir að ég kom úr Sikil­eyj­ar­ferð­inni. Einar er snill­ingur í að taka á móti nýliðum eins og mér. Það er svo ánægju­legt að taka þátt í göng­unum hans því hann er ekki bara upp­lýsandi heldur líka svo félags­lyndur og með rosa­lega góða nær­veru. Svo upp­götvar maður nán­ast sjálfum sér að óvörum að vera kom­inn í fín­asta form eftir nokkra vikna nám­skeið. Hjá honum kynnt­ist ég fjöl­mörgum nátt­úruperlum, margar hverjar í næsta nágrenni við Reykja­vík, sem voru svo fal­legar að ég átti erfitt með að trúa því að þær hefðu alltaf verið þarna án þess að ég hefði vitað af þeim eða sótt þær heim; perlum eins og Móskarðs­hnjúkum, Hengl­inum, göngu­stígum á Reykja­nes­inu og bara litlu fjöll­unum hér í kring. Hann gaf mér líka sjálfs­traust til að fara á jökla og í lengri ferðir á sumrin. Það hef ég síðan óspart nýtt mér eins og fara með honum á Horn­strandir, á Kjöl, Látra­strönd og Rauða­sand. Auk þess hef ég farið í ótal aðrar ferðir með öðrum far­ar­stjórum.“

Þverunin. Úr ferð 2021. Sund­sprettur tek­inn í Herðu­breið­ar­lindum.

Viðtalið við Sig­ur­laugu Hauks­dóttur má lesa í heild sinni á blað­síðu 24 í nýjasta tölu­blaði Mannlífs:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu